1Synir Íssakars: Tóla, Púa, Jasúb og Simron fjórir alls.2„Synir Tóla: Ússí, Refaja, Jeríel, Jahemaí, Jíbsam og Samúel. Voru þeir höfðingjar í ættum sínum í Tóla, kappar miklir í ættum sínum; voru þeir á dögum Davíðs tuttugu og tvö þúsund og sex hundruð að tölu.“3„Synir Ússí voru: Jísrahja; synir Jísrahja: Míkael, Óbadía, Jóel, Jissía, alls fimm ætthöfðingjar.“4Og til þeirra töldust eftir ættum þeirra, eftir frændliði þeirra, hermannasveitir, þrjátíu og sex þúsund manns, því að þeir áttu margar konur og börn.5Og frændur þeirra, allar ættir Íssakars, voru kappar miklir. Töldust þeir alls vera áttatíu og sjö þúsundir.6Synir Benjamíns: Bela, Beker, Jedíael þrír alls.7Og synir Bela: Esbón, Ússí, Ússíel, Jerímót og Írí, fimm alls. Voru þeir ætthöfðingjar og kappar miklir, og töldust þeir að vera tuttugu og tvö þúsund þrjátíu og fjórir.8Og synir Bekers: Semíra, Jóas, Elíeser, Eljóenaí, Omrí, Jeremót, Abía, Anatót og Alemet. Allir þessir voru synir Bekers.9Og þeir töldust eftir ættum sínum, ætthöfðingjum sínum, er voru kappar miklir, tuttugu þúsund og tvö hundruð.10„Og synir Jedíaels: Bílhan; og synir Bílhans: Jeús, Benjamín, Ehúð, Kenaana, Setan, Tarsis og Ahísahar.“11Allir þessir voru synir Jedíaels, ætthöfðingjar, kappar miklir, seytján þúsund og tvö hundruð vígra manna.12Súppím og Húppím voru synir Írs, en Húsím sonur Akers.13Synir Naftalí: Jahsíel, Gúní, Jeser og Sallúm, synir Bílu.14Synir Manasse: Asríel, er kona hans ól. Hin sýrlenska hjákona hans ól Makír, föður Gíleaðs.15Og Makír tók konu handa Húppím og Súppím, en systir hans hét Maaka. Hinn annar hét Selófhað, og Selófhað átti dætur.16Og Maaka, kona Makírs, ól son og nefndi hann Peres. En bróðir hans hét Seres, og synir hans voru Úlam og Rekem.17Og synir Úlams: Bedan. Þessir eru synir Gíleaðs Makírssonar, Manassesonar.18En Hammóleket systir hans ól Íshód, Abíeser og Mahela.19Og synir Semída voru: Ahjan, Sekem, Líkhí og Aníam.20Synir Efraíms: Sútela, hans son var Bered, hans son Tahat, hans son Eleada, hans son Tahat,21hans son Sóbad, hans son Sútela, Eser og Elead, en Gat-menn, þeir er fæddir voru í landinu, drápu þá, er þeir fóru til þess að ræna hjörðum þeirra.22Þá harmaði Efraím faðir þeirra lengi, og bræður hans komu til þess að hugga hann.23Og hann gekk inn til konu sinnar, og hún varð þunguð og ól son, og hann nefndi hann Bería, því að ógæfu hafði að borið í húsi hans.24En dóttir hans var Seera. Hún byggði neðri og efri Bet Hóron og Ússen Seera.25Og sonur hans var Refa og Resef. Hans son var Tela, hans son Tahan,26hans son Laedan, hans son Ammíhúd, hans son Elísama,27hans son Nún, hans son Jósúa.28Óðal þeirra og bústaðir voru: Betel og þorpin umhverfis, austur að Naaran og vestur að Geser og þorpunum umhverfis, enn fremur Síkem og þorpin umhverfis til Aja og þorpanna umhverfis.29Og í höndum Manassesona voru: Bet Sean og þorpin umhverfis, Taana og þorpin umhverfis, Megiddó og þorpin umhverfis, Dór og þorpin umhverfis. Þar bjuggu synir Jósefs, sonar Ísraels.30Synir Assers: Jímna, Jísva, Jísví og Bería, og systir þeirra var Seera.31Og synir Bería: Heber og Malkíel. Hann er faðir Birsaíts.32En Heber gat Jaflet, Semer, Hótam og Súu, systur þeirra.33Og synir Jaflets: Pasak, Bímehal og Asvat. Þessir voru synir Jaflets.34Og synir Semers: Ahí, Róhga, Húbba og Aram.35Og synir Helems, bróður hans: Sófa, Jímna, Seles og Amal.36Synir Sófa voru: Súa, Harnefer, Súal, Berí, Jímra,37Beser, Hód, Samma, Silsa, Jítran og Beera.38Og synir Jeters: Jefúnne, Pispa og Ara.39Og synir Úlla: Ara, Hanníel og Risja.40Allir þessir voru synir Assers, ætthöfðingjar, frábærir kappar, höfðingjar meðal þjóðhöfðingja. Töldust þeir, er skráðir voru til herþjónustu, tuttugu og sex þúsundir manns.

7.1 1Mós 46.13; 4Mós 26.23-24
7.6 1Mós 46.21; sbr 1Kro 8.1-32; 4Mós 26.38-41
7.13 1Mós 46.24; 4Mós 26.48-50
7.14 4Mós 26.29-34
7.20 4Mós 26.35-37
7.30-31 1Mós 46.17; 4Mós 26.44-47