1Um þessar mundir lét Heródes konungur leggja hendur á nokkra úr söfnuðinum og misþyrma þeim.2Hann lét höggva Jakob bróður Jóhannesar með sverði.3Og er hann sá, að Gyðingum líkaði vel, lét hann einnig taka Pétur. Þá voru dagar ósýrðu brauðanna.4Þegar hann hafði handtekið hann, lét hann setja hann í fangelsi og fól fjórum fjögurra hermanna varðflokkum að gæta hans. Ætlaði hann eftir páska að leiða hann fram fyrir lýðinn.5Sat nú Pétur í fangelsinu, en söfnuðurinn bað heitt til Guðs fyrir honum.6Nóttina áður en Heródes ætlaði að leiða hann fram svaf Pétur milli tveggja hermanna, bundinn tveim fjötrum, og varðmenn fyrir dyrum úti gættu fangelsisins.7Allt í einu stóð engill Drottins hjá honum og ljós skein í klefanum. Laust hann á síðu Pétri, vakti hann og mælti: Rís upp skjótt! Og fjötrarnir féllu af höndum hans.8Þá sagði engillinn við hann: Gyrð þig og bind á þig skóna! Hann gjörði svo. Síðan segir engillinn: Far þú í yfirhöfn þína og fylg mér!9Hann gekk út og fylgdi honum. En ekki vissi hann, að það var raunverulegt, sem gjörst hafði við komu engilsins, hann hélt sig sjá sýn.10Þeir gengu nú fram hjá innri og ytri verðinum og komu að járnhliðinu, sem farið er um til borgarinnar. Laukst það upp af sjálfu sér fyrir þeim. Þeir fóru út um það og gengu eitt stræti, en þá hvarf engillinn allt í einu frá honum.11Þegar Pétur kom til sjálfs sín, sagði hann: Nú veit ég sannlega, að Drottinn hefur sent engil sinn og bjargað mér úr hendi Heródesar og frá allri ætlan Gyðingalýðs.12Og er hann hafði áttað sig, gekk hann að húsi Maríu, móður Jóhannesar, er kallast Markús. Þar höfðu margir safnast saman og voru á bæn.13Hann knúði hurð fordyrisins, og stúlka að nafni Róde gekk til dyra.14Þegar hún þekkti málróm Péturs, gáði hún eigi fyrir fögnuði að ljúka upp fordyrinu, heldur hljóp inn og sagði, að Pétur stæði fyrir dyrum úti.15Þeir sögðu við hana: Þú ert frávita. En hún stóð fast á því, að svo væri sem hún sagði. Það er þá engill hans, sögðu þeir.16En Pétur hélt áfram að berja, og þegar þeir luku upp, sáu þeir hann og urðu furðu lostnir.17Hann benti þeim með hendinni að vera hljóðir, skýrði þeim frá, hvernig Drottinn hafði leitt hann út úr fangelsinu, og bað þá segja Jakobi og bræðrunum frá þessu. Síðan gekk hann út og fór í annan stað.18Þegar dagur rann, kom ekki lítið fát á hermennina út af því, hvað af Pétri væri orðið.19Heródes lét leita hans, en fann hann ekki. Hann lét þá yfirheyra varðmennina og bauð síðan að taka þá af lífi. Síðan fór hann úr Júdeu niður til Sesareu og sat þar um kyrrt.20Heródes hafði verið harla gramur Týrverjum og Sídóningum. Komu þeir saman á fund hans, fengu Blastus, stallara konungs, til fylgis við sig og báðust friðar, en land þeirra var háð landi konungs um vistaföng.21Á tilsettum degi klæddist Heródes konungsskrúða, settist í hásæti og flutti þeim ræðu.22En lýðurinn kallaði: Guðs rödd er þetta, en eigi manns.23Jafnskjótt laust engill Drottins hann, sökum þess að hann gaf ekki Guði dýrðina. Hann varð ormétinn og dó.24En orð Guðs efldist og breiddist út.25Barnabas og Sál sneru aftur frá Jerúsalem að loknu erindi sínu og tóku með sér Jóhannes, öðru nafni Markús.

12.2 Jakob bróðir Jóhannesar Matt 4.21+
12.3 Dagar ósýrðu brauðanna Matt 26.17+
12.4 Pétur hnepptur í fangelsi Post 4.3; 5.18
12.5 Beðið fyrir Pétri Jak 5.16
12.6 Varðmenn fyrir dyrum úti Post 5.23
12.7 Engill Drottins Matt 1.20+
12.10 Hliðið laukst upp Post 5.19; sbr 16.26
12.12 Jóhannes, kallaður Markús Post 12.25; 13.5,13; 15.37-39; Kól 4.10; 2Tím 4.11; Fílm 24; 1Pét 5.13
12.17 Benti til hljóðs Post 13.16; 19.33; 21.40 – Jakob Post 15.13+ – bræðurnir Post 1.15+ – á annan stað Gal 2.7; 1Kor 9.5; 1Pét 1.1
12.18-19 Pétur fannst ekki Post 5.22-24
12.20 Heródes Agrippa I. Post 12.1 – Týrus og Sídon háðir Palestínu um vistaföng 1Kon 5.1; Esk 27.17
12.22 Tignaður sem Guð Esk 28.2
12.23 Gaf ekki Guði dýrðina Dan 5.20
12.24 Orð Guðs efldist Post 6.7; 19.20
12.25 Barnabas Post 4.36+ – og Sál í Jerúsalem Post 11.29-30 – Jóhannes, Markús Post 12.12+