1Jónasi mislíkaði þetta mjög, og hann varð reiður.2Og hann bað til Drottins og sagði: Æ, Drottinn! Kemur nú ekki að því sem ég hugsaði, meðan ég enn var heima í mínu landi? Þess vegna ætlaði ég áður fyrr að flýja til Tarsis, því að ég vissi, að þú ert líknsamur og miskunnsamur Guð, þolinmóður og gæskuríkur og lætur þig angra hins vonda.3Tak nú, Drottinn, önd mína frá mér, því að mér er betra að deyja en lifa.4En Drottinn sagði: Er það rétt gjört af þér að reiðast svo?5Því næst fór Jónas út úr borginni og bjóst um fyrir austan borgina. Þar gjörði hann sér laufskála og settist undir hann í forsælunni og beið þess að hann sæi, hvernig borginni reiddi af.6Þá lét Drottinn Guð rísínusrunn upp spretta yfir Jónas til þess að bera skugga á höfuð hans og til þess að hafa af honum óhuginn, og varð Jónas stórlega feginn rísínusrunninum.7En næsta dag, þegar morgunroðinn var á loft kominn, sendi Guð orm, sem stakk rísínusrunninn, svo að hann visnaði.8Og er sól var upp komin, sendi Guð brennheitan austanvind, og skein sólin svo heitt á höfuð Jónasi, að hann örmagnaðist. Þá óskaði hann sér dauða og sagði: Mér er betra að deyja en lifa!9Þá sagði Guð við Jónas: Er það rétt gjört af þér að reiðast svo vegna rísínusrunnsins? Hann svaraði: Það er rétt að ég reiðist til dauða!10En Drottinn sagði: Þig tekur sárt til rísínusrunnsins, sem þú hefir ekkert fyrir haft og ekki upp klakið, sem óx á einni nóttu og hvarf á einni nóttu.11Og mig skyldi ekki taka sárt til Níníve, hinnar miklu borgar, þar sem eru meira en hundrað og tuttugu þúsundir manna, er ekki þekkja hægri hönd sína frá hinni vinstri, og fjöldi af skepnum? skepnum?

4.1 Jónasi mislíkar sbr Lúk 15.28
4.2 Líknsamur og miskunnsamur 2Mós 34.6+; sbr 5Mós 5.10; Jer 32.18
4.3 Taktu líf mitt Jón 4.8; 1Kon 19.4; sbr Job 7.15
4.11 120.000; Júdt 2.5,15; sbr Opb 7.4