1Til söngstjórans. Með hljóðpípu. Davíðssálmur.2Heyr orð mín, Drottinn, gef gaum að andvörpum mínum.3Hlýð þú á kveinstafi mína, konungur minn og Guð minn, því að til þín bið ég.4Drottinn, á morgnana heyrir þú rödd mína, á morgnana legg ég bæn mína fram fyrir þig, og ég bíð þín.5Þú ert eigi sá Guð, er óguðlegt athæfi líki, hinir vondu fá eigi að dveljast hjá þér.6Hinir hrokafullu fá eigi staðist fyrir þér, þú hatar alla er illt gjöra.7Þú tortímir þeim, sem lygar mæla, á blóðvörgum og svikurum hefir Drottinn andstyggð.8En ég fæ að ganga í hús þitt fyrir mikla miskunn þína, fæ að falla fram fyrir þínu heilaga musteri í ótta frammi fyrir þér.9Drottinn, leið mig eftir réttlæti þínu sakir óvina minna, gjör sléttan veg þinn fyrir mér.10Einlægni er ekki til í munni þeirra, hjarta þeirra er glötunardjúp. Kok þeirra er opin gröf, með tungu sinni hræsna þeir.11Dæm þá seka, Guð, falli þeir sakir ráðagjörða sinna, hrind þeim burt sakir hinna mörgu afbrota þeirra, því að þeir storka þér.12Allir kætast, er treysta þér, þeir fagna að eilífu, því að þú verndar þá. Þeir sem elska nafn þitt gleðjast yfir þér.13Því að þú, Drottinn, blessar hinn réttláta, hlífir honum með náð þinni eins og með skildi.

5.2 Heyr Slm 17.1; 86.6, sbr 71.2+
5.3 Heyr þú (gef gaum að) Slm 34.16; 61.2; 66.19; 86.6; 102.18; 130.2; 142.7 – konungur minn og Guð Slm 68.25; 74.12; 84.4: 145.1
5.5 Leita skjóls hjá Guði Slm 15
5.8 Ganga í Guðs hús Slm 66.13; 100.4; sbr 42.3 – falla fram Slm 138.2; 1Kon 8.44,48; sbr Dan 6.11
5.9 Leið mig Slm 25.5; 27.11; 61.4; 119.35; 139.24 – gjör sléttan veg þinn Jes 45.13; Okv 3.6; 11.5
5.10 Í munni hins guðlausa Slm 10.7; 36.4 – kok þeirra … Róm 3.13 – illkvittin tunga Slm 10.7; 12.3-5; 31.21; 50.19; 52.4; 55.22, 64.4; 109.2; 120.2-3; 140.4; Jer 9.3,7; Jak 3.6
5.12 Allir gleðjast Slm 64.11 – elska nafn þitt Slm 69.37; 119.132