1Á öðru ríkisári Daríusar konungs, hinn fyrsta dag hins sjötta mánaðar, kom orð Drottins fyrir munn Haggaí spámanns til Serúbabels Sealtíelssonar, landstjóra í Júda, og til Jósúa Jósadakssonar æðsta prests, svo hljóðandi:2Svo segir Drottinn allsherjar: Þessi lýður segir: Enn er ekki tími kominn til að endurreisa hús Drottins.3Þá kom orð Drottins fyrir munn Haggaí spámanns, svo hljóðandi:4Er þá tími fyrir yður að búa í þiljuðum húsum, meðan þetta hús liggur í rústum?5Og nú segir Drottinn allsherjar svo: Takið eftir, hvernig fyrir yður fer!6Þér sáið miklu, en safnið litlu, etið, en verðið eigi saddir, drekkið, en fáið eigi nægju yðar, klæðið yður, en verðið þó ekki varmir, og sá sem vinnur fyrir kaupi, vinnur fyrir því í götótta pyngju.7Svo segir Drottinn allsherjar: Takið eftir, hvernig fyrir yður fer!8Farið upp í fjöllin, sækið við og reisið musterið, þá mun ég hafa velþóknun á því og gjöra mig vegsamlegan! segir Drottinn.9Þér búist við miklu, en fáið lítið í aðra hönd, og þó þér flytjið það heim, þá blæs ég það burt. Hvers vegna? segir Drottinn allsherjar. Vegna húss míns, af því að það liggur í rústum, meðan sérhver yðar flýtir sér með sitt hús.10Fyrir því heldur himinninn uppi yfir yður aftur dögginni og fyrir því heldur jörðin aftur gróðri sínum.11Ég kallaði þurrk yfir landið og yfir fjöllin, yfir kornið, vínberjalöginn og olíuna og yfir það, sem jörðin af sér gefur, yfir menn og skepnur og yfir allan handafla.12Þá hlýddi Serúbabel Sealtíelsson og Jósúa Jósadaksson æðsti prestur og allt það, er eftir var orðið lýðsins, röddu Drottins Guðs þeirra og orðum Haggaí spámanns, þeim er Drottinn Guð þeirra hafði sent hann með, og lýðurinn óttaðist Drottin.13Þá sagði Haggaí, sendiboði Drottins, við lýðinn, samkvæmt boðskap Drottins: Ég er með yður! segir Drottinn.14Og Drottinn vakti hug Serúbabels Sealtíelssonar, landstjóra í Júda, og hug Jósúa Jósadakssonar æðsta prests og hug alls þess, er eftir var orðið lýðsins, svo að þeir komu og hófu að byggja hús Drottins allsherjar, Guðs þeirra,15á tuttugasta og fjórða degi hins sjötta mánaðar, á öðru ríkisári Daríusar konungs.

1.1 Daríus Hag 2.10; Sak 1.1,7; 7.1; Esr 4.5; 5.6; 6.1; Neh 12.22 – tunglkomudagur 4Mós 28.11-15; Jes 1.13; 66.23; Hós 2.13; Am 8.5 – Haggaí Esr 5.1; 6.14 – Serúbbabel og Jósúa Esr 3.2,8; 5.2; Neh 12.1; sbr Sak 3.1; 4.6-10; 6.11; Matt 1.12
1.2 Endurreisa hús Drottins Esr 1.2-4; 3.8-9; 4.1,24; 5.2-3,8-9,11-17
1.4 Þiljuð hús Jer 22.14 – en ekkert musteri 2Sam 7.2 – þil 1Kon 6.9; 7.3,7
1.6 Árangurslaust strit Hag 2.16; Hós 4.10; Mík 6.14; Sak 8.10
1.11 Laun syndarinnar 1Mós 3.17-18; Jer 4.23-28; 12.4; 14.2-9; Hós 4.1-3 – þurrkur Am 4.7+
1.12 Allir, sem eftir voru af þjóðinni Jes 4.3+
1.13 Með yður Hag 2.4; Dóm 6.12; 2Sam 7.3; Jes 41.10
1.14 Elfdi hug Esr 1.5