1Leggið því af alla vonsku og alla pretti, hræsni og öfund og allt baktal.2Sækist eins og nýfædd börn eftir hinni andlegu, ósviknu mjólk, til þess að þér af henni getið dafnað til hjálpræðis,3enda hafið þér smakkað, hvað Drottinn er góður.4Komið til hans, hins lifanda steins, sem hafnað var af mönnum, en er hjá Guði útvalinn og dýrmætur,5og látið sjálfir uppbyggjast sem lifandi steinar í andlegt hús, til heilags prestafélags, til að bera fram andlegar fórnir, Guði velþóknanlegar fyrir Jesú Krist.6Því svo stendur í Ritningunni: Sjá, ég set hornstein í Síon, valinn og dýrmætan. Sá sem trúir á hann mun alls eigi verða til skammar.7Yður sem trúið er hann dýrmætur, en hinum vantrúuðu er steinninn, sem smiðirnir höfnuðu, orðinn að hyrningarsteini8og: ásteytingarsteini og hrösunarhellu. Þeir steyta sig á honum, af því að þeir óhlýðnast boðskapnum. Það var þeim ætlað.9En þér eruð útvalin kynslóð, konunglegt prestafélag, heilög þjóð, eignarlýður, til þess að þér skuluð víðfrægja dáðir hans, sem kallaði yður frá myrkrinu til síns undursamlega ljóss.10Þér sem áður voruð ekki lýður eruð nú orðnir Guðs lýður. Þér, sem ekki nutuð miskunnar, hafið nú miskunn hlotið.11Þér elskuðu, ég áminni yður sem gesti og útlendinga að halda yður frá holdlegum girndum, sem heyja stríð gegn sálunni.12Hegðið yður vel meðal heiðingjanna, til þess að þeir, er nú hallmæla yður sem illgjörðamönnum, sjái góðverk yðar og vegsami Guð á tíma vitjunarinnar.13Verið Drottins vegna undirgefnir allri mannlegri skipan, bæði keisara, hinum æðsta,14og landshöfðingjum, sem hann sendir til að refsa illgjörðamönnum og þeim til lofs er breyta vel.15Því að það er vilji Guðs, að þér skuluð með því að breyta vel þagga niður vanþekkingu heimskra manna.16Þér eruð frjálsir menn, hafið ekki frelsið fyrir hjúp yfir vonskuna, breytið heldur sem þjónar Guðs.17Virðið alla menn, elskið bræðrafélagið, óttist Guð, heiðrið keisarann.18Þér þjónar, verið undirgefnir húsbændum yðar með allri lotningu, ekki einungis hinum góðu og sanngjörnu, heldur einnig hinum ósanngjörnu.19Ef einhver þolir móðganir og líður saklaus vegna meðvitundar um Guð, þá er það þakkar vert.20Því að hvaða verðleiki er það, að þér sýnið þolgæði, er þér verðið fyrir höggum vegna misgjörða? En ef þér sýnið þolgæði, er þér líðið illt, þótt þér hafið breytt vel, það aflar velþóknunar hjá Guði.21Til þessa eruð þér kallaðir. Því að Kristur leið einnig fyrir yður og lét yður eftir fyrirmynd, til þess að þér skylduð feta í hans fótspor.22Hann drýgði ekki synd, og svik voru ekki fundin í munni hans.23Hann illmælti eigi aftur, er honum var illmælt, og hótaði eigi, er hann leið, heldur gaf það í hans vald, sem réttvíslega dæmir.24Hann bar sjálfur syndir vorar á líkama sínum upp á tréð, til þess að vér skyldum deyja frá syndunum og lifa réttlætinu. Fyrir hans benjar eruð þér læknaðir.25Þér voruð sem villuráfandi sauðir, en nú hafið þér snúið yður til hans, sem er hirðir og biskup sálna yðar.

2.1 Segið skilið við … Ef 4.22; Jak 1.21
2.2 Mjólk 1Kor 3.2; Heb 5.12-13
2.3 Smakkað … Slm 34.9
2.4 Steinninn, sem hafnað var Slm 118.22; Matt 21.42; Post 4.11 – dýrmætur Jes 28.16
2.5 Uppbyggjast sbr Matt 16.18; 1Kor 3.9-10 – andlegt hús Ef 2.21-22 – heilagur prestadómur 2Mós 19.6; Jes 61.6; 1Pét 2.9, Opb 1.6; 5.10; 20.6 – andlegar fórnir Róm 12.1; Heb 13.15
2.6 Sjá, ég set … Jes 28.16; sbr Róm 9.33 – hornsteinn Ef 2.20+
2.7 Steinninn, sem hafnað var 1Pét 2.4+
2.8 Ásteytingarsteinn Jes 8.14; Róm 9.33; sbr Lúk 2.34
2.9 Útvalin kynslóð Jes 43.20-21; 5Mós 10.15 – prestdómur 1Pét 2.5+ – heilög þjóð 2Mós 19.5-6 – eignarlýður Jes 43.21 – frá myrkri til ljóss Jes 9.1; Post 26.18; Ef 5.8; Kól 1.13
2.10 Ekki lýður Hós 1.6,9; 2.1,23; Róm 9.25
2.11 Gestir og útlendingar Slm 39.13; 1Pét 1.1 – holdlegar girndir Gal 5.24 – heyja stríð Gal 5.17; Jak 4.1
2.12 Vegsami Guð Matt 5.16 – þegar Guð kemur 1Mós 50.24-25; Jes 10.3; Jer 6.15; SSal 3.7; Lúk 1.68; 7.16; 19.44
2.13-14 Hlýðin Róm 13.1-7; Tít 3.1; 1Tím 2.1-2: sbr 1Pét 3.1; 5.5
2.15 Þagga niður 1Pét 3.13; sbr Slm 14.1
2.16 Ekki nota frelsið til að hylja Gal 5.13
2.17 Virða alla menn Róm 12.10 – elskið samfélagið 1Pét 1.22 – óttist Guð Okv 24.21
2.18 Um þjóna Ef 6.5-8; Kól 3.22 – 4.1 – 1Pét 4.1+ ; Tít 2.9
2.19 Vegna meðvitundar um Guð sbr Róm 13.5
2.20 Líða saklaus 1Pét 3.14,17; 4.14
2.21 Fyrirmynd Jóh 13.15 – feta í fótspor Krists Matt 16.24; sbr 4.19+
2.22 Drýgði ekki synd … Jes 53.9; Jóh 8.46; 2Kor 5.21; 1Jóh 3.5
2.23 Illmælti ekki … Jes 53.7; 1Pét 3.9; sbr Post 8.32
2.24 Bar syndir okkar Jes 53.4,12; Heb 9.28; sbr Mrk 10.45 og hlst.; Róm 4.25 – upp á tréð (krossinn) 5Mós 21.22-23; Gal 3.13 – til þess að við skyldum lifa Róm 6.2,11 – réttlæti Róm 8.4 – fyrir hans benjar … Jes 53.5
2.25 Sem villuráfandi sauðir Jes 53.6; Esk 34.5-6; Matt 9.36 – hirðir 1Pét 5.4