1Að endingu biðjum vér yður, bræður, og áminnum í Drottni Jesú. Þér hafið numið af oss, hvernig yður ber að breyta og þóknast Guði, og þannig breytið þér líka. En takið enn meiri framförum.2Þér vitið, hver boðorð vér gáfum yður frá Drottni Jesú.3Það er vilji Guðs, að þér verðið heilagir. Hann vill, að þér haldið yður frá frillulífi,4að sérhver yðar hafi vit á að halda líkama sínum í helgun og heiðri,5en ekki í losta, eins og heiðingjarnir, er ekki þekkja Guð.6Og enginn skyldi gjöra bróður sínum rangt til né blekkja hann í slíkum sökum. Því að Drottinn hegnir fyrir allt þvílíkt, eins og vér höfum áður sagt yður og brýnt fyrir yður.7Ekki kallaði Guð oss til saurlifnaðar, heldur helgunar.8Sá, sem fyrirlítur þetta, fyrirlítur þess vegna ekki mann, heldur Guð, sem hefur gefið yður sinn heilaga anda.9En ekki hafið þér þess þörf, að ég skrifi yður um bróðurkærleikann, því Guð hefur sjálfur kennt yður að elska hver annan.10Það gjörið þér einnig öllum bræðrum í allri Makedóníu. En vér áminnum yður, bræður, að taka enn meiri framförum.11Leitið sæmdar í því að lifa kyrrlátu lífi og stunda hver sitt starf og vinna með höndum yðar, eins og vér höfum boðið yður.12Þannig hegðið þér yður með sóma gagnvart þeim, sem fyrir utan eru, og eruð upp á engan komnir.13Ekki viljum vér, bræður, láta yður vera ókunnugt um þá, sem sofnaðir eru, til þess að þér séuð ekki hryggir eins og hinir, sem ekki hafa von.14Því að ef vér trúum því að Jesús sé dáinn og upprisinn, þá mun Guð fyrir Jesú leiða ásamt honum fram þá, sem sofnaðir eru.15Því að það segjum vér yður, og það er orð Drottins, að vér, sem verðum eftir á lífi við komu Drottins, munum alls ekki fyrri verða en hinir sofnuðu.16Því að sjálfur Drottinn mun stíga niður af himni með kalli, með höfuðengils raust og með básúnu Guðs, og þeir, sem dánir eru í trú á Krist, munu fyrst upp rísa.17Síðan munum vér, sem eftir lifum, verða ásamt þeim hrifnir burt í skýjum til fundar við Drottin í loftinu. Og síðan munum vér vera með Drottni alla tíma.18Uppörvið því hver annan með þessum orðum.

4.1 Numið af mér 2Þess 3.6
4.2 Boðorð frá Drottni Jesú 1Þess 4.15
4.3 Verða heilög 3Mós 19.2; Róm 6.19; Ef 1.4; 1Þess 5.23; Heb 10.10; 1Pét 1.16 – óskírlífi 1Kor 6.12-20
4.4 Halda líkama sínum í helgun og heiðri 1Kor 6.13,15 – hjúskaparlíf í heilagleik og heiðri Heb 13.4; 1Kor 7.2
4.5 Heiðingjarnir, er ekki þekkja Guð Slm 79.6; Jer 10.25
4.6 Drottinn hegnir 5Mós 32.35; Slm 94.1; Sír 5.3
4.7 Til helgunar 2Þess 2.13-14; 1Pét 1.15-16
4.8 Sá sem lítilsvirðir þetta Lúk 10.16 – Guð gefur ykkur heilagan anda Esk 36.27; 37.14; Róm 5.5; 2Kor 1.22; Gal 4.6; 1Jóh 3.24
4.9 Bróðurkærleikur Jóh 13.34; 15.12-14 – Guð sjálfur kennir ykkur Jer 31.33-34
4.10 Þið líka 2Þess 3.4 – Makedónía 2Kor 1.16 – taka enn meiri framförum 1Þess 3.12
4.11-12 Upp á engan komin 1Þess 2.9+ ; Ef 4.28+
4.12 Þeir sem fyrir utan eru 1Kor 5.12-13; Kól 4.5; sbr Mrk 4.11
4.13 Ekki eiga von Ef 2.12
4.14 Dáinn og upprisinn Mrk 9.31; Post 2.24; Róm 14.9; 1Kor 15.3-4,12
4.15 Orð Drottins Matt 16.27; 24.30; 1Kor 7.10-25; 1Þess 4.2 – á lífi við komu Drottins 1Kor 15.51
4.16 Mun stíga niður af himni 1Þess 1.10; 2Þess 1.7 – básúna 1Kor 15.52
4.17 Með Drottni Jóh 12.26; 17.24; Fil 1.23+
4.18 Uppörvið hvert annað 1Þess 5.11