1Sál var þrítugur að aldri, þá er hann varð konungur, og ríkti í tvö ár yfir Ísrael.2Sál valdi sér þrjú þúsund manns af Ísrael. Af þeim voru tvö þúsund hjá Sál í Mikmas og á Betelfjöllum, en eitt þúsund hjá Jónatan í Gíbeu í Benjamín. Hitt liðið lét hann brott fara, hvern heim til sín.3Jónatan drap landstjóra Filista, sem sat í Geba, og Filistar fréttu það. Og Sál lét þeyta lúður um allt landið og sagði: Hebrear skulu heyra það.4Og allur Ísrael heyrði sagt: Sál hefir drepið landstjóra Filista, og Filistar hafa andstyggð á Ísrael. Og liðinu var stefnt saman til þess að fara með Sál til Gilgal.5Filistar söfnuðust saman til að berjast við Ísrael, þrjú þúsund vagnar og sex þúsund riddarar og fótgöngulið, svo margt sem sandur á sjávarströndu, og þeir lögðu af stað og settu herbúðir sínar í Mikmas fyrir austan Betaven.6Og er Ísraelsmenn sáu, að þeir voru komnir í kreppu, því að að þeim þrengdi, þá faldi liðið sig í hellum, jarðholum, klettaskorum, gjótum og gryfjum.7Nokkrir Hebreanna fóru yfir vöðin á Jórdan yfir í Gaðs land og Gíleaðs. Sál var enn í Gilgal, en allt liðið hafði flúið burt frá honum fyrir hræðslu sakir.8Og hann beið í sjö daga, til þess tíma, er Samúel hafði til tekið, en Samúel kom ekki til Gilgal, og fólkið dreifðist burt frá honum.9Þá sagði Sál: Færið mér hingað brennifórnina og heillafórnirnar. Og hann fórnaði brennifórninni.10En er hann hafði fórnað brennifórninni, sjá, þá kom Samúel. Og Sál gekk út á móti honum til þess að heilsa honum.11Og Samúel mælti: Hvað hefir þú gjört? Sál svaraði: Þegar ég sá, að liðið dreifðist burt frá mér og að þú komst ekki á tilteknum tíma, en Filistar söfnuðust saman í Mikmas,12þá hugsaði ég: Nú munu Filistar fara ofan á móti mér til Gilgal, áður en ég hefi blíðkað Drottin. Fyrir því herti ég upp hugann og fórnaði brennifórninni.13Þá sagði Samúel við Sál: Heimskulega hefir þér farið. Þú hefir ekki gætt skipunar Drottins, Guðs þíns, sem hann fyrir þig lagði, því að nú hefði Drottinn staðfest konungdóm þinn yfir Ísrael að eilífu.14En nú mun konungdómur þinn ekki standa. Drottinn hefir leitað sér að manni eftir sínu hjarta, og hann hefir Drottinn skipað höfðingja yfir lýð sinn, því að þú hefir ekki gætt þess, er Drottinn fyrir þig lagði.15Þá tók Samúel sig upp og fór frá Gilgal og hélt leiðar sinnar. En leifarnar af liðinu fóru á eftir Sál í móti herliðinu. Og er þeir voru komnir frá Gilgal til Gíbeu í Benjamín, þá kannaði Sál liðið, sem hjá honum var, um sex hundruð manns.16Sál og Jónatan sonur hans og liðið, sem með þeim var, sátu í Geba í Benjamín, en Filistar höfðu sett herbúðir sínar í Mikmas.17Ránssveit fór út úr herbúðum Filista í þrem hópum. Einn hópurinn stefndi veginn til Ofra inn í Sjúal-land,18annar hópurinn stefndi veginn til Bet Hóron, og þriðji hópurinn stefndi veginn til hæðarinnar, sem gnæfir yfir Sebóímdalinn gegnt eyðimörkinni.19Enginn járnsmiður var til í öllu Ísraelslandi, því að Filistar hugsuðu: Hebrear mega ekki smíða sverð eða spjót.20Ísraelsmenn urðu að fara ofan til Filista, ef þeir vildu láta hvessa plógjárn sín, haka, axir og sigðir.21Gjaldið var tveir þriðju úr sikli fyrir plógjárn og haka, og þriðjungur úr sikli fyrir gaffla og axir og fyrir að setja brodd á broddstaf.22Þannig hafði gjörvallt liðið, sem var með Sál og Jónatan, hvorki sverð né spjót í höndum orustudaginn, en Sál og Jónatan sonur hans höfðu það.23Varðflokkur Filista fór nú og settist í skarðið hjá Mikmas.

13.3 Þeyta hafurshorn 2Sam 2.28; 18.16
13.4 Hata 2Sam 10.6
13.5 Sem sandur 1Mós 22.17+
13.6 Herinn faldi sig 1Sam 14.11,22; Dóm 6.2
13.13 Heimskulega 2Sam 24.10
13.14 Sér að skapi Post 13.22 – skipað höfðingja 1Sam 25.30
13.19 Smíða vopn Jl 4.10; sbr Jes 2.4; Mík 4.3