1Það er mér sagt að saurlifnaður eigi sér stað á meðal yðar, og það slíkur saurlifnaður, sem jafnvel gerist ekki meðal heiðingja, að maður heldur við konu föður síns.2Og svo eruð þér stærilátir, í stað þess að hryggjast og gjöra gangskör að því, að manninum, sem þetta hefur drýgt, yrði útrýmt úr félagi yðar!3Ég fyrir mitt leyti, fjarlægur að líkamanum til, en nálægur að andanum, hef þegar, eins og ég væri nálægur, kveðið upp dóm í nafni Drottins vors Jesú yfir manni þeim, sem þetta hefur drýgt:4Þegar þér og minn andi eruð saman komnir með krafti Drottins vors Jesú,5skal selja slíkan mann Satan á vald til tortímingar holdinu, til þess að andinn megi hólpinn verða á degi Drottins Jesú.6Ekki hafið þér ástæðu til að stæra yður! Vitið þér ekki, að lítið súrdeig sýrir allt deigið?7Hreinsið burt gamla súrdeigið, til þess að þér séuð nýtt deig, enda eruð þér ósýrðir. Því að páskalambi voru er slátrað, sem er Kristur.8Höldum því hátíð, ekki með gömlu súrdeigi né með súrdeigi illsku og vonsku, heldur með ósýrðum brauðum hreinleikans og sannleikans.9Ég ritaði yður í bréfinu, að þér skylduð ekki umgangast saurlífismenn.10Átti ég þar ekki við saurlífismenn þessa heims yfirleitt, ásælna og ræningja eða hjáguðadýrkendur, því að þá hefðuð þér orðið að fara út úr heiminum.11En nú rita ég yður, að þér skuluð ekki umgangast nokkurn þann, er nefnir sig bróður, en er saurlífismaður eða ásælinn, skurðgoðadýrkari eða lastmáll, ofdrykkjumaður eða ræningi. Þér skuluð jafnvel ekki sitja að borði með slíkum manni.12Hvað skyldi ég vera að dæma þá, sem fyrir utan eru? Dæmið þér ekki þá, sem fyrir innan eru?13Og mun ekki Guð dæma þá, sem fyrir utan eru? Útrýmið hinum vonda úr yðar hópi.

5.1 Saurlifnaður 3Mós 18.7-8; 5Mós 22.30; 27.20
5.3 Fjarlægur, nálægur Kól 2.5
5.4 Ásamt krafti Drottins Matt 16.19; 18.18; 2Kor 13.10
5.5 Selja Satan á vald 1Tím 1.20 – hólpinn 1Pét 4.6
5.6 Lítið súrdeig Gal 5.9
5.7 Gamla súrdegið burt 2Mós 13.7; sbr Matt 16.6 og hlst. – slátrað 2Mós 12.21; Jes 53.7; 1Pét 1.19
5.8 Höldum hátíð 2Mós 12.3-20; 5Mós 16.3
5.9 Ekki umgangast sbr Matt 18.17; 2Þess 3.14
5.11 Bróðir Post 1.15+ – halda sér frá 2Þess 3.6; Tít 3.10; 2Jóh 10
5.12 Eru utan Mrk 4.11+
5.13 Útrýmið hinum vonda … 5Mós 17.7; 19.19; 22.21; 24.7