1Halelúja. Syngið Drottni nýjan söng, lofsöngur hans hljómi í söfnuði trúaðra.2Ísrael gleðjist yfir skapara sínum, synir Síonar fagni yfir konungi sínum.3Þeir skulu lofa nafn hans með gleðidansi, leika fyrir honum á bumbur og gígjur.4Því að Drottinn hefir þóknun á lýð sínum, hann skrýðir hrjáða með sigri.5Hinir trúuðu skulu gleðjast með sæmd, syngja fagnandi í hvílum sínum6með lofgjörð Guðs á tungu og tvíeggjað sverð í höndum7til þess að framkvæma hefnd á þjóðunum, hirtingu á lýðunum,8til þess að binda konunga þeirra með fjötrum, þjóðhöfðingja þeirra með járnhlekkjum,9til þess að fullnægja á þeim skráðum dómi. Það er til vegsemdar öllum dýrkendum hans. Halelúja.

149.1 Hallelúja Slm 106.1+ – nýjan söng Slm 33.3+ – söfnuði trúfastra Slm 68.27
149.3 Leika fyrir Drottni Slm 147.7+
149.9 Hallelúja Slm 104.35+