1Á þeim tíma mun ég segir Drottinn vera Guð fyrir allar ættkvíslir Ísraels, og þeir munu vera mín þjóð.2Svo segir Drottinn: Sá lýður, er undan sverðinu komst, fann náð í óbyggðum, er Ísrael leitaði hvíldar.3Úr fjarlægð birtist Drottinn mér: Með ævarandi elsku hefi ég elskað þig. Fyrir því hefi ég látið náð mína haldast við þig.4Enn vil ég endurreisa þig, svo að þú verðir endurreist, mærin Ísrael. Enn munt þú skreyta þig með bjöllum og ganga út í dansi fagnandi manna.5Þú munt enn planta víngarða á Samaríufjöllum. Þeir, sem hafa gróðursett þá, munu og hafa nytjar þeirra.6Já, sá dagur mun koma, að varðmennirnir kalla á Efraím-fjöllum: Standið upp, förum upp til Síon, til Drottins, Guðs vors!7Svo segir Drottinn: Fagnið yfir Jakob með gleði og kætist yfir öndvegisþjóð þjóðanna. Kunngjörið, vegsamið og segið: Frelsa, Drottinn, þjóð þína, leifarnar af Ísrael!8Sjá, ég flyt þá úr landinu norður frá og safna þeim saman frá útkjálkum jarðar, á meðal þeirra eru bæði blindir og lamir, bæði þungaðar og jóðsjúkar konur, í stórum hóp hverfa þeir hingað aftur.9Þeir munu koma grátandi, og ég mun fylgja þeim huggandi, leiða þá að vatnslækjum, um sléttan veg, þar sem þeir geta eigi hrasað, því að ég er orðinn Ísrael faðir, og Efraím er frumgetinn sonur minn.10Heyrið orð Drottins, þér þjóðir, og kunngjörið það á fjarlægu eyjunum og segið: Sá, sem tvístraði Ísrael, safnar honum saman og mun gæta hans, eins og hirðir gætir hjarðar sinnar.11Drottinn frelsar Jakob og leysir hann undan valdi þess, sem honum var yfirsterkari.12Þeir skulu koma og fagna á Síonhæð og streyma til gæða Drottins, til kornsins, vínberjalagarins, olíunnar og ungu sauðanna og nautanna, og sál þeirra skal verða eins og vökvaður aldingarður, og þeir skulu eigi framar vanmegnast.13Þá munu meyjarnar skemmta sér við dans og unglingar og gamalmenni gleðjast saman. Ég mun breyta sorg þeirra í gleði og hugga þá og gleðja eftir harma þeirra.14Og ég mun endurnæra sál prestanna á feiti, og lýður minn mun seðja sig á gæðum mínum segir Drottinn.15Svo segir Drottinn: Rödd heyrist í Rama, harmakvein, beiskur grátur: Rakel grætur börnin sín. Hún vill ekki huggast láta vegna barna sinna, því að þau eru eigi framar lífs.16Svo segir Drottinn: Halt raust þinni frá gráti og augum þínum frá tárum, því að enn er til umbun fyrir verk þitt segir Drottinn: Þeir skulu hverfa heim aftur úr landi óvinanna.17Já, enn er von um framtíð þína segir Drottinn: Börnin skulu hverfa heim aftur í átthaga sína.18Að sönnu heyri ég Efraím kveina: Þú hefir hirt mig, og ég lét hirtast eins og óvaninn kálfur, lát mig snúa heim, þá skal ég snúa við, því að þú ert Drottinn, Guð minn!19Því að eftir að ég hafði snúið mér frá þér, gjörðist ég iðrandi, og eftir að ég vitkaðist, barði ég mér á brjóst. Ég blygðast mín, já, ég er sneyptur, því að ég ber skömm æsku minnar.20Er Efraím mér þá svo dýrmætur sonur eða slíkt eftirlætisbarn, að þótt ég hafi oft hótað honum, þá verð ég ávallt að minnast hans að nýju? Fyrir því kemst hjarta mitt við vegna hans, ég hlýt að miskunna mig yfir hann segir Drottinn.21Reis þér vörður! Set þér vegamerki! Haf athygli á brautinni, veginum, sem þú fórst! Hverf heim, mærin Ísrael! Hverf heim til þessara borga þinna!22Hversu lengi ætlar þú að reika fram og aftur, þú hin fráhverfa dóttir? Því að Drottinn skapar nýtt á jörðu: Kvenmaðurinn verndar karlmanninn.23Svo segir Drottinn allsherjar, Ísraels Guð: Enn munu menn mæla þessum orðum í Júda og í borgum hans, þá er ég hefi snúið við högum þeirra: Drottinn blessi þig, bústaður réttlætisins, heilaga fjall!24Júda og allar borgir hans munu búa þar saman, akuryrkjumenn og þeir, sem fara um með hjarðir,25því að ég drykkja hinar sárþyrstu sálir og metta sérhverja örmagna sál.26Við þetta vaknaði ég og litaðist um, og svefninn hafði verið mér þægilegur.27Sjá, þeir dagar koma segir Drottinn að ég sái Ísraels hús og Júda hús með mannsáði og fénaðarsáði,28og eins og ég vakti yfir þeim til þess að uppræta og umturna, rífa niður og eyða og vinna þeim mein, þannig mun ég og vaka yfir þeim til þess að byggja og gróðursetja segir Drottinn.29Á þeim dögum munu menn eigi framar segja: Feðurnir átu súr vínber og tennur barnanna urðu sljóar!30Heldur mun hver deyja fyrir eigin misgjörð. Hver sá maður, er etur súr vínber, hans tennur munu sljóar verða.31Sjá, þeir dagar munu koma segir Drottinn að ég mun gjöra nýjan sáttmála við Ísraels hús og Júda hús,32ekki eins og þann sáttmála, er ég gjörði við feður þeirra, þá er ég tók í hönd þeirra til þess að leiða þá út af Egyptalandi, sáttmálann sem þeir hafa rofið, þótt ég væri herra þeirra segir Drottinn.33En í þessu skal sáttmálinn fólginn vera, sá er ég gjöri við Ísraels hús eftir þetta segir Drottinn: Ég legg lögmál mitt þeim í brjóst og rita það á hjörtu þeirra, og ég skal vera þeirra Guð og þeir skulu vera mín þjóð.34Og þeir skulu ekki framar kenna hver öðrum, né einn bróðirinn öðrum, og segja: Lærið að þekkja Drottin, því að þeir munu allir þekkja mig, bæði smáir og stórir segir Drottinn. Því að ég mun fyrirgefa misgjörð þeirra og ekki framar minnast syndar þeirra.35Svo segir Drottinn, sem sett hefir sólina til að lýsa um daga, tunglið og stjörnurnar til að lýsa um nætur, sá er æsir hafið, svo að bylgjurnar gnýja Drottinn allsherjar er nafn hans:36Svo sannarlega sem þessi fasta skipan mun aldrei breytast fyrir mér segir Drottinn svo sannarlega munu Ísraels niðjar ekki hætta að vera þjóð fyrir mér alla daga.37Svo segir Drottinn: Svo sannarlega sem himinninn hið efra verður eigi mældur né undirstöður jarðarinnar hið neðra rannsakaðar, svo sannarlega mun ég ekki hafna öllum Ísraels niðjum sakir alls þess, er þeir hafa gjört segir Drottinn.38Sjá, þeir dagar munu koma segir Drottinn að borgin verður endurreist Drottni til handa, frá Hananel-turni allt að Hornhliðinu,39og enn fremur skal mælisnúran ganga beint á Gareb-hæð og beygja þaðan til Góa.40Og allur hræva- og öskudalurinn og allir vellirnir að Kídronlæk, allt austur að horni Hrossahliðs, skulu vera helgaðir Drottni. Eigi skal þar verða upprætt framar né rifið niður að eilífu.

31.1 Guð Ísraels Jer 7.23+
31.2 Í eyðimörkinni Hós 2.16
31.3 Drottinn elskar þig 5Mós 7.8; 10.15; Jes 43.; Hós 11.4; Mal 1.2
31.4 Endurreisa Jer 1.10+
31.6 Til Síon Jer 33.11; 50.4-5; Slm 122.1; Tob 1.6; sbr Mík 4.1-2
31.7 Þeim sem eftir eru Jes 4.3+
31.8 Í norðri Jer 1.14+ ; 3.18 – safna saman Jer 23.3+
31.9 Að vatnsmiklum lækjum Jes 49.10 – sléttum vegi Slm 23.2-3 – frumburður minn Jer 31.20; 2Mós 4.22; Hós 11.1
31.11 Drottinn frelsar Jes 41.14+ – frá máttugri 2Mós 6.6; Jes 49.25; Mrk 3.27
31.13 Ungir og aldnir Slm 148.12 – sorg og í gleði Jes 35.10; Slm 126.5+
31.15 Rödd í Rama Matt 2.18
31.16 Hættu að gráta Opb 21.4 – umbun 2Kro 15.7; Opb 14.13
31.17 Von Jer 29.11
31.18 Kvein Jer 31.9; 3.21 – snúa við Jer 15.19; 17.14; Slm 80.4; Hlj 5.21
31.20 Sonur Jer 31.9+ – eftirlætisbarn Jer 31.3; Jes 49.15; 63.9; Hlj 3.32
31.22 Stefnulaust Jer 4.22 – hin fráhverfa Jer 3.6,8,11-12 – ný sköpun Jes 41.20; 43.19; 48.6-7; 2Kor 5.17
31.23 Bæta hag Jer 29.14+
31.25 Metta hinn magnþrota Jes 40.30-31; 43.19-20; Jóh 4.14-15; sbr Matt 11.28
31.28 Byggja og gróðursetja Jer 1.10+
31.29 Feðurnir, börnin Esk 18.2; sbr 2Mós 20.5; 34.7
31.30 Vegna eigin sektar 5Mós 24.16; 2Kon 14.6; Esk 18.4
31.31 Nýr sáttmáli Lúk 22.20; 1Kor 11.25; 2Kor 3.6; Heb 9.15
31.32 Rofinn sáttmáli Jer 11.10
31.33 Á hjörtu þeirra sbr Jes 48.17; 51.7; 54.13; 1Jóh 3.9 – þeirra Guð, mín þjóð Jer 7.23+
31.34 Kennsla óþörf 1Jóh 2.20,27 – allir þekkja mig Jer 24.7; Jes 11.9; Jóh 6.45 – fyrirgefa Jer 50.20
31.35 Sólin um daga 1Mós 1.16 – nafn hans Jer 32.18; 33.2; 46.18+ ; Jes 54.5; Am 5.8, 27; 9.6
31.37 Ómælanlegur Jes 40.12-16; Okv 30.4
31.38 Turn Hananel Neh 3.1 – Hornhlið 2Kon 14.13
31.40 Dalurinn sbr Jer 2.23+ – Hrossahlið Neh 3.28; sbr 2Kon 11.16 – heilög jörð Jl 3.17