1Þegar nú múrinn var byggður, setti ég hurðirnar í, og hliðvörðunum og söngvurunum og levítunum var falið eftirlitið.2Og ég skipaði Hananí bróður minn og Hananja, yfirmann vígisins, yfir Jerúsalem, því að hann var svo áreiðanlegur maður og guðhræddur, að fáir voru hans líkar.3Og ég sagði við þá: Ekki skal ljúka upp hliðum Jerúsalem fyrr en sól er komin hátt á loft, og áður en verðirnir fara burt, skal hurðunum lokað og slár settar fyrir. Og það skal setja verði af Jerúsalembúum, hvern á sína varðstöð, og það hvern gegnt húsi sínu.4Borgin var víðáttumikil og stór, en fátt fólk í henni og engin nýbyggð hús.5Þá blés Guð minn mér því í brjóst að safna saman tignarmönnunum, yfirmönnunum og lýðnum, til þess að láta taka manntal eftir ættum. Og ég fann ættarskrá þeirra, er fyrst höfðu farið heim, og þar fann ég ritað:6Þessir eru þeir úr skattlandinu, er heim fóru úr herleiðingarútlegðinni, þeir er Nebúkadnesar Babelkonungur hafði herleitt og nú sneru aftur til Jerúsalem og Júda, hver til sinnar borgar,7þeir sem komu með Serúbabel, Jósúa, Nehemía, Asarja, Raamja, Nahamaní, Mordekai, Bilsan, Misperet, Bigvaí, Nehúm og Baana. Talan á mönnum Ísraelslýðs var:8Niðjar Parós: 2.172.9Niðjar Sefatja: 372.10Niðjar Ara: 652.11Niðjar Pahat Móabs, sem sé niðjar Jesúa og Jóabs: 2.818.12Niðjar Elams: 1.254.13Niðjar Sattú: 845.14Niðjar Sakkaí: 760.15Niðjar Binnúí: 648.16Niðjar Bebaí: 628.17Niðjar Asgads: 2.322.18Niðjar Adóníkams: 667.19Niðjar Bigvaí: 2.067.20Niðjar Adíns: 655.21Niðjar Aters, frá Hiskía: 98.22Niðjar Hasúms: 328.23Niðjar Besaí: 324.24Niðjar Harífs: 112.25Ættaðir frá Gíbeon: 95.26Ættaðir frá Betlehem og Netófa: 188.27Menn frá Anatót: 128.28Menn frá Bet Asmavet: 42.29Menn frá Kirjat Jearím, Kefíra og Beerót: 743.30Menn frá Rama og Geba: 621.31Menn frá Mikmas: 122.32Menn frá Betel og Aí: 123.33Menn frá Nebó: 52.34Niðjar Elams hins annars: 1.254.35Niðjar Haríms: 320.36Ættaðir frá Jeríkó: 345.37Ættaðir frá Lód, Hadíd og Ónó: 721.38Ættaðir frá Senaa: 3.930.39Prestarnir: Niðjar Jedaja, af ætt Jesúa: 973.40Niðjar Immers: 1.052.41Niðjar Pashúrs: 1.247.42Niðjar Haríms: 1.017.43Levítarnir: Niðjar Jesúa og Kadmíels, af niðjum Hódeja: 74.44Söngvararnir: Niðjar Asafs: 148.45Hliðverðirnir: Niðjar Sallúms, niðjar Aters, niðjar Talmóns, niðjar Akúbs, niðjar Hatíta, niðjar Sóbaí: 138.46Musterisþjónarnir: Niðjar Síha, niðjar Hasúfa, niðjar Tabbaóts,47niðjar Kerós, niðjar Sía, niðjar Padóns,48niðjar Lebana, niðjar Hagaba, niðjar Salmaí,49niðjar Hanans, niðjar Giddels, niðjar Gahars,50niðjar Reaja, niðjar Resíns, niðjar Nekóda,51niðjar Gassams, niðjar Ússa, niðjar Pasea,52niðjar Besaí, niðjar Meúníta, niðjar Nefísíta,53niðjar Bakbúks, niðjar Hakúfa, niðjar Harhúrs,54niðjar Baselíts, niðjar Mehída, niðjar Harsa,55niðjar Barkós, niðjar Sísera, niðjar Tema,56niðjar Nesía, niðjar Hatífa.57Niðjar þræla Salómons: Niðjar Sótaí, niðjar Sóferets, niðjar Perída,58niðjar Jaala, niðjar Darkóns, niðjar Giddels,59niðjar Sefatja, niðjar Hattils, niðjar Pókeret Hassebaíms, niðjar Amóns.60Allir musterisþjónarnir og niðjar þræla Salómons voru 392.61Og þessir eru þeir, sem fóru heim frá Tel Mela, Tel Harsa, Kerúb, Addón og Immer, en kunnu eigi að greina ætt sína og uppruna, hvort þeir væru komnir af Ísrael:62niðjar Delaja, niðjar Tobía, niðjar Nekóda: 642.63Og af prestunum: niðjar Hobaja, niðjar Hakkós, niðjar Barsillaí, er gengið hafði að eiga eina af dætrum Barsillaí Gíleaðíta og nefndur hafði verið nafni þeirra.64Þessir leituðu að ættartölum sínum, en þær fundust ekki. Var þeim því hrundið frá prestdómi.65Og landstjórinn sagði þeim, að þeir mættu ekki eta af hinu háheilaga, þar til er kæmi fram prestur, er kynni að fara með úrím og túmmím.66Allur söfnuðurinn var til samans 42.360,67auk þræla þeirra og ambátta, er voru 7.337. Þeir höfðu 245 söngvara og söngkonur.68Hestar þeirra voru 736, múlar 245,69úlfaldar 435, asnar 6.720.70Og nokkur hluti ætthöfðingjanna gaf til byggingarinnar. Landstjórinn gaf í sjóðinn: í gulli 1.000 daríka, 50 fórnarskálar og 530 prestserki.71Og sumir ætthöfðingjanna gáfu í byggingarsjóðinn: í gulli 20.000 daríka og í silfri 2.200 mínur.72Og það, sem hitt fólkið gaf, var: í gulli 20.000 daríkar og í silfri 2.000 mínur og 67 prestserkir.73Þannig tóku prestarnir og levítarnir og hliðverðirnir og söngvararnir og nokkrir af lýðnum og musterisþjónarnir og allur Ísrael sér bólfestu í borgum sínum. En er sjöundi mánuðurinn kom, voru Ísraelsmenn í borgum sínum.

7.7 Serúbabel og Jósúa Esr 2.2+