1Menn fluttu Davíð þessi tíðindi: Sjá, Filistar herja á Kegílu og ræna kornláfana.2Þá gekk Davíð til frétta við Drottin og sagði: Á ég að fara og herja á þessa Filista? Drottinn sagði við Davíð: Far þú og herja á Filistana og frelsaðu Kegílu.3En menn Davíðs sögðu við hann: Sjá, vér erum hræddir um oss hér í Júda, hvað mun þá, ef vér förum til Kegílu á móti herfylkingum Filista?4Þá gekk Davíð enn til frétta við Drottin, og Drottinn svaraði honum og sagði: Tak þig upp og far til Kegílu, því að ég mun gefa Filista í hendur þér.5Síðan fór Davíð og menn hans til Kegílu, og hann herjaði á Filista, rak fénað þeirra burt og lagði fjölda þeirra að velli. Þannig frelsaði Davíð þá, sem bjuggu í Kegílu.6Þegar Abjatar Ahímeleksson flýði til Davíðs, þá hafði hann með sér hökul.7Sál var sagt frá því, að Davíð væri kominn til Kegílu. Þá mælti Sál: Guð hefir selt hann mér á vald, því að hann hefir sjálfur byrgt sig inni með því að fara inn í borg með hliðum og slagbröndum.8Og Sál stefndi öllum lýðnum saman til hernaðar til þess að fara til Kegílu og gjöra umsát um Davíð og menn hans.9Þegar Davíð frétti, að Sál sæti á svikráðum við sig, sagði hann við Abjatar prest: Kom þú hingað með hökulinn.10Og Davíð mælti: Drottinn, Ísraels Guð! Þjónn þinn hefir sannspurt, að Sál ætli sér að koma til Kegílu til þess að eyða borgina mín vegna.11Hvort munu Kegílubúar framselja mig í hendur honum? Mun Sál koma hingað, eins og þjónn þinn hefir spurt? Drottinn, Ísraels Guð! Gjör það kunnugt þjóni þínum. Drottinn svaraði: Já, hann mun koma.12Þá mælti Davíð: Hvort munu Kegílubúar framselja mig og menn mína í hendur Sál? Drottinn svaraði: Já, það munu þeir gjöra.13Þá tók Davíð sig upp og hans menn, um sex hundruð manns, og þeir lögðu af stað frá Kegílu og sveimuðu víðsvegar. En er Sál frétti, að Davíð hefði forðað sér burt frá Kegílu, þá hætti hann við herförina.14Davíð hafðist við í eyðimörkinni uppi í fjallvígjum, og hann hafðist við á fjöllunum í Sífeyðimörku. Og Sál leitaði hans alla daga, en Guð gaf hann ekki í hendur honum.15Davíð varð hræddur, þegar Sál lagði af stað til þess að sækjast eftir lífi hans. Davíð var þá í Hóres í Sífeyðimörku.16Og Jónatan, sonur Sáls, tók sig upp og fór á fund Davíðs í Hóres og hughreysti hann í nafni Guðs17og sagði við hann: Óttast þú ekki, því að Sál faðir minn mun eigi hendur á þér festa, en þú munt verða konungur yfir Ísrael, og mun ég þá ganga þér næstur. Sál faðir minn veit og þetta.18Og þeir gjörðu báðir sáttmála fyrir augliti Drottins. Og Davíð var kyrr í Hóres, en Jónatan fór heim til sín.19Þá komu Sífítar til Sáls í Gíbeu og sögðu: Veistu að Davíð felur sig hjá oss í fjallvígjunum í Hóres, í Hahakílahæðunum, sunnarlega í Júdaóbyggðum?20Og ef þig nú fýsir, konungur, að koma þangað, þá kom þú. Vort hlutverk verður það þá að framselja hann í hendur konungi.21Sál mælti: Blessaðir séuð þér af Drottni, fyrir það að þér kennduð í brjósti um mig.22Farið nú og takið enn vel eftir og kynnið yður og komist sem fyrst að raun um, hvar hann heldur sig, því að mér hefir verið sagt, að hann sé slægur mjög.23Og njósnið nú og kynnið yður öll þau fylgsni, er hann kann að felast í, og færið mér síðan örugga fregn af, og mun ég þá með yður fara. Og ef hann er í landinu, þá skal ég leita hann uppi meðal allra Júda þúsunda.24Þá tóku þeir sig upp og fóru á undan Sál til Síf. Davíð var þá með mönnum sínum í Maoneyðimörk, á sléttlendinu syðst í Júdaóbyggðum.25Og Sál fór að leita hans með mönnum sínum. Sögðu menn Davíð frá því, og fór hann þá niður að hamrinum, sem er í Maoneyðimörk. Og er Sál heyrði það, veitti hann Davíð eftirför inn í Maoneyðimörk.26Sál og menn hans fóru öðrumegin við fjallið, en Davíð og hans menn hinumegin við það. Davíð flýtti sér nú í angist að komast undan Sál, en Sál og menn hans voru að því komnir að umkringja Davíð og menn hans og taka þá höndum.27En þá kom sendimaður til Sáls og mælti: Kom þú nú skjótt, því að Filistar hafa brotist inn í landið.28Þá hvarf Sál aftur og lét af að elta Davíð, en sneri í móti Filistum. Fyrir því var sá staður nefndur Aðskilnaðarklettur.29Davíð fór þaðan og hafðist við uppi í fjallvígjum við Engedí.

23.4 Í hendur þér 1Sam 14.10-12; 2Sam 5.19
23.6 Flýði til Davíðs 1Sam 22.20-23
23.8 Kvaddi allan herinn 1Sam 15.4
23.18 Sáttmáli 1Sam 18.3
23.19 Menn frá Síf 1Sam 26.1; Slm 54.2
23.21 Standa með mér 1Sam 22.8
23.26-28 Sál hættir eftirförinni 2Kon 7.6-7; 19.8-9