1Þetta hef ég talað til yðar, svo að þér fallið ekki frá.2Þeir munu gjöra yður samkunduræka. Já, sú stund kemur, að hver sem líflætur yður þykist veita Guði þjónustu.3Þetta munu þeir gjöra, af því þeir þekkja hvorki föðurinn né mig.4Þetta hef ég talað til yðar, til þess að þér minnist þess, að ég sagði yður það, þegar stund þeirra kemur. Ég hef ekki sagt yður þetta frá öndverðu, af því ég var með yður.5En nú fer ég til hans, sem sendi mig, og enginn yðar spyr mig: Hvert fer þú?6En hryggð hefur fyllt hjarta yðar, af því að ég sagði yður þetta.7En ég segi yður sannleikann: Það er yður til góðs, að ég fari burt, því ef ég fer ekki, kemur hjálparinn ekki til yðar. En ef ég fer, sendi ég hann til yðar.8Þegar hann kemur, mun hann sanna heiminum, hvað er synd og réttlæti og dómur,9syndin er, að þeir trúðu ekki á mig,10réttlætið, að ég fer til föðurins, og þér sjáið mig ekki lengur,11og dómurinn, að höfðingi þessa heims er dæmdur.12Enn hef ég margt að segja yður, en þér getið ekki borið það nú.13En þegar hann kemur, andi sannleikans, mun hann leiða yður í allan sannleikann. Hann mun ekki mæla af sjálfum sér, heldur mun hann tala það, sem hann heyrir, og kunngjöra yður það, sem koma á.14Hann mun gjöra mig dýrlegan, því af mínu mun hann taka og kunngjöra yður.15Allt sem faðirinn á, er mitt. Því sagði ég, að hann tæki af mínu og kunngjörði yður.16Innan skamms sjáið þér mig ekki lengur, og aftur innan skamms munuð þér sjá mig.17Þá sögðu nokkrir lærisveina hans sín á milli: Hvað er hann að segja við oss: Innan skamms sjáið þér mig ekki, og aftur innan skamms munuð þér sjá mig, og: Ég fer til föðurins?18Þeir spurðu: Hvað merkir þetta: Innan skamms? Vér vitum ekki, hvað hann er að fara.19Jesús vissi, að þeir vildu spyrja hann, og sagði við þá: Eruð þér að spyrjast á um það, að ég sagði: Innan skamms sjáið þér mig ekki, og aftur innan skamms munuð þér sjá mig?20Sannlega, sannlega segi ég yður: Þér munuð gráta og kveina, en heimurinn mun fagna. Þér munuð verða hryggir, en hryggð yðar mun snúast í fögnuð.21Þegar konan fæðir, er hún í nauð, því stund hennar er komin. Þegar hún hefur alið barnið, minnist hún ekki framar þrauta sinna af fögnuði yfir því, að maður er í heiminn borinn.22Eins eruð þér nú hryggir, en ég mun sjá yður aftur, og hjarta yðar mun fagna, og enginn tekur fögnuð yðar frá yður.23Á þeim degi munuð þér ekki spyrja mig neins. Sannlega, sannlega segi ég yður: Hvað sem þér biðjið föðurinn um í mínu nafni, mun hann veita yður.24Hingað til hafið þér einskis beðið í mínu nafni. Biðjið, og þér munuð öðlast, svo að fögnuður yðar verði fullkominn.25Þetta hef ég sagt yður í líkingum. Sú stund kemur, að ég tala ekki framar við yður í líkingum, heldur mun ég berum orðum segja yður frá föðurnum.26Á þeim degi munuð þér biðja í mínu nafni. Ég segi yður ekki, að ég muni biðja föðurinn fyrir yður,27því sjálfur elskar faðirinn yður, þar eð þér hafið elskað mig og trúað, að ég sé frá Guði út genginn.28Ég er út genginn frá föðurnum og kominn í heiminn. Ég yfirgef heiminn aftur og fer til föðurins.29Lærisveinar hans sögðu: Nú talar þú berum orðum og mælir enga líking.30Nú vitum vér, að þú veist allt og þarft eigi, að nokkur spyrji þig. Þess vegna trúum vér, að þú sért út genginn frá Guði.31Jesús svaraði þeim: Trúið þér nú?32Sjá, sú stund kemur og er komin, að þér tvístrist hver til sín og skiljið mig einan eftir. Þó er ég ekki einn, því faðirinn er með mér.33Þetta hef ég talað við yður, svo að þér eigið frið í mér. Í heiminum hafið þér þrenging. En verið hughraustir. Ég hef sigrað heiminn.

16.2 Gera samkunduræka Jóh 9.22+
16.3 Þekkja hvorki föðurinn né Jesú Jóh 15.21
16.4 Þegar stundin kemur Jóh 13.1+ – minnast Jóh 2.22+
16.5 Hann, sem sendi mig Jóh 7.33 – hvert fer þú? Jóh 13.36; 14.5
16.6 Hryggð Jóh 16.22
16.7 Hjálparinn Jóh 14.16+
16.8 Réttlæti og dómur sbr Post 24.25
16.9 Synd Jóh 8.21-24; 9.41; 15.22-24 – trúðu ekki á mig Jóh 3.19,36; 5.38; 6.36,64; 7.5; 10.26; 12.37
16.10 Jesús fer til föðurins Jóh 14.12+ – sjá Jesú ekki lengur Jóh 7.34; 13.33; 14.19; 16.16-19
16.11 Höfðingi þessa heims Jóh 12.31+
16.12 Geta ekki skilið nú 1Kor 3.1-2
16.13 Andi sannleikans Jóh 14.17+ – í allan sannleikann Jóh 14.26; 1Jóh 2.27
16.15 Allt er mitt Jóh 17.10
16.16 Innan skamms Jóh 14.19
16.21 Þegar konan fæðir Jes 13.8; 21.3; 26.17; Mík 4.9; Mrk 13.8; Róm 8.22; 1Þess 5.3; Opb 12.2
16.22 Hjartað mun fagna Jes 66.14 – fögnuður endurfunda Matt 28.8; Lúk 24.41; Jóh 17.13; 20.20; sbr Jóh 15.11+
16.23 Á þeim degi Mrk 13.17 og áfr.; 14.25; Jóh 14.20+ ; Post 2.17; 2Tím 1.12,18 – bænheyrsla Jóh 14.13+
16.24 Biðjið Matt 7.7-8,11; 18.19; Lúk 11.9-13 – fögnuðurinn fullkomnist Jóh 15.11+
16.25 Í líkingum sbr Matt 13.34; Mrk 4.33-34; Lúk 8.10; Jóh 10.6; sbr Jóh 12.16; 13.7
16.27 Faðirinn elskar yður Jóh 14.21,23 – Jesús kemur frá Guði Jóh 3.2; 8.42+
16.32 Skiljið mig einan eftir Sak 13.7; Matt 26.31,56; Mrk 14.27,50 – Jesús ekki einn Jóh 8.16,29; sbr 10.30
16.33 Friður Jóh 14.27+ – þrenging 1) Mrk 13.19,24; Róm 2.9 2) Mrk 4.17; Post 11.19; 2Kor 1.8; 2.4; 4.17; 6.4-10; 1Þess 1.6; 3.3,7; 2Þess 1.4; 2Tím 3.12 – sigra heiminn 1Jóh 4.4; 5.4-5; Opb 2.7,11,17 o.fl.; 5.5; 6.2