1Og orð Drottins kom til mín, svohljóðandi:2Mannsson, snú þér að Ammónítum og spá gegn þeim3og seg við Ammóníta: Heyrið orð Drottins Guðs! Svo segir Drottinn Guð: Af því að þú hlakkaðir yfir því, að helgidómur minn var vanhelgaður og yfir því að Ísraelsland var í eyði lagt og yfir því að Júdamenn urðu að fara í útlegð,4sjá, fyrir því gef ég þig austurbyggjum til eignar, að þeir setji tjöld sín í þér og reisi búðir sínar í þér. Þeir munu eta ávöxtu þína og þeir munu drekka mjólk þína.5Og ég vil gjöra Rabba að beitilandi fyrir úlfalda og land Ammóníta að fjárbóli, til þess að þér viðurkennið, að ég er Drottinn.6Því að svo segir Drottinn Guð: Af því að þú klappaðir lof í lófa og stappaðir með fætinum og fagnaðir með fullri fyrirlitning í hjarta yfir Ísraelslandi,7sjá, fyrir því rétti ég út hönd mína í móti þér og læt þig verða heiðingjum að herfangi og afmái þig úr tölu þjóðanna og týni þér úr tölu landanna. Ég vil tortíma þér, til þess að þú viðurkennir, að ég er Drottinn.8Svo segir Drottinn Guð: Af því að Móab segir: Sjá, Júdalýður er eins og allar aðrar þjóðir!9Sjá, fyrir því opna ég hlíðar Móabs, til þess að landið verði borgalaust, missi borgir sínar allt til hinnar ystu: prýði landsins, Bet Jesímót, Baal Meon og Kirjataím.10Austurbyggjum gef ég það til eignar, í viðbót við land Ammóníta, til þess að Ammóníta verði eigi framar minnst meðal þjóðanna.11Og ég mun framkvæma refsidóma á Móab, til þess að þeir viðurkenni, að ég er Drottinn.12Svo segir Drottinn Guð: Af því að Edóm hefir breytt við Júdamenn af mikilli hefndargirni og misgjört stórlega með því að hefna sín á þeim,13fyrir því segir Drottinn Guð svo: Ég vil rétta út hönd mína gegn Edóm og eyða þar mönnum og fénaði og gjöra landið að auðn. Frá Teman allt til Dedan skulu þeir fyrir sverði falla.14Og ég fel lýð mínum Ísrael að framkvæma hefnd mína á Edóm, svo að þeir fari með Edóm samkvæmt reiði minni og heift, og hann fái að kenna á hefnd minni, segir Drottinn Guð.15Svo segir Drottinn Guð: Af því að Filistar sýndu af sér hefnigirni og hefndu sín með fyrirlitning í hjarta, hyggjandi á tortíming með ævarandi fjandskap,16fyrir því segir Drottinn Guð svo: Sjá, ég mun rétta út hönd mína gegn Filistum og útrýma Kretum og eyða þeim, sem eftir eru á sjávarströndinni.17Og ég mun koma miklum hefndum fram á þeim með grimmilegum hirtingum, til þess að þeir viðurkenni, að ég er Drottinn, þá er ég læt hefnd mína koma fram á þeim.

25.1 Ammonítar Esk 21.33+
25.4 Þjóðirnar fyrir austan Dóm 6.3
25.8 Gegn Móab Jes 15-16; 25.10-12; Jer 48; Am 2.1-3; Sef 2.8-11
25.12 Gegn Edóm Esk 35.1-5; Jes 34.5-17; 63.1-6; Jer 49.7-22; Am 1.11-12; Ób 1-15; Mal 1.2-5
25.15 Gegn Filisteum Jes 14.29-31; Jer 47.1-7; Jl 4.4-8; Am 1.6-8; Sef 2.4-7; Sak 9.5-7