1Margir hafa tekið sér fyrir hendur að rekja sögu þeirra viðburða, er gjörst hafa meðal vor,2samkvæmt því, sem oss hafa flutt þeir menn, er frá öndverðu voru sjónarvottar og þjónar orðsins.3Nú hef ég athugað kostgæfilega allt þetta frá upphafi og réð því einnig af að rita samfellda sögu fyrir þig, göfugi Þeófílus,4svo að þú megir ganga úr skugga um sannindi þeirra frásagna, sem þú hefur fræðst um.5Á dögum Heródesar, konungs í Júdeu, var uppi prestur nokkur að nafni Sakaría, af sveit Abía. Kona hans var og af ætt Arons og hét Elísabet.6Þau voru bæði réttlát fyrir Guði og lifðu vammlaus eftir öllum boðum og ákvæðum Drottins.7En þau áttu ekki barn, því að Elísabet var óbyrja, og bæði voru þau hnigin að aldri.8En svo bar við, er röðin kom að sveit hans og hann var að gegna þjónustu fyrir Guði,9að það féll í hans hlut, samkvæmt venju prestdómsins, að ganga inn í musteri Drottins og fórna reykelsi.10En allur fólksfjöldinn var fyrir utan á bæn, meðan reykelsisfórnin var færð.11Birtist honum þá engill Drottins, sem stóð hægra megin við reykelsisaltarið.12Sakaría varð hverft við sýn þessa, og ótta sló á hann.13En engillinn sagði við hann: Óttast þú eigi, Sakaría, því bæn þín er heyrð. Elísabet kona þín mun fæða þér son, og þú skalt láta hann heita Jóhannes.14Og þér mun veitast gleði og fögnuður, og margir munu gleðjast vegna fæðingar hans.15Því að hann mun verða mikill í augliti Drottins. Aldrei mun hann drekka vín né áfengan drykk, en fyllast heilögum anda þegar frá móðurlífi.16Og mörgum af Ísraels sonum mun hann snúa til Drottins, Guðs þeirra.17Og hann mun ganga fyrir honum í anda og krafti Elía til að snúa hjörtum feðra til barna og óhlýðnum til hugarfars réttlátra og búa Drottni altygjaðan lýð.18Sakaría sagði við engilinn: Af hverju get ég vitað þetta? Ég er gamall og kona mín hnigin að aldri.19En engillinn svaraði honum: Ég er Gabríel, sem stend frammi fyrir Guði, ég var sendur til að tala við þig og flytja þér þessa gleðifregn.20Og þú munt verða mállaus og ekki geta talað til þess dags, er þetta kemur fram, vegna þess að þú trúðir ekki orðum mínum, en þau munu rætast á sínum tíma.21Og fólkið beið eftir Sakaría og undraðist, hve honum dvaldist í musterinu.22En er hann kom út, gat hann ekki talað við þá, og skildu þeir, að hann hafði séð sýn í musterinu. Hann gaf þeim bendingar og var mállaus áfram.23Og er þjónustudagar hans voru liðnir, fór hann heim til sín.24En eftir þessa daga varð Elísabet kona hans þunguð, og hún leyndi sér í fimm mánuði og sagði:25Þannig hefur Drottinn gjört við mig, er hann leit til mín að afmá hneisu mína í augum manna.26En á sjötta mánuði var Gabríel engill sendur frá Guði til borgar í Galíleu, sem heitir Nasaret,27til meyjar, er var föstnuð manni, sem Jósef hét, af ætt Davíðs, en mærin hét María.28Og engillinn kom inn til hennar og sagði: Heil vert þú, sem nýtur náðar Guðs! Drottinn er með þér.29En hún varð hrædd við þessi orð og hugleiddi, hvílík þessi kveðja væri.30Og engillinn sagði við hana: Óttast þú eigi, María, því að þú hefur fundið náð hjá Guði.31Þú munt þunguð verða og son ala, og þú skalt láta hann heita JESÚ.32Hann mun verða mikill og kallaður sonur hins hæsta. Drottinn Guð mun gefa honum hásæti Davíðs föður hans,33og hann mun ríkja yfir ætt Jakobs að eilífu, og á ríki hans mun enginn endir verða.34Þá sagði María við engilinn: Hvernig má þetta verða, þar eð ég hef ekki karlmanns kennt?35Og engillinn sagði við hana: Heilagur andi mun koma yfir þig og kraftur hins hæsta mun yfirskyggja þig. Fyrir því mun og barnið verða kallað heilagt, sonur Guðs.36Elísabet, frændkona þín, er einnig orðin þunguð að syni í elli sinni, og þetta er sjötti mánuður hennar, sem kölluð var óbyrja,37en Guði er enginn hlutur um megn.38Þá sagði María: Sjá, ég er ambátt Drottins. Verði mér eftir orðum þínum. Og engillinn fór burt frá henni.39En á þeim dögum tók María sig upp og fór með flýti til borgar nokkurrar í fjallbyggðum Júda.40Hún kom inn í hús Sakaría og heilsaði Elísabetu.41Þá varð það, þegar Elísabet heyrði kveðju Maríu, að barnið tók viðbragð í lífi hennar, og Elísabet fylltist heilögum anda42og hrópaði hárri röddu: Blessuð ert þú meðal kvenna og blessaður ávöxtur lífs þíns.43Hvaðan kemur mér þetta, að móðir Drottins míns kemur til mín?44Þegar kveðja þín hljómaði í eyrum mér, tók barnið viðbragð af gleði í lífi mínu.45Sæl er hún, sem trúði því, að rætast mundi það, sem sagt var við hana frá Drottni.46Og María sagði: Önd mín miklar Drottin,47og andi minn gleðst í Guði, frelsara mínum.48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar, héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört, og heilagt er nafn hans.50Miskunn hans við þá, er óttast hann, varir frá kyni til kyns.51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.52Valdhöfum hefur hann steypt af stóli og upp hafið smælingja,53hungraða hefur hann fyllt gæðum, en látið ríka tómhenta frá sér fara.54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og tekið að sér Ísrael, þjón sinn,55eins og hann talaði til feðra vorra, við Abraham og niðja hans ævinlega.56En María dvaldist hjá henni hér um bil þrjá mánuði og sneri síðan heim til sín.57Nú kom sá tími, að Elísabet skyldi verða léttari, og ól hún son.58Og nágrannar hennar og ættmenn heyrðu, hversu mikla miskunn Drottinn hafði auðsýnt henni, og samfögnuðu henni.59Á áttunda degi komu þeir að umskera sveininn, og vildu þeir láta hann heita Sakaría í höfuðið á föður sínum.60Þá mælti móðir hans: Eigi skal hann svo heita, heldur Jóhannes.61En þeir sögðu við hana: Enginn er í ætt þinni, sem heitir því nafni.62Bentu þeir þá föður hans, að hann léti þá vita, hvað sveinninn skyldi heita.63Hann bað um spjald og reit: Jóhannes er nafn hans, og urðu þeir allir undrandi.64Jafnskjótt laukst upp munnur hans og tunga, og hann fór að tala og lofaði Guð.65En ótta sló á alla nágranna þeirra og þótti þessi atburður miklum tíðindum sæta í allri fjallbyggð Júdeu.66Og allir, sem þetta heyrðu, festu það í huga sér og sögðu: Hvað mun barn þetta verða? Því að hönd Drottins var með honum.67En Sakaría faðir hans fylltist heilögum anda og mælti af spámannlegri andagift:68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels, því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.69Hann hefur reist oss horn hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,70eins og hann talaði fyrir munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra, er hata oss.72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,73þess eiðs, er hann sór Abraham föður vorum74að hrífa oss úr höndum óvina og veita oss að þjóna sér óttalaust75í heilagleik og réttlæti fyrir augum hans alla daga vora.76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta, því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu, sem er fyrirgefning synda þeirra.78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur upp renna sól af hæðum að vitja vor79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans, og beina fótum vorum á friðar veg.80En sveinninn óx og varð þróttmikill í anda. Hann dvaldist í óbyggðum til þess dags, er hann skyldi koma fram fyrir Ísrael.

1.2 Sjónarvottar Jóh 15.27 – orðið Post 4.31; 6.2,7; 11.1
1.3 Þeófílus Post 1.1
1.5 Heródes Matt 2.1 – sveit Abía 1Kro 24.10
1.7 Óbyrja 1Mós 11.30; 25.21; 29.31; Dóm 13.2-3; 1Sam 1.5 – hnigin að aldri 1Mós 18.11
