1Og Elíhú hélt áfram og sagði:2Haf þolinmæði við mig enn stutta stund, að ég megi fræða þig, því að enn má margt segja Guði til varnar.3Ég ætla að sækja þekking mína langar leiðir og sanna, að skapari minn hafi á réttu að standa.4Því að vissulega fer ég eigi með ósannindi, maður með fullkominni þekking stendur frammi fyrir þér.5Sjá, Guð er voldugur, þó fyrirlítur hann engan, voldugur að andans krafti.6Hann viðheldur ekki lífi hins óguðlega, en veitir hinum voluðu rétt þeirra.7Hann hefir ekki augun af hinum réttláta, og hjá konungum í hásætinu lætur hann þá sitja að eilífu, til þess að þeir séu hátt upp hafnir.8Og þótt þeir verði viðjum reyrðir, veiddir í snörur eymdarinnar,9og hann setur þeim fyrir sjónir gjörðir þeirra og afbrot þeirra að þeir breyttu drambsamlega,10og hann opnar eyru þeirra fyrir umvönduninni og segir að þeir skuli snúa sér frá ranglæti,11ef þeir þá hlýða og þjóna honum, þá eyða þeir dögum sínum í velgengni og árum sínum í unaði.12En hlýði þeir ekki, þá farast þeir fyrir skotvopnum, gefa upp andann í vanhyggju sinni.13Því að vonskufullir í hjarta ala þeir með sér reiði, hrópa eigi á hjálp, þegar hann fjötrar þá.14Önd þeirra deyr í æskublóma og líf þeirra eins og hórsveina.15En hann frelsar hinn bágstadda með bágindum hans og opnar eyru þeirra með þrengingunni.16Einnig þig ginnir hann út úr gini neyðarinnar út á víðlendi, þar sem engin þrengsli eru, og það sem kemur á borð þitt, er fullt af feiti.17En ef þú vinnur til dóms hins óguðlega, þá munu dómur og réttur hremma þig.18Lát því eigi reiðina ginna þig til spotts, og lát eigi stærð lausnargjaldsins tæla þig.19Mun hróp þitt koma þér úr nauðunum eða nokkur áreynsla krafta þinna?20Þráðu eigi nóttina, þá er þjóðir sópast burt af stöðvum sínum.21Gæt þín, snú þér eigi að ranglæti, því að það kýst þú heldur en að líða.22Sjá, Guð er háleitur í framkvæmdum máttar síns, hver er slíkur kennari sem hann?23Hver hefir fyrirskipað honum veg hans, og hver dirfist að segja: Þú hefir gjört rangt?24Minnstu þess, að þú vegsamir verk hans, það er mennirnir syngja um lofkvæði.25Allir menn horfa með fögnuði á það, dauðlegur maðurinn lítur það úr fjarska.26Já, Guð er mikill og vér þekkjum hann ekki, tala ára hans órannsakanleg.27Því að hann dregur upp vatnsdropana og lætur ýra úr þoku sinni,28regnið, sem skýin láta niður streyma, drjúