1Þá svaraði Job og sagði:2Já, vissulega, miklir menn eruð þér, og með yður mun spekin deyja út!3En ég hefi vit eins og þér, ekki stend ég yður að baki, og hver er sá, er eigi viti slíkt!4Athlægi vinar síns það má ég vera, ég sem kallaði til Guðs, og hann svaraði mér, ég, hinn réttláti, hreinlyndi, er að athlægi!5Ógæfan er fyrirlitleg segir hinn öruggi, hún hæfir þeim, sem skrikar fótur.6Tjöld spellvirkjanna standa ósködduð, og þeir lifa áhyggjulausir, sem egna Guð til reiði, og sá sem þykist bera Guð í hendi sér.7En spyr þú skepnurnar, og þær munu kenna þér, fugla loftsins, og þeir munu fræða þig,8eða villidýrin, og þau munu kenna þér, og fiskar hafsins munu kunngjöra þér.9Hver þeirra veit ekki að hönd Drottins hefir gjört þetta?10Í hans hendi er líf alls hins lifanda og andi sérhvers mannslíkama.11Prófar eyrað ekki orðin, eins og gómurinn smakkar matinn?12Hjá öldruðum mönnum er speki, og langir lífdagar veita hyggindi.13Hjá Guði er speki og máttur, hans eru ráð og hyggindi.14Þegar hann rífur niður, þá verður eigi byggt upp aftur, þegar hann setur einhvern í fangelsi, þá verður ekki lokið upp.15Þegar hann stíflar vötnin, þá þorna þau upp, þegar hann hleypir þeim, þá umturna þau jörðinni.16Hjá honum er máttur og viska, á valdi hans er sá er villist, og sá er í villu leiðir.17Hann leiðir ráðherra burt nakta og gjörir dómara að fíflum.18Hann leysir fjötra konunganna og bindur reipi um lendar sjálfra þeirra.19Hann leiðir presta burt nakta og steypir þeim, sem sitja fastir í sessi.20Hann rænir reynda menn málinu og sviptir öldungana dómgreind.21Hann hellir fyrirlitning yfir tignarmennin og gjörir slakt belti hinna sterku.22Hann grefur hið hulda fram úr myrkrinu og dregur niðdimmuna fram í birtuna.23Hann veitir þjóðunum vöxt og eyðir þeim, útbreiðir þjóðirnar og leiðir þær burt.24Hann firrir þjóðhöfðingja landsins viti og lætur þá villast um veglaus öræfi.25Þeir fálma í ljóslausu myrkri, og hann lætur þá skjögra eins og drukkinn mann.

12.3 Líka vit eins og þið Job 13.2; 2Kor 11.5
12.4 Athlægi Job 17.6; 30.1; Slm 22.8; Matt 27.41 og hlst. – réttlátur og flekklaus Job 1.1+
12.6 Óhultir Job 21.7; Jer 12.1-2; Slm 73.3-12
12.7 Spyrðu skepnurnar Job 37.2-18; 38-39; Matt 6.26-30
12.10 Lífið í hendi Guðs Job 34.14-15; 4Mós 16.22; Dan 5.23
12.12 Speki hjá öldungunum Job 8.8+
12.13 Speki og kraftur Jes 11.2; Okv 8.14
12.14 Gjörðir Guðs standa Jes 22.22; Opb 3.7
12.16 Þeir sem villast 1Kon 22.23
12.21 Smán yfir tignarmenni Slm 107.40