1Vínið er spottari, sterkur drykkur glaumsamur, og hver sá, er drukkinn reikar, er óvitur.2Konungsreiði er eins og ljónsöskur, sá sem egnir hann á móti sér, fyrirgjörir lífi sínu.3Það er manni sómi að halda sér frá þrætu, en hver afglapinn ygglir sig.4Letinginn plægir ekki á haustin, fyrir því leitar hann um uppskerutímann og grípur í tómt.5Ráðin í hjarta mannsins eru sem djúp vötn, og hygginn maður eys þar af.6Margir menn eru kallaðir kærleiksríkir, en tryggan vin, hver finnur hann?7Réttlátur maður gengur fram í ráðvendni sinni, sæl eru því börn hans eftir hann.8Þegar konungur situr á dómstóli, þá skilur hann allt illt úr með augnaráði sínu.9Hver getur sagt: Ég hefi haldið hjarta mínu hreinu, ég er hreinn af synd?10Tvenns konar vog og tvenns konar mál, það er hvort tveggja Drottni andstyggð.11Sveinninn þekkist þegar á verkum sínum, hvort athafnir hans eru hreinar og einlægar.12Eyrað sem heyrir, og augað sem sér, hvort tveggja hefir Drottinn skapað.13Elskaðu ekki svefninn, svo að þú verðir ekki fátækur, opnaðu augun, þá muntu mettast af brauði.14Slæmt! Slæmt! segir kaupandinn, en þegar hann gengur burt, hælist hann um.15Til er gull og gnægð af perlum, en hið dýrmætasta þing eru vitrar varir.16Tak þú skikkjuna af þeim manni, sem hefir gengið í ábyrgð fyrir ókunnugan, tak veð af þeim manni, sem hefir gengið í ábyrgð fyrir útlendinga.17Sætt er svikabrauðið, en eftir á fyllist munnurinn möl.18Vel ráðin áform fá framgang, haf því holl ráð, er þú heyr stríð.19Sá sem ljóstar upp leyndarmálum, gengur um sem rógberi, haf því engin mök við málugan mann.20Sá sem formælir föður og móður, á hans lampa slokknar í niðamyrkri.21Arfur, sem í upphafi var skjótfenginn, blessast eigi að lokum.22Seg þú ekki: Ég vil endurgjalda illt! Bíð þú Drottins, og hann mun hjálpa þér.23Tvenns konar vog er Drottni andstyggð, og svikavog er ekki góð.24Spor mannsins eru ákveðin af Drottni, en maðurinn hvernig fær hann skynjað veg sinn?25Það er manninum snara að hrópa í fljótfærni: Helgað! og hyggja fyrst að, þegar heitin eru gjörð.26Vitur konungur skilur úr hina óguðlegu og lætur síðan hjólið yfir þá ganga.27Andi mannsins er lampi frá Drottni, sem rannsakar hvern afkima hjartans.28Kærleiki og trúfesti varðveita konunginn, og hann styður hásæti sitt með kærleika.29Krafturinn er ágæti ungra manna, en hærurnar prýði öldunganna.30Blóðugar skrámur hreinsa illmennið og högg, sem duglega svíða.

20.1 Öl er böl Okv 21.17; 23.20-21,29-35; 31.4-5
20.4 Letinginn Okv 6.11+
20.8 Konungur og réttlæti Okv 16.10+
20.9 Hreinn af synd Préd 7.20+
20.10 Tvenns konar vog Okv 11.1+ – Drottni andstyggð Okv 3.32+
20.12 Drottinn hefur skapað Slm 94.9
20.16 Ábyrgð Okv 6.1-5+
20.20 Formæla föður og móður 2Mós 21.17+
20.25 Efna heit Préd 5.3-5+
20.27 Andi mannsins Job 32.8; 1Kor 2.11
20.28 Styrkir hásæti sitt Okv 29.14+