1Efraím sækist eftir vindi og eltir austangoluna. Á hverjum degi hrúga þeir upp lygum og ofbeldisverkum. Þeir gjöra sáttmála við Assýríu, og olífuolía er flutt til Egyptalands.2Drottinn mun ganga í dóm við Júda og hegna Jakob eftir breytni hans, endurgjalda honum eftir verkum hans.3Í móðurkviði lék hann á bróður sinn, og sem fulltíða maður glímdi hann við Guð.4Hann glímdi við engil og bar hærri hlut, hann grét og bað hann líknar. Hann fann hann í Betel og þar talaði hann við hann.5Drottinn, Guð allsherjar, Drottinn er nafn hans.6En þú skalt hverfa aftur með hjálp Guðs þíns. Ástunda miskunnsemi og réttlæti og vona stöðugt á Guð þinn.7Kanaan röng vog er í hendi hans, hann er gjarn á að hafa af öðrum með svikum.8Og Efraím segir: Ég er auðugur orðinn, hefi aflað mér fjár. Við allan gróða minn geta menn ekki fundið neina misgjörð, er sé synd.9Ég, Drottinn, er Guð þinn frá því á Egyptalandi, enn get ég látið þig búa í tjöldum eins og á hátíðardögunum.10Ég hefi talað til spámannanna, og ég hefi látið þá sjá margar sýnir og talað í líkingum fyrir munn spámannanna.11Ef Gíleað er óguðlegt, þá skulu þeir að engu verða. Af því að þeir fórnuðu nautum í Gilgal, þá skulu og ölturu þeirra verða eins og steinhrúgur hjá plógförum á akri.12Þegar Jakob flýði til Aramlands, þá gjörðist Ísrael þjónn vegna konu, og vegna konu gætti hann hjarðar.13Fyrir spámann leiddi Drottinn Ísrael af Egyptalandi, og fyrir spámann varðveittist hann.14Efraím hefir valdið sárri gremju, fyrir því mun Drottinn hans láta blóðskuld hans yfir hann koma og gjalda honum svívirðing hans.

12.1 Lygi og svik Hós 4.2; 7.1; 10.4,13; 12.2 – Júda Hós 1.7+
12.2 Vindur Hós 8.7; Préd 1.6 – austanstormurinn Hós 13.15 – óheilindi Hós 7.11+
12.3 Drottinn sækir mál Hós 2.4+
12.4 Blekkti 1Mós 25.26; 27.35-36
12.5 Glímdi við Guð 1Mós 32.25,29 – Jakob í Betel 1Mós 28.12-19 – Guð talar við hann 1Mós 35.15
12.7 Snúa sér til Guðs Hós 11.5+
12.8 Prangari (Kanaan) verslar Sak 14.21; Okv 31.24
12.9 Auðugur Opb 3.17-18
12.10 Drottinn, Guð þinn Hós 13.4; 2Mós 20.2; 5Mós 5.6 – í tjöldum að nýju sbr Hós 2.16; 13.5 – á hátíðardögum 2Mós 33.7
12.11 Spámenn, sýnir 4Mós 12.2-8; 5Mós 18.15,18-22; Slm 74.9; Hlj 2.9
12.12 Gíleað Hós 6.8+ – Gilgal Hós 4.15+
12.13 Til Aramsléttu 1Mós 29.1-30
12.14 Móse spámaður 4Mós 12.6-8; 5Mós 18.15,18