1Helgigönguljóð. Til þín hef ég augu mín, þú sem situr á himnum.2Eins og augu þjónanna mæna á hönd húsbónda síns, eins og augu ambáttarinnar mæna á hönd húsmóður sinnar, svo mæna augu vor á Drottin, Guð vorn, uns hann líknar oss.3Líkna oss, Drottinn, líkna oss, því að vér höfum fengið meira en nóg af spotti.4Sál vor hefir fengið meira en nóg af háði hrokafullra, af spotti dramblátra.

123.1 Hefja augu sín Slm 121.1 – Drottinn situr á himnum Slm 103.19; 115.3; Jes 40.22; 2Makk 3.39; Matt 5.34; 6.9
123.2 Hafa augun á Drottni Slm 25.15; 141.8 – uns hann líknar Slm 69.4
123.3 Nóg af spotti Slm 44.14-17; Neh 3.36
123.4 Dramblátir Okv 16.18; 18.12