1Getur nokkur yðar, sem hefur sök móti öðrum, fengið af sér að leggja málið undir dóm heiðinna manna, en ekki hinna heilögu?2Eða vitið þér ekki, að hinir heilögu eiga að dæma heiminn? Og ef þér eigið að dæma heiminn, eruð þér þá óverðugir að dæma í hinum minnstu málum?3Vitið þér eigi, að vér eigum að dæma engla? Hvað þá heldur tímanleg efni!4Þegar þér eigið að dæma um tímanleg efni, þá kveðjið þér að dómurum menn, sem að engu eru hafðir í söfnuðinum.5Ég segi það yður til blygðunar. Er þá enginn vitur til á meðal yðar, sem skorið geti úr málum milli bræðra?6Í stað þess á bróðir í máli við bróður og það fyrir vantrúuðum!7Annars er það nú yfirleitt galli á yður, að þér eigið í málaferlum hver við annan. Hví líðið þér ekki heldur órétt? Hví látið þér ekki heldur hafa af yður?8Í stað þess hafið þér rangsleitni í frammi og hafið af öðrum og það af bræðrum!9Vitið þér ekki, að ranglátir munu ekki Guðs ríki erfa? Villist ekki! Hvorki munu saurlífismenn né skurðgoðadýrkendur, hórkarlar né kynvillingar,10þjófar né ásælnir, drykkjumenn, lastmálir né ræningjar Guðs ríki erfa.11Og þetta voruð þér, sumir yðar. En þér létuð laugast, þér eruð helgaðir, þér eruð réttlættir fyrir nafn Drottins Jesú Krists og fyrir anda vors Guðs.12Allt er mér leyfilegt, en ekki er allt gagnlegt. Allt er mér leyfilegt, en ég má ekki láta neitt fá vald yfir mér.13Maturinn er fyrir magann og maginn fyrir matinn, en Guð mun hvort tveggja að engu gjöra. En líkaminn er ekki fyrir saurlífi, heldur fyrir Drottin og Drottinn fyrir líkamann.14Guð hefur uppvakið Drottin og mun uppvekja oss fyrir kraft sinn.15Vitið þér ekki, að líkamir yðar eru limir Krists? Á ég þá að taka limi Krists og gjöra þá að skækjulimum? Fjarri fer því.16Vitið þér ekki, að sá er samlagar sig skækjunni verður ásamt henni einn líkami? Því að sagt er: Þau tvö munu verða eitt hold.17En sá er samlagar sig Drottni er einn andi ásamt honum.18Flýið saurlifnaðinn! Sérhver önnur synd, sem maðurinn drýgir, er fyrir utan líkama hans. En saurlífismaðurinn syndgar á móti eigin líkama.19Vitið þér ekki, að líkami yðar er musteri heilags anda, sem í yður er og þér hafið frá Guði? Og ekki eruð þér yðar eigin.20Þér eruð verði keyptir. Vegsamið því Guð með líkama yðar.

6.1 Hin heilögu Post 9.13+ ; Róm 1.7+
6.2 Heilagir dæma heiminn Dan 7.22; SSal 3.8; Opb 3.21
6.7 Líða heldur órétt Matt 5.39; 1Þess 5.15; 1Pét 3.9
6.9-10 Lestir Róm 1.29+
6.11 Laugast, réttlætt Tít 3.3-7
6.12 Leyfilegt en ekki gagnlegt Sír 37.28; 1Kor 10.23
6.13 Líkaminn Róm 6.12; 8.10-13,23; 12.1; 1Kor 7.4; 15.35; 2Kor 4.10; Fil 1.20; 3.21 o.fl. – Drottinn, herra og frelsari líkamans 1Þess 4.3-5
6.14 Mun uppvekja okkur Róm 8.11; 1Kor 15.15,20; 2Kor 4.14
6.15 Limir Krists Róm 12.5; 1Kor 12.27
6.16 Þau tvö … 1Mós 2.24; Matt 19.5
6.17 Einn andi ásamt Drottni Jóh 17.21-23; Róm 8.9-11; Gal 2.20
6.19 Musteri heilags anda 1Kor 3.16; 2Kor 6.16
6.20 Verði keypt 1Kor 7.23; 1Pét 1.18-19; sbr Róm 3.24