1Orðskviðir Salómons. Vitur sonur gleður föður sinn, en heimskur sonur er móður sinni til mæðu.2Rangfenginn auður stoðar ekki, en réttlæti frelsar frá dauða.3Drottinn lætur ekki réttlátan mann þola hungur, en græðgi guðlausra hrindir hann frá sér.4Snauður verður sá, er með hangandi hendi vinnur, en auðs aflar iðin hönd.5Hygginn er sá, er á sumri safnar, en skammarlega fer þeim, er um kornsláttinn sefur.6Blessun kemur yfir höfuð hins réttláta, en munnur óguðlegra hylmir yfir ofbeldi.7Minning hins réttláta verður blessuð, en nafn óguðlegra fúnar.8Sá sem er vitur í hjarta, þýðist boðorðin, en sá sem er afglapi í munninum, steypir sér í glötun.9Sá sem gengur ráðvandlega, gengur óhultur, en sá sem gjörir vegu sína hlykkjótta, verður uppvís.10Sá sem deplar með auganu, veldur skapraun, en sá sem finnur að með djörfung, semur frið.11Munnur hins réttláta er lífslind, en munnur óguðlegra hylmir yfir ofbeldi.12Hatur vekur illdeilur, en kærleikurinn breiðir yfir alla bresti.13Viska er á vörum hyggins manns, en á baki hins óvitra hvín vöndurinn.14Vitrir menn geyma þekking sína, en munnur afglapans er yfirvofandi hrun.15Auður ríks manns er honum öflugt vígi, en fátækt hinna snauðu verður þeim að falli.16Afli hins réttláta verður til lífs, gróði hins óguðlega til syndar.17Sá fer lífsins leið, er varðveitir aga, en sá villist, er hafnar umvöndun.18Sá er leynir hatri, er lygari, en sá sem ber út óhróður, er heimskingi.19Málæðinu fylgja yfirsjónir, en sá breytir hyggilega, sem hefir taum á tungu sinni.20Tunga hins réttláta er úrvals silfur, vit hins óguðlega er lítils virði.21Varir hins réttláta fæða marga, en afglaparnir deyja úr vitleysu.22Blessun Drottins, hún auðgar, og erfiði mannsins bætir engu við hana.23Heimskingjanum er ánægja að fremja svívirðing, en viskan er hyggnum manni gleði.24Það sem hinn óguðlegi óttast, kemur yfir hann, en réttlátum gefst það, er þeir girnast.25Þegar vindbylurinn skellur á, er úti um hinn óguðlega, en hinn réttláti stendur á eilífum grundvelli.26Það sem edik er tönnunum og reykur augunum, það er letinginn þeim, er hann senda.27Ótti Drottins lengir lífdagana, en æviár óguðlegra verða stytt.28Eftirvænting réttlátra endar í gleði, en von óguðlegra verður að engu.29Vegur Drottins er athvarf sakleysisins, en hrun þeim, er aðhafast illt.30Hinn réttláti bifast ekki að eilífu, en hinir óguðlegu munu ekki byggja landið.31Munnur hins réttláta framleiðir visku, en fláráð tunga verður upprætt.32Varir hins réttláta vita, hvað geðfellt er, en munnur óguðlegra er eintóm flærð.

10.3 Ekki hungur Okv 13.25; Slm 34.10+ ; sbr Okv 3.33+
10.6-7 Blessun Okv 11.11; 24.25; 3.33+ – hlutskipti óguðlegra Okv 3.33+
10.11 Lífslind Okv 10.2,16; 11.4,19; 12.28; sbr 4.13+
10.12 Breiðir yfir bresti Okv 17.9; Jak 5.20; 1Pét 4.8; sbr 1Kor 13.7
10.13 Vöndur Okv 13.24+
10.15 Ríkir og fátækir Okv 14.20; 22.7; sbr 22.2+
10.20-21 Orð hins réttláta Okv 10.31,32; 12.6; 15.28; Slm 37.30
10.27 Guðsótti, miskunn Okv 14.26,27; 19.23; Slm 33.18; 85.10; 103.11; Préd 7.18; 8.12; Sír 6.16; 40.26; Lúk 1.50; sbr Okv 8.13+ ; 9.10+
10.28 Von ranglátra Okv 11.7; Job 8.13; Slm 112.10; sbr Okv 3.33+
10.30 Ekki þokað Slm 15.5+ – byggja landið Okv 2.21+