1Kór Hvert er unnusti þinn genginn, þú hin fegursta meðal kvenna? Hvert hefir unnusti þinn farið, að vér megum leita hans með þér?2Brúðurin Unnusti minn gekk ofan í garð sinn, að balsambeðunum, til þess að skemmta sér í görðunum og til að tína liljur.3Ég heyri unnusta mínum, og unnusti minn heyrir mér, hann sem skemmtir sér meðal liljanna.4Brúðguminn Fögur ertu, vina mín, eins og Tirsa, yndisleg eins og Jerúsalem, ægileg sem herflokkar.5Snú frá mér augum þínum, því að þau hræða mig. Hár þitt er eins og geitahjörð, sem rennur niður Gíleaðfjall.6Tennur þínar eru eins og hópur af ám, sem koma af sundi, sem allar eru tvílembdar og engin lamblaus meðal þeirra.7Vangi þinn er eins og kinn á granatepli út um skýluraufina.8Sextíu eru drottningarnar og áttatíu hjákonurnar og óteljandi ungfrúr.9En ein er dúfan mín, ljúfan mín, einkabarn móður sinnar, augasteinn þeirrar er ól hana. Meyjarnar sáu hana og sögðu hana sæla, og drottningar og hjákonur víðfrægðu hana.10Hver er sú sem horfir niður eins og morgunroðinn, fögur sem máninn, hrein sem sólin, ægileg sem herflokkar?11Ég hafði gengið ofan í hnotgarðinn til þess að skoða gróðurinn í dalnum, til þess að skoða, hvort vínviðurinn væri farinn að bruma, hvort granateplatrén væru farin að blómgast.12Áður en ég vissi af, hafði löngun mín leitt mig að vögnum manna höfðingja nokkurs.13Kór Snú þér við, snú þér við, Súlamít, snú þér við, snú þér við, svo að vér fáum séð þig! Brúðguminn Hvað viljið þér sjá á Súlamít? Er það dansinn í tvíflokknum?

6.1 Leita hans Ljl 3.1
6.2 Garður Ljl 1.12+ – að ilmjurtareitunum Ljl 5.13; sbr 1.12+ – lilja Ljl 2.1+
6.3 Ég er hans Ljl 2.16
6.4-10 Lof til hinnar elskuðu Ljl 4.1-14+
6.4 Fögur ertu Ljl 1.15+
6.5 Augu þín skelfa mig Ljl 4.9 – hár þitt Ljl 4.1
6.6 Tennur þínar Ljl 4.2
6.7 Sneitt granatepli Ljl 4.3+
6.8 Kvennabúr Salómons 1Kon 11.3 – ungmeyjar Ljl 1.3+ ; sbr Est 2.12-17
6.9 Dúfa Ljl 1.15+ – einkabarn Okv 4.3 – ungmeyjarnar Ljl 1.3+ – róma hana Okv 31.28; sbr Slm 1.1+ ; Matt 5.3+
6.10 Hver … Ljl 3.6+ – morgunroðinn Jes 14.12 – sem sólin Sír 26.16 – fögur, ógurleg Ljl 6.4
6.11 Skoða gróðurinn Ljl 7.13