1Þér skuluð eigi gjöra yður falsguði, né heldur reisa yður skurðgoð eða merkissteina, og eigi setja upp myndasteina í landi yðar til þess að tilbiðja hjá þeim, því að ég er Drottinn, Guð yðar.2Mína hvíldardaga skuluð þér halda og fyrir mínum helgidómi lotningu bera. Ég er Drottinn.3Ef þér breytið eftir mínum setningum og varðveitið mínar skipanir og haldið þær,4þá skal ég jafnan senda yður regn á réttum tíma, og landið mun gefa ávöxt sinn og trén á mörkinni bera aldin sín.5Skal þá ná saman hjá yður þresking og vínberjatekja, og vínberjatekja og sáning, og þér skuluð eta yður sadda af brauði og búa öruggir í landi yðar.6Ég vil gefa frið í landinu, og þér skuluð leggjast til hvíldar og enginn skal hræða yður. Óargadýrum vil ég eyða úr landinu, og sverð skal ekki fara um land yðar.7Og þér skuluð elta óvini yðar, og frammi fyrir yður skulu þeir fyrir sverði hníga.8Og fimm af yður skulu elta hundrað, og hundrað af yður skulu elta tíu þúsundir, og óvinir yðar skulu frammi fyrir yður fyrir sverði hníga.9Ég vil snúa mér til yðar og gjöra yður frjósama og margfalda yður, og ég vil gjöra sáttmála minn við yður.10Og þér munuð eta fyrnt korn, gamlan forða, og þér munuð bera fyrnda kornið út fyrir hinu nýja.11Og ég mun reisa búð mína meðal yðar, og sál mín skal ekki hafa óbeit á yður.12Og ég mun ganga meðal yðar og vera Guð yðar, og þér skuluð vera mín þjóð.13Ég er Drottinn, Guð yðar, sem leiddi yður út af Egyptalandi, til þess að þér væruð eigi þrælar þeirra. Ég braut sundur ok-stengur yðar og lét yður ganga beina.14En ef þér hlýðið mér ekki og haldið ekki allar þessar skipanir,15og ef þér hafnið setningum mínum og sál yðar hefir óbeit á dómum mínum, svo að þér haldið ekki allar skipanir mínar, en rjúfið sáttmála minn,16þá vil ég gjöra yður þetta: Ég vil vitja yðar með skelfingu, tæringu og köldu, svo að augun slokkna og lífið fjarar út. Og þér skuluð sá sæði yðar til einskis, því að óvinir yðar skulu eta það.17Og ég vil snúa augliti mínu gegn yður, og þér skuluð bíða ósigur fyrir óvinum yðar, og fjandmenn yðar skulu drottna yfir yður, og þér skuluð flýja, þótt enginn elti yður.18En ef þér viljið þá enn ekki hlýða mér, þá vil ég enn refsa yður sjö sinnum fyrir syndir yðar.19Og ég vil brjóta ofurdramb yðar, og ég vil gjöra himininn yfir yður sem járn og land yðar sem eir.20Þá mun kraftur yðar eyðast til ónýtis, land yðar skal eigi gefa ávöxt sinn og trén á jörðinni eigi bera aldin sín.21Og ef þér gangið í gegn mér og viljið ekki hlýða mér, þá vil ég enn slá yður sjö sinnum, eins og syndir yðar eru til.22Og ég vil hleypa dýrum merkurinnar inn á meðal yðar, og þau skulu gjöra yður barnlausa, drepa fénað yðar og gjöra yður fámenna, og vegir yðar skulu verða auðir.23Og ef þér skipist ekki við þessa tyftun mína, heldur gangið í gegn mér,24þá vil ég einnig ganga gegn yður, þá vil ég einnig slá yður sjö sinnum fyrir syndir yðar.25Og ég vil láta sverð koma yfir yður, er hefna skal sáttmálans. Munuð þér þá þyrpast inn í borgir yðar, en ég vil senda drepsótt meðal yðar, og þér skuluð seldir í óvina hendur.26Þá er ég brýt staf brauðsins fyrir yður, munu tíu konur baka yður brauð í einum ofni og færa yður brauðið aftur eftir vigt, og þér munuð eta og ekki verða mettir.27Og ef þér hlýðið mér eigi þrátt fyrir þetta og gangið í gegn mér,28þá vil ég einnig ganga í gegn yður með þungri reiði og refsa yður sjö sinnum fyrir syndir yðar.29Og þér skuluð eta hold sona yðar, og hold dætra yðar skuluð þér eta.30Og ég vil leggja fórnarhæðir yðar í eyði og kollvarpa sólsúlum yðar og kasta hræjum yðar ofan á búkana af skurðgoðum yðar, og sálu minni mun bjóða við yður.31Og ég vil leggja