1Ef maður stelur nauti eða sauð, og slátrar eða selur, þá gjaldi hann aftur fimm uxa fyrir einn uxa og fjóra sauði fyrir einn sauð.2Ef þjófur er staðinn að innbroti og lostinn til bana, þá er vegandinn eigi blóðsekur.3En ef sól er á loft komin, þá er hann blóðsekur. Þjófurinn skal greiða fullar bætur, en eigi hann ekkert til, skal selja hann í bætur fyrir stuldinn.4Ef hið stolna finnst lifandi hjá honum, hvort heldur það er uxi, asni eða sauður, þá skal hann gjalda tvöfalt aftur.5Ef maður beitir akur eða víngarð og lætur fénað sinn ganga lausan og hann gengur í akri annars manns, þá skal hann bæta með því, sem best er á akri hans eða í víngarði hans.6Ef eldur kviknar og kemst í þyrna og brennur kerfaskrúf, kornstangir eða akur, þá bæti sá fullum bótum, er eldinn kveikti.7Nú selur maður öðrum manni silfur eða nokkra gripi til varðveislu og því er stolið úr húsi hans, og finnist þjófurinn, þá skal hann gjalda tvöfalt aftur.8En finnist þjófurinn ekki, þá skal leiða húseigandann fram fyrir Guð, og synji hann fyrir með eiði að hann hafi lagt hendur á eign náunga síns.9Fari einhver óráðvandlega með uxa, asna, sauð, klæðnað eða hvað annað, er tapast hefir og einhver segir um: Það er þetta, þá skal mál þeirra beggja koma fyrir Guð, og sá sem Guð dæmir sekan skal gjalda náunga sínum tvöfalt.10Ef maður selur öðrum manni asna eða naut eða sauð eða nokkra aðra skepnu til varðveislu, og hún deyr eða lestist eða er tekin svo að enginn sér,11þá skal til koma eiður við Drottinn þeirra í millum, að hann lagði ekki hönd á eign náunga síns, og skal eigandi þann eið gildan taka, en hinn bæti engu.12En hafi því verið stolið frá honum, þá gjaldi hann bætur eigandanum.13Ef það er dýrrifið, þá skal hann koma með það til sannindamerkis. Það sem dýrrifið er skal hann ekki bæta.14Ef maður hefir fengið einhvern grip léðan hjá öðrum manni og hann lestist eða deyr, sé eigandi ekki viðstaddur, þá bæti hinn fullum bótum,15en sé eigandi við, bæti hann engu. Ef það var leigugripur, þá eru bæturnar fólgnar í leigunni.16Ef maður glepur mey, sem ekki er föstnuð manni, og leggst með henni, þá skal hann hana mundi kaupa sér að eiginkonu.17En ef faðir hennar vill eigi gifta honum hana, þá skal hann greiða svo mikið silfur sem meyjarmundi svarar.18Eigi skalt þú láta galdrakonu lífi halda.19Hver sem hefir samlag við fénað skal líflátinn verða.20Hver sem færir fórnir nokkrum guði, öðrum en Drottni einum, skal bannfærður verða.21Útlendum manni skalt þú eigi sýna ójöfnuð né veita honum ágang, því að þér voruð sjálfir útlendingar í Egyptalandi.22Þér skuluð ekki leggjast á ekkjur eða munaðarleysingja.23Ef þú leggst á þau, og þau hrópa til mín, mun ég vissulega heyra neyðarkvein þeirra.24Þá skal reiði mín upptendrast, og ég skal drepa yður með sverði, svo að konur yðar verði ekkjur og börn yðar föðurlaus.25Ef þú lánar peninga fólki mínu, hinum fátæka, sem hjá þér er, þá skalt þú ekki vera við hann eins og okrari. Þér skuluð ekki taka leigu af honum.26Ef þú tekur yfirhöfn náunga þíns að veði, þá skila þú honum henni aftur áður sól sest,27því að hún er hið eina, sem hann hefir til að hylja sig með, hún skýlir líkama hans. Hvað á hann annars að hafa yfir sér, er hann leggst til hvíldar? Þegar hann hrópar til mín, skal ég heyra, því að ég er miskunnsamur.28Þú skalt ekki lastmæla Guði og ekki bölva höfðingja þíns fólks.29Lát eigi undan dragast að færa fórn af korngnótt þinni og aldinsafa. Frumgetning sona þinna skalt þú mér gefa.30Hið sama skalt þú gjöra af nautum þínum og sauðum. Sjö daga skal frumburðurinn vera hjá móður sinni, en hinn áttunda dag skalt þú færa mér hann.31Helgir menn skuluð þér vera fyrir mér. Það kjöt, sem rifið er af dýrum úti á víðavangi, skuluð þér eigi eta, heldur kasta því fyrir hunda.

22.1 Innbrot Jer 2.34; Esk 12.7
22.5 Eldur Dóm 9.15
22.6 Gripir til varðveislu 3Mós 5.21-25
22.12 Dýrrifið 1Mós 31.39; Am 3.12
22.15 Nauðgun 5Mós 22.28-29; Hós 2.16
22.17 Galdranorn 3Mós 19.31+
22.19 Mök við fénað 3Mós 18.23+
22.19 Dýrka aðra guði 5Mós 17.2-3; 1Kon 16.31-33; 2Kon 21.3-5
22.20 Aðkomumanni … 3Mós 19.33-34; 5Mós 24.17-18; Jer 22.3; Esk 22.7; Slm 146.9
22.24 Lána peninga 3Mós 25.35-37; 5Mós 23.20-21; Slm 15.5; Neh 5.1-13
22.25 Veð 5Mós 24.10-13,17-18; Am 2.8
22.27 Bölva Guði 2Mós 20.7+ – formæla höfðingja Préd 10.20; Post 23.5
22.28 Frumburður 2Mós 13.1+
22.30 Heilagir menn 3Mós 11.44+ – kjöt af dýrrifinni skepnu 3Mós 17.15+