1Musterisvígsluljóð. Davíðssálmur.2Ég tigna þig, Drottinn, því að þú hefir bjargað mér og eigi látið óvini mína hlakka yfir mér.3Drottinn, Guð minn, ég hrópaði til þín og þú læknaðir mig.4Drottinn, þú heimtir sál mína úr Helju, lést mig halda lífi, er aðrir gengu til grafar.5Syngið Drottni lof, þér hans trúuðu, vegsamið hans heilaga nafn.6Andartak stendur reiði hans, en alla ævi náð hans. Að kveldi gistir oss grátur, en gleðisöngur að morgni.7En ég uggði eigi að mér og hugsaði: Aldrei skriðnar mér fótur.8Drottinn, af náð þinni hafðir þú gjört bjarg mitt stöðugt, en nú huldir þú auglit þitt og ég skelfdist.9Til þín, Drottinn, kallaði ég, og Drottin grátbændi ég:10Hver ávinningur er í dauða mínum, í því að ég gangi til grafar? Getur duftið lofað þig, kunngjört trúfesti þína?11Heyr, Drottinn, og líkna mér, ó Drottinn, ver þú hjálpari minn!12Þú breyttir grát mínum í gleðidans, leystir af mér hærusekkinn og gyrtir mig fögnuði,13að sál mín megi lofsyngja þér og eigi þagna. Drottinn, Guð minn, ég vil þakka þér að eilífu.

30.1 Vígsla 1Makk 4.36-59; Jóh 10.22
30.3 Hrópa til Drottins Slm 3.5+ – lækna Slm 6.3; 41.5
30.4 Halda lífi Jes 38.16-18 – ganga til grafar Slm 22.30+
30.5 Syngið Slm 96.1+ – vegsamið Slm 97.12
30.6 Andartak Jes 54.7-8
30.7 Skriðnar aldrei fótur Slm 10.6
30.8 Varðir fjall mitt (fótfesta) sbr Slm 18.34; 2Sam 5.9-11; 1Kon 15.4 – þú huldir auglit þitt Slm 27.9+ – ég skelfdist Slm 104.29
30.9 Kalla á Drottinn Slm 3.5+
30.10 Geta dauðir lofað Guð? Slm 6.6+
30.12 Breyttir gráti í gleði Slm 126.5+