1Til söngstjórans. Lag: Spill eigi. Davíðs-miktam.2Talið þér í sannleika það sem rétt er, þér guðir? Dæmið þér mennina með sanngirni?3Nei, allir aðhafist þér ranglæti á jörðu, hendur yðar vega út ofbeldi.4Hinir illu eru frá móðurlífi viknir af leið, lygarar fara villir vegar frá móðurskauti.5Eitur þeirra er eins og höggormseitur, þeir eru eins og dauf naðra, sem lokar eyrunum6til þess að heyra ekki raust særingamannsins né hins slungna töframanns.7Guð, brjót sundur tennurnar í munni þeirra, mölva jaxlana úr ljónunum, Drottinn!8„Lát þá hverfa eins og vatn, sem rennur burt; miði hann örvum sínum á þá, þá hníga þeir,“9eins og snigillinn, sem rennur í sundur og hverfur, ótímaburður konunnar, er eigi sá sólina.10Áður en pottar yðar kenna hitans af þyrnunum, hvort sem þyrnarnir eru grænir eða glóandi, feykir hann hinum illa burt.11Þá mun hinn réttláti fagna, af því að hann hefir fengið að sjá hefndina, hann mun lauga fætur sína í blóði hinna óguðlegu.12„Þá munu menn segja: Hinn réttláti hlýtur þó ávöxt; það er þó til Guð, sem dæmir á jörðunni.“

58.2 Rangir dómar Slm 82.2
58.5 Eitruð naðra 5Mós 32.33; Slm 140.4
58.6 Rödd Slöngutemjarans Préd 10.11
58.7 Brjóttu tennurnar Slm 3.8 – vígtennur ljónanna Slm 57.5
58.8 Renna í sundur eins og vatn Job 11.16
58.9 Andvana fæðing Job 3.16
58.11 Hinn réttláti fagnar Slm 35.27 – sér hefndina Jer 11.20; Esk 25.17
58.12 Hlýtur umbun Slm 1.3 – Guð, sem dæmir Mal 2.17; Job 19.29