borgir yðar í rústir og eyða helgidóma yðar og ekki kenna þægilegan ilm af fórnum yðar.32Og ég vil eyða landið, svo að óvinum yðar, sem í því búa, skal ofbjóða.33En yður vil ég tvístra meðal þjóðanna og bregða sverði á eftir yður, og land yðar skal verða auðn og borgir yðar rústir.34Þá skal landið fá hvíldarár sín bætt upp alla þá stund, sem það er í eyði og þér eruð í landi óvina yðar. Þá skal landið hvílast og bæta upp hvíldarár sín.35Alla þá stund, sem það er í eyði, skal það njóta hvíldar, þeirrar hvíldar, sem það eigi naut á hvíldarárum yðar, er þér bjugguð í því.36Og þá af yður, sem eftir verða, vil ég gjöra svo huglausa í löndum óvina þeirra, að þyturinn af fjúkandi laufblaði skal reka þá á flótta og þeir flýja eins og menn flýja undan sverði, og þeir skulu falla, þó að enginn elti.37Og þeir skulu hrasa hver um annan, eins og flýja skyldi undan sverði, þó að enginn elti, og þér skuluð eigi fá staðist fyrir óvinum yðar.38Og þér skuluð farast meðal þjóðanna, og land óvina yðar skal upp eta yður.39Og þeir af yður, sem eftir verða, skulu fyrir sakir misgjörðar sinnar veslast upp í löndum óvina yðar, og þeir skulu veslast upp sakir misgjörða feðra sinna eins og þeir.40Þá munu þeir játa misgjörð sína og misgjörð feðra sinna, er þeir frömdu með því að rjúfa tryggðir við mig, og hversu þeir hafa gengið í gegn mér41fyrir því gekk ég og í gegn þeim og flutti þá í land óvina þeirra, já, þá mun óumskorið hjarta þeirra auðmýkja sig og þeir fá misgjörð sína bætta upp.42Og þá vil ég minnast sáttmála míns við Jakob, og sáttmála míns við Ísak og sáttmála míns við Abraham vil ég einnig minnast, og landsins vil ég minnast.43Og landið skal verða yfirgefið af þeim og fá hvíldarár sín bætt upp, meðan það er í eyði og þeir eru á brottu, og þeir skulu fá misgjörð sína bætta upp fyrir þá sök og vegna þess, að þeir höfnuðu lögum mínum og sál þeirra hafði óbeit á setningum mínum.44En jafnvel þá, er þeir eru í landi óvina sinna, hafna ég þeim ekki og býður mér ekki við þeim, svo að ég vilji aleyða þeim og rjúfa þannig sáttmála minn við þá, því að ég er Drottinn, Guð þeirra.45Og sökum þeirra vil ég minnast sáttmálans við forfeður þeirra, er ég leiddi út af Egyptalandi í augsýn þjóðanna til þess að vera Guð þeirra. Ég er Drottinn.46Þetta eru setningar þær, ákvæði og lög, sem Drottinn setti milli sín og Ísraelsmanna á Sínaífjalli fyrir Móse.

26.1 Hjáguðir, skurðgoð 3Mós 19.4+
26.2 Hvíldardagar, helgidómur 3Mós 19.3+ ; 19.30+
26.3 Blessanir 5Mós 28.1-14
26.4 Regn 5Mós 11.14; Esk 34.26-27
26.5 Þresking Am 9.13
26.10 Korn sbr Lúk 12.16-21
26.11 Guð býr meðal þjóðar sinnar 3Mós 15.31+
26.13 Ekki þrælar 3Mós 25.55+ – ok Esk 34.27; sbr Jer 27-28; Matt 11.29-30
26.14 Bölvanir 5Mós 28.15-68; Am 4.6-12; Dan 9.11
26.16 Fjandmenn Dóm 6.3-6
26.17 Þið munuð flýja Okv 28.1
26.19 Hroki ykkar Esk 33.28
26.20 Ávöxtur 5Mós 11.17
26.22 Dýr, sem gera ykkur barnlausa Esk 5.17; 14.15
26.25 Sverð Guðs Esk 21.14-22 – drepsótt Am 4.10
26.26 Hungur Esk 4.16; 14.13; Slm 105.16
26.29 Borða börn sín 2Kon 6.28-29; Jer 19.9; Esk 5.10; Hlj 2.20
26.30 Fórnarhæðirnar eyðilagðar Esk 6.3; 2Kro 14.4
26.33 Ísrael tvístrað 2Kon 25.11; Jer 52.15; 2Kro 36.20 – auðn Jes 1.7; Jer 34.22; Okv 10.30
26.34 Landið hvílist 2Kro 36.21
26.36 Kjarkleysi Esk 21.12
26.39 Veslast upp Esk 4.17
26.40 Játa syndir sínar Esr 9; Neh 9; Slm 106; Dan 9.4-19; Bar 1.5-3.8
26.41 Óumskorið hjarta Jer 4.4; 9.26; Post 7.51 – bæta fyrir syndir Jes 40.2
26.42 Sáttmálinn við Jakob 1Mós 28.13-22 – við Ísak 1Mós 26.3-4 – við Abraham 1Mós 17.1-14; Lúk 1.72-73
26.44 Ég hafna þeim ekki 2Kon 13.23; Hlj 3.31
26.45 Drottinn er Guð Ísraels 3Mós 11.45+