1.9 Fórna reykelsi 2Mós 30.7
1.10 Fólksfjöldinn Lúk 1.21,68,77; 2.10,32; 3.15,18,21 o.fl.
1.11 Reykelsisaltari 1Kon 6.20-21; 7.48
1.12 Varð hverft við Dóm 6.22; 13.20,22; Dan 8.17-18; 10.7-8,11,16; Tob 12.16 – ótti frammi fyrir 1) opinberun Lúk 2.9; 9.34 2) kraftaverki Lúk 1.65; 5.26; 7.16; 8.25,35,37; 24.5,37; Post 2.43 3) annarri íhlutun Guðs Post 5.5,11; 19.17
1.13 Óttast þú eigi Matt 28.5+ ; Mrk 16.6+ – hún mun fæða son 1Mós 17.19; Dóm 13.3,5; Jes 7.14
1.15 Aldrei vín né áfengan drykk 4Mós 6.3-4; Dóm 13.4,7,14; 1Sam 1.11; Lúk 7.33 – frá móðurlífi Dóm 13.5; 16.17; Jer 1.5; Jes 49.1,5; Gal 1.15; sbr Lúk 1.41-44
1.16 Snúa til Drottins Mal 2.6
1.17 Elía Matt 11.14+ – snúa hjörtum feðra … Mal 3.23-24; Sír 48.10 – búa Drottni altygjaðan lýð Mal 3.1; sbr Jes 40.3; Mrk 1.3; Lúk 1.76; 3.4
1.18 Mótbárur Sakaría 1Mós 18.11-12
1.19 Gabríel Dan 8.16; 9.21 – sendur Heb 1.14 – flytja gleðifregn Lúk 2.10; 3.18; 4.18,43
1.20 Þú trúðir ekki Lúk 1.45
1.25 Afmá hneisu mína 1Mós 30.23
1.26 Nasaret Jóh 1.46
1.27 Jósef og María Matt 1.16,18; Lúk 2.5
1.28 Drottinn er með þér 2Mós 3.12; Dóm 6.12; Jer 1.8,19; 15.20; sbr 1Mós 26.24; 28.15
1.31 Fæðing boðuð 1Mós 16.11; Dóm 13.5; Jes 7.14; Matt 1.21-23
1.32 Sonur Guðs 2Sam 7.14; Slm 2.7; 89.27 – hinn hæsti Mrk 5.7; Lúk 1.35,76; 6.35; 8.28; Post 7.48; 16.17; Heb 7.1 – hásæti Davíðs Jes 9.6; 2Sam 7.12,13,16
1.33 Ríkja að eilífu Mík 4.7; Dan 7.14
1.35 Heilagur andi Matt 1.20 – sonur Guðs Lúk 3.22; 4.3,9,34,41; 8.28; 9.35; 10.22; 22.70; Post 9.20,22; 22.70; sbr Matt 14.33+ ; Mrk 1.1+
1.37 Guði ekkert um megn 1Mós 18.14
1.38 Ambátt Drottins Rut 3.9; 1Sam 25.41
1.41 Fyllist heilögum anda Lúk 1.15
1.45 Sæl Matt 5.3+ – hún, sem trúði Lúk 1.20
1.46-55 Lofsöngur Maríu 1Sam 2.1-10
1.48 Í smæð hennar 1Sam 1.11
1.49 Heilagt er nafn hans Slm 111.9
1.50 Miskunn hans … Slm 103.13,17
1.51 Drembilátum tvístrað 2Sam 22.28
1.52 Valdhöfum steypt Job 12.19 – smælingjar upp hafnir Job 5.11
1.53 Umskipti 1Sam 2.5 – hungraðir mettaðir Slm 107.9
1.54 Tekið Ísrael að sér Slm 98.3 – þjónn hans, Ísrael Jes 41.8 – Guð minnist 1Mós 8.1; 9.15; 2Mós 2.24; Lúk 1.72
1.55 Abraham og niðjar hans Mík 7.20; 1Mós 17.7; 22.17
1.59 Umskurn á áttunda degi Lúk 2.21; sbr 1Mós 17.12; 3Mós 12.3; Fil 3.5
1.60 Hann skal heita Jóhannes Lúk 1.13
1.63 Undrun Lúk 8.25,56; 9.43; 11.14; Lúk 24.12,41; Post 2.7; 3.10
1.66 Hönd Drottins 1Kon 18.46; 2Kon 3.15; Esk 1.3; 3.14,22; 8.1; Slm 80.18; 139.5
1.68 Lofaður sé Drottinn Slm 41.14; 72.18; 106.48; 2Kor 1.3; Ef 1.3; 1Pét 1.3 – Guð vitjar 1Mós 21.1; 50.24-25; 2Mós 3.16; Jer 29.10; Slm 65.10; 80.15; 106.4; sbr 2Mós 32.34; Jes 10.12 o.fl.; Lúk 1.78; 7.16; 19.44; Post 15.14 – lausn Slm 111.9; 130.7-8; Jes 63.4; Lúk 2.38; 21.28; 24.21
1.69 Horn hjálpræðis Slm 18.3 – í húsi Davíðs Matt 1.1+
1.71 Frelsun frá óvinum Slm 106.10
1.72 Miskunn og sáttmáli Slm 106.45-46 – minnast sáttmálans Slm 105.8-9; 1Mós 17.7; 3Mós 26.42
1.73 Sór Abraham eið 1Mós 22.16-17
1.75 Í heilagleik og réttlæti Tít 2.12
1.76 Greiða vegu hans Jes 40.3; Mal 3.1; Matt 3.3
1.77 Fyrirgefning synda Matt 26.28+
1.78 Sól af hæðum að vitja vor Mal 3.20
1.79 Sitja í myrkri Jes 9.1; 58.8; 60.1-2; Matt 4.16 – friður Jes 9.5-6; Mík 5.4; Lúk 2.14,29; 7.50; 8.48; 10.5-6; 11.21; 19.38,42; 24.36
1.80 Sveinninn óx Lúk 2.40; sbr 1Mós 21.8,20; Dóm 13.24-25; 1Sam 2.21,26; 3.19 – í óbyggðum Matt 3.1+ ; Lúk 3.2,4; Lúk 7.24