1Ættartala Jesú Krists, sonar Davíðs, sonar Abrahams.2Abraham gat Ísak,Ísak gat Jakob,Jakob gat Júda og bræður hans.3Júda gat Peres og Sara við Tamar,Peres gat Esrom,Esrom gat Ram,4Ram gat Ammínadab,Ammínadab gat Nakson,Nakson gat Salmon,5Salmon gat Bóas við Rahab,og Bóas gat Óbeð við Rut.Óbeð gat Ísaí,6og Ísaí gat Davíð konung. Davíð gat Salómon við konu Úría,7Salómon gat Róbóam,Róbóam gat Abía,Abía gat Asaf,8Asaf gat Jósafat,Jósafat gat Jóram,Jóram gat Ússía,9Ússía gat Jótam,Jótam gat Akas,Akas gat Esekía,10Esekía gat Manasse,Manasse gat Amos,Amos gat Jósía.11Jósía gat Jekonja og bræður hans á tíma herleiðingarinnartil Babýlonar.12Eftir herleiðinguna til Babýlonar gat Jekonja Sealtíel,Sealtíel gat Serúbabel,13Serúbabel gat Abíúd,Abíúd gat Eljakím,Eljakím gat Asór,14Asór gat Sadók,Sadók gat Akím,Akím gat Elíúd,15Elíúd gat Eleasar,Eleasar gat Mattan,Mattan gat Jakob,16og Jakob gat Jósef, mann Maríu, en hún ól Jesú, sem kallastKristur.17Þannig eru alls fjórtán ættliðir frá Abraham til Davíðs, fjórtán ættliðir frá Davíð fram að herleiðingunni til Babýlonar og fjórtán ættliðir frá herleiðingunni til Krists.18Fæðing Jesú Krists varð með þessum atburðum: María, móðir hans, var föstnuð Jósef. En áður en þau komu saman, reyndist hún þunguð af heilögum anda.19Jósef, festarmaður hennar, sem var grandvar, vildi ekki gjöra henni opinbera minnkun og hugðist skilja við hana í kyrrþey.20Hann hafði ráðið þetta með sér, en þá vitraðist honum engill Drottins í draumi og sagði: Jósef, sonur Davíðs, óttastu ekki að taka til þín Maríu, heitkonu þína. Barnið, sem hún gengur með, er af heilögum anda.21Hún mun son ala, og hann skaltu láta heita Jesú, því að hann mun frelsa lýð sinn frá syndum þeirra.22Allt varð þetta til þess, að rætast skyldu orð Drottins fyrir munn spámannsins:23Sjá, mærin mun þunguð verða og son ala. Nafn hans mun vera Immanúel, það þýðir: Guð með oss.24Þegar Jósef vaknaði, gjörði hann eins og engill Drottins hafði boðið honum og tók konu sína til sín.25Hann kenndi hennar ekki fyrr en hún hafði alið son. Og hann gaf honum nafnið JESÚS.

1.1-17 Hlst. Lúk 3.23-28
1.1 Ættartala 1Mós 5.1 – sonur Davíðs 2Sam 7.1; Matt 9.27; 12.23; 15.22; 20.30-31 hlst. 21.9,15 hlst. 22.41-45; Jóh 7.42, Róm 1.3; 2Tím 2.8; Opb 5.5; 22.16 – Abraham og afkvæmi hans 1Mós 15.2-5; 22.15-18; Jóh 8.33-39
1.2 Ísak 1Mós 21.3,12 – Jakob 1Mós 25.26 – Júda 1Mós 29.35
1.3 Tamar 1Mós 38
1.5 Bóas og Rut Rut 4.13 – Óbeð, Ísaí Rut 4.17,22
1.6 Davíð konungur 1Sam 16.13; Post 13.22 – Davíð, kona Úría, Salómon 2Sam 12.24
1.7-11 Frá Róbóam til Jekonja 1Kro 3.10-16
1.11 Herleiðingin 2Kon 24.12-16
1.12Jekonja og afkomendur hans 1Kro 3.17,19
1.18-25 Hlst. Lúk 2.1-7
1.20 Engill Drottins 1Mós 16.7,11; 22.11-15; 2Mós 3.2-6; Matt 1.24; 2.13,19; 28.2; Lúk 1.11; 2.9; Post 5.19; 8.26; 12.7,23 – draumur Matt 2.12,13,19,22; 27.19; Post 2.17
1.21 Jesús Matt 1.16,25; Lúk 1.31; 2.21
1.22 Ritningarnar rætast Matt 2.15,17,23; 4.14; 8.17; 12.17; 13.14,35; 21.4; 26.56; 27.9; Lúk 4.21; 21.22; 24.44; Jóh 12.38; Post 1.16; Jak 2.23
1.23 Immanúel Jes 7.14; 8.8,10