1Helgigönguljóð. Eftir Salómon. Ef Drottinn byggir ekki húsið, erfiða smiðirnir til ónýtis. Ef Drottinn verndar eigi borgina, vakir vörðurinn til ónýtis.2Það er til ónýtis fyrir yður, þér sem snemma rísið og gangið seint til hvíldar og etið brauð, sem aflað er með striti: Svo gefur hann ástvinum sínum í svefni!3Sjá, synir eru gjöf frá Drottni, ávöxtur móðurkviðarins er umbun.4Eins og örvar í hendi kappans, svo eru synir getnir í æsku.5Sæll er sá maður, er fyllt hefir örvamæli sinn með þeim, þeir verða eigi til skammar, er þeir tala við óvini sína í borgarhliðinu.

127.1 Ef Drottinn … Slm 128; 5Mós 8.17-18; Okv 10.22; sbr Slm 33.16+
127.2 Til ónýtis Matt 6.25-34 – aflað með striti 1Mós 3.19
127.3 Synir Slm 128.3-4; Okv 17.6
127.5 Í borgarhliðinu Job 29.5,7-12