1Elísa spámaður kallaði einn af spámannasveinunum og sagði við hann: Gyrð þú lendar þínar, tak þessa flösku af olífuolíu með þér og far til Ramót í Gíleað.2Og er þú ert þangað kominn, skalt þú svipast þar um eftir Jehú Jósafatssyni, Nimsísonar. Gakk síðan til hans og bið hann standa upp frá félögum sínum og far með hann inn í innsta herbergið.3Því næst skalt þú hella olífuolíunni yfir höfuð honum og segja: Svo segir Drottinn: Ég smyr þig til konungs yfir Ísrael. Opna þú síðan dyrnar og flýt þér burt og dvel eigi.4Fór þá sveinninn, sveinn spámannsins, til Ramót í Gíleað.5En er hann kom þangað, sátu herforingjarnir þar saman. Og hann mælti: Ég á erindi við þig, herforingi! Jehú svaraði: Við hvern af oss? Hann svaraði: Við þig, herforingi!6Þá stóð hann upp og gekk inn í húsið. Og hann hellti olíu yfir höfuð honum og sagði við hann: Svo segir Drottinn, Ísraels Guð: Ég smyr þig til konungs yfir lýð Drottins, yfir Ísrael.7Þú skalt útrýma ætt Akabs, herra þíns, svo að ég fái þann veg komið fram hefndum á Jesebel fyrir blóð þjóna minna, spámannanna, og fyrir blóð allra þjóna Drottins.8Já, öll ætt Akabs skal fyrirfarast, og ég mun uppræta fyrir Akabsætt hvern karlmann, bæði þræl og frelsingja í Ísrael.9Og ég mun fara með ætt Akabs eins og með ætt Jeróbóams Nebatssonar og ætt Basa Ahíasonar.10En Jesebel skulu hundar eta í landareign Jesreelborgar, og enginn skal jarða hana. Síðan lauk hann upp hurðinni og flýtti sér burt.11En er Jehú kom út til þjóna herra síns, sögðu þeir við hann: Er nokkuð að? Hvers vegna er þessi vitfirringur til þín kominn? Hann svaraði þeim: Þér þekkið manninn og tal hans.12Þá sögðu þeir: Það er ósatt mál! Seg oss það. Þá sagði hann: Svo og svo hefir hann við mig talað og sagt: Svo segir Drottinn: Ég smyr þig til konungs yfir Ísrael.13Þá tóku þeir í skyndi hver sína yfirhöfn og lögðu fyrir fætur honum á sjálfar tröppurnar, þeyttu lúðurinn og hrópuðu: Jehú er konungur orðinn!14Þannig hóf Jehú Jósafatsson, Nimsísonar, samsæri gegn Jóram, en Jóram og allur Ísrael hafði varið Ramót í Gíleað fyrir Hasael Sýrlandskonungi.15En síðan hafði Jóram konungur snúið aftur til þess að láta græða sár sín í Jesreel, þau er Sýrlendingar höfðu veitt honum, þá er hann barðist við Hasael Sýrlandskonung. Jehú mælti: Ef þér viljið fylgja mér, þá látið engan undan komast út úr borginni til þess að segja tíðindin í Jesreel.16Síðan steig Jehú á vagn sinn og hélt til Jesreel, því að þar lá Jóram, og Ahasía Júdakonungur var kominn þangað til að vitja um Jóram.17Varðmaður stóð uppi á turninum í Jesreel, og er hann sá flokk Jehú koma, sagði hann: Ég sé flokk manna. Þá mælti Jóram: Tak riddara og send móti þeim til þess að spyrja þá, hvort þeir fari með friði.18Riddarinn fór í móti honum og sagði: Konungur lætur spyrja, hvort þér farið með friði. Jehú svaraði: Hvað varðar þig um það? Snú við og fylg mér. Varðmaðurinn sagði frá því og mælti: Sendimaðurinn er kominn til þeirra, en kemur ekki aftur.19Þá sendi hann annan riddara, og er hann kom til þeirra, sagði hann: Konungur lætur spyrja, hvort þér farið með friði. Jehú svaraði: Hvað varðar þig um það? Snú við og fylg mér.20Varðmaðurinn sagði frá því og