1Nú gekk Jesús niður af fjallinu, og fylgdi honum mikill mannfjöldi.2Þá kom til hans líkþrár maður, laut honum og sagði: Herra, ef þú vilt, getur þú hreinsað mig.3Jesús rétti út höndina, snart hann og mælti: Ég vil, verð þú hreinn! Jafnskjótt varð hann hreinn af líkþránni.4Jesús sagði við hann: Gæt þess að segja þetta engum, en far þú, sýn þig prestinum, og færðu þá fórn, sem Móse bauð, þeim til vitnisburðar.5Þegar hann kom til Kapernaum, gekk til hans hundraðshöfðingi og bað hann:6Herra, sveinn minn liggur heima lami, mjög þungt haldinn.7Jesús sagði: Ég kem og lækna hann.8Þá sagði hundraðshöfðinginn: Herra, ég er ekki verður þess, að þú gangir inn undir þak mitt. Mæl þú aðeins eitt orð, og mun sveinn minn heill verða.9Því að sjálfur er ég maður, sem verð að lúta valdi og ræð yfir hermönnum, og ég segi við einn: Far þú, og hann fer, og við annan: Kom þú, og hann kemur, og við þjón minn: Gjör þetta, og hann gjörir það.10Þegar Jesús heyrði þetta, undraðist hann og mælti við þá, sem fylgdu honum: Sannlega segi ég yður, þvílíka trú hef ég ekki fundið hjá neinum í Ísrael.11En ég segi yður: Margir munu koma frá austri og vestri og sitja til borðs með Abraham, Ísak og Jakob í himnaríki,12en synir ríkisins munu út reknir í ystu myrkur. Þar verður grátur og gnístran tanna.13Þá sagði Jesús við hundraðshöfðingjann: Far þú, verði þér sem þú trúir. Og sveinninn varð heill á þeirri stundu.14Jesús kom í hús Péturs og sá, að tengdamóðir hans lá með sótthita.15Hann snart hönd hennar, og sótthitinn fór úr henni. Hún reis á fætur og gekk honum fyrir beina.16Þegar kvöld var komið, færðu menn til hans marga, er haldnir voru illum öndum. Illu andana rak hann út með orði einu, og alla þá, er sjúkir voru, læknaði hann.17Það átti að rætast, sem sagt er fyrir munn Jesaja spámanns: Hann tók á sig mein vor og bar sjúkdóma vora.18En þegar Jesús sá mikinn mannfjölda kringum sig, bauð hann að fara yfir um vatnið.19Þá kom fræðimaður einn til hans og sagði: Meistari, ég vil fylgja þér, hvert sem þú ferð.20Jesús sagði við hann: Refar eiga greni og fuglar himins hreiður, en Mannssonurinn á hvergi höfði sínu að að halla.21Annar, úr hópi lærisveinanna, sagði við hann: Herra, leyf mér fyrst að fara og jarða föður minn.22Jesús svarar honum: Fylg þú mér, en lát hina dauðu jarða sína dauðu.23Nú fór hann í bátinn og lærisveinar hans fylgdu honum.24Þá gjörði svo mikið veður á vatninu, að bylgjurnar gengu yfir bátinn. En Jesús svaf.25Þeir fara til, vekja hann og segja: Herra, bjarga þú, vér förumst.26Hann sagði við þá: Hví eruð þér hræddir, þér trúlitlir? Síðan reis hann upp og hastaði á vindinn og vatnið, og varð stillilogn.27Mennirnir undruðust og sögðu: Hvílíkur maður er þetta? Jafnvel vindar og vatn hlýða honum.28Þegar hann kom yfir um, í byggð Gadarena, komu á móti honum frá gröfunum tveir menn haldnir illum öndum, svo skæðir, að enginn mátti þann veg fara.29Þeir æpa: Hvað vilt þú okkur, sonur Guðs? Komstu hingað að kvelja okkur fyrir tímann?30En langt frá þeim var mikil svínahjörð á beit.31Illu andarnir báðu hann og sögðu: Ef þú rekur okkur út, sendu okkur þá í svínahjörðina.32Hann sagði: Farið! Út fóru þeir og í svínin, og öll hjörðin ruddist fram af hamrinum í vatnið og týndist þar.33En hirðarnir flýðu, komu til borgarinnar og sögðu öll tíðindin, líka frá mönnunum, sem haldnir voru illum öndum.34Og allir borgarmenn fóru út til móts við Jesú, og þegar þeir sáu hann, báðu þeir hann að fara burt úr héruðum þeirra.

8.1-4 Hlst. Mrk 1.40-45; Lúk 5.12-16
8.2 Líkþráir 5Mós 28.27,35; 3Mós 13-14; Matt 10.8; 11.5; Mrk 1.40
8.3 Hreinn 2Kon 5.13-14
8.4 Segja engum Dan 12.4,9; Matt 9.30; 12.16; 16.20; 17.9; Mrk 1.34,44; 3.12; 7.36; 8.30; 9.9 – sýna presti Lúk 17.14 – ákvæði um fórnir 3Mós 14.2-32 – til vitnisburðar Lúk 5.14
8.5-13 Hlst. Lúk 7.1-10; Jóh 4.43-54
8.12 Börn ríkisins Matt 13.38 – ystu myrkur Matt 22.13; 25.30 – grátur og gnístran tanna Job 16.9; Slm 35.16; 37.12; Matt 13.42-43,50; 22.13; 24.51; 25.30; Lúk 13.28
8.13 Sem þú trúir Matt 9.29; 15.28 – á þeirri stundu Jóh 4.52-53
8.14-17 Hlst. Mrk 1.29-34; Lúk 4.38-41
8.15 Rísa upp Matt 9.25; 16.21; 17.23; 20.19; 26.32; 28.6; Mrk 9.27; Post 3.15; 13.37; 1Kor 15.4
8.16 Með orði einu Matt 8.8; Mrk 2.10; Lúk 4.36; 1Þess 2.13; Heb 4.12
8.17 Sbr Jes 53.4; Matt 1.22+
8.18-22 Hlst. Lúk 9.57-62
8.20 Mannssonurinn Dan 7.13; Matt 8.20; 9.6; 11.19; 12.8; 16.13,27; 17.9,22; 20.18; 24.30; 26.2,24,45 og áfr.; Post 7.56; Opb 1.13; 14.14; sbr Matt 10.23+
8.21 Leyf mér fyrst 1Kon 19.20
8.22 Fylg mér Matt 4.19+
8.23-27 Hlst. Mrk 4.35-41; Lúk 8.22-25
8.24 Stormur, jarðskjálfti Matt 24.7; 27.51,54; 28.2,4
8.26 Hin trúlitlu Matt 6.30+ – hasta á Mrk 1.25; 9.25; Lúk 4.39 – vatnið Slm 65.8; 89.10; 93.3-4
8.27 Mennirnir Matt 4.19; 5.13; 6.1,2; 10.7,32-33; 16.13
8.28-34 Hlst. Mrk 5.1-20; Lúk 8.26-39
8.29 Hvað vilt þú okkur? Dóm 11.12; 2Sam 16.10; 19.22; 1Kon 17.18 o.áfr.; Mrk 1.24; Lúk 4.34; Jóh 2.4