1Til söngstjórans. Lag: Spill eigi. Miktam eftir Davíð, þá er hann flýði inn í hellinn fyrir Sál.2Ver mér náðugur, ó Guð, ver mér náðugur! Því að hjá þér leitar sál mín hælis, og í skugga vængja þinna vil ég hælis leita, uns voðinn er liðinn hjá.3Ég hrópa til Guðs, hins hæsta, þess Guðs, er kemur öllu vel til vegar fyrir mig.4Hann sendir af himni og hjálpar mér, þegar sá er kremur mig spottar. Sela Guð sendir náð sína og trúfesti.5Ég verð að liggja meðal ljóna, er eldi fnæsa. Tennur þeirra eru spjót og örvar, og tungur þeirra eru bitur sverð.6Sýn þig himnum hærri, ó Guð, dýrð þín breiðist yfir gjörvalla jörðina!7Þeir hafa lagt net fyrir fætur mína, sál mín er beygð. Þeir hafa grafið gryfju fyrir framan mig, sjálfir falla þeir í hana. Sela8Hjarta mitt er stöðugt, ó Guð, hjarta mitt er stöðugt, ég vil syngja og leika.9Vakna þú, sál mín, vakna þú, harpa og gígja, ég vil vekja morgunroðann.10Ég vil lofa þig meðal lýðanna, Drottinn, vegsama þig meðal þjóðanna,11því að miskunn þín nær til himna og trúfesti þín til skýjanna.12Sýn þig himnum hærri, ó Guð, dýrð þín breiðist yfir gjörvalla jörðina.

57.1 Davíð í hellinum 1Sam 22.1-2; 24.1-9; sbr Slm 142.1
57.2 Í Skugga vængja þinna Slm 17.8+
57.3 Hrópa tilGuðs Slm 3.5+ – reynist vel Slm 138.8
57.4 Ofsækir mig Slm 56.3; sbr 5.9 – Guð sendir Slm 43.3 – náð og trúfesti Slm 25.10+
57.5 Innan um ljón Slm 17.12; Dan 6.17 – hræsni Slm 55.22; 64.4
57.6 Hátt upp yfir himininn Slm 57.12; 108.6
57.7 Net Slm 9.16+ – gryfja sbr Slm 7.16+ – í eigin gryfju Slm 9.16; 64.9
57.8 Stöðugt hjarta Slm 108.2
57.9 Vekja morgunroðann Slm 119.62,147
57.10 Meðal þjóðanna Slm 18.50
57.11 Til himna Slm 36.6; 103.11 – miskunn og trúfesti Slm 57.4; 25.10+
57.12 Hátt upp yfir himininn Slm 8.2; 113.4; sbr Jes 2.11