mælti: Hann er kominn til þeirra, en kemur ekki aftur. Er þar ekið, sem aki þar Jehú Nimsíson, því að hann ekur eins og vitlaus maður.21Þá bauð Jóram að beita fyrir vagn sinn. Og er beitt hafði verið fyrir vagn hans, fóru þeir Jóram Ísraelskonungur og Ahasía Júdakonungur af stað, hvor á sínum vagni. Fóru þeir í móti Jehú og hittu hann á landspildu Nabóts Jesreelíta.22En er Jóram sá Jehú, sagði hann: Fer þú með friði, Jehú? Hann svaraði: Hvað er um frið að ræða, meðan Jesebel móðir þín heldur áfram með hórdóm sinn og hina margvíslegu töfra sína?23Þá sneri Jóram við og lagði á flótta og kallaði til Ahasía: Svik, Ahasía!24En Jehú þreif boga sinn og skaut Jóram milli herða, svo að örin gekk í gegnum hjartað, og hné hann niður í vagni sínum.25Þá sagði hann við Bídkar, riddara sinn: Tak hann og kasta honum á landspildu Nabóts Jesreelíta, því að þú manst víst, að ég og þú riðum báðir á eftir Akab föður hans, þá er Drottinn kvað upp þessi dómsorð gegn honum:26Sannarlega sá ég í gær blóð Nabóts og blóð barna hans, segir Drottinn, og mun ég launa þér á landspildu þessari, segir Drottinn. Tak hann því og kasta honum á landspilduna eftir orði Drottins.27Þegar Ahasía Júdakonungur sá þetta, flýði hann í áttina til garðhússins. En Jehú elti hann og sagði: Hann líka! Skjótið hann í vagninum! Og þeir skutu hann á Gúr-stígnum, sem er hjá Jibleam. Og hann flýði til Megiddó og dó þar.28Síðan settu menn hans hann á vagn og fluttu hann til Jerúsalem og jörðuðu hann í gröf hans hjá feðrum hans í borg Davíðs.29En Ahasía hafði orðið konungur í Júda á ellefta ríkisári Jórams Akabssonar.30Nú kom Jehú til Jesreel. En er Jesebel frétti það, smurði hún sig í kringum augun skrýddi höfuð sitt og horfði út um gluggann.31Og er Jehú kom í hliðið, kallaði hún: Hvernig líður Simrí, sem myrti herra sinn?32En hann leit upp í gluggann og mælti: Hver er með mér, hver? Og er tveir eða þrír hirðmenn litu út til hans,33sagði hann: Kastið henni ofan! Og þeir köstuðu henni ofan, og slettist þá blóð hennar á vegginn og hestana, og tróðu þeir hana undir fótunum.34En hann gekk inn og át og drakk. Síðan sagði hann: Lítið eftir þessari bölvuðu konu og jarðið hana, því að konungsdóttir er hún.35Þá fóru þeir til þess að jarða hana, en fundu ekkert af henni, nema hauskúpuna og fætur og hendur.36Og er þeir komu aftur og sögðu honum frá, mælti hann: Rætast nú orð Drottins, þau er hann talaði fyrir munn þjóns síns Elía frá Tisbe: Á landareign Jesreelborgar skulu hundar eta hold Jesebelar,37og hræ Jesebelar skal liggja á landareign Jesreelborgar sem tað á túni, svo að menn skulu ekki geta sagt: Það er Jesebel.

9.3 Konungur yfir Ísrael 1Kon 19.16; sbr 1Kon 1.34,39
9.7 Guð hefnir fyrir glæpi 1Kon 18.4; 19.2; 21.8-10
9.8 Ógæfa yfir konungættinni 1Kon 14.10+
9.10 Hundar eta Jesebel 1Kon 21.23+
9.11 Vitfirringur Jer 29.26; Hós 9.7
9.13 Breiða út klæði sbr Matt 21.7-8 og hlst. – lifi konungurinn 1Kon 1.39+
9.15 Sár Jórams 2Kon 8.29
9.17 Vörður 2Sam 13.34; 18.24-27; Jes 21.6-8; Esk 3.17
9.28 Í borg feðra sinna 2Kon 14.20; 23.30; 1Kon 22.37
9.33 Traðka á Jes 14.25; Mík 7.10; Mal 3.21, Slm 18.43; 1Makk 3.45; Lúk 21.24; Opb 11.2
9.37 Sem tað Jer 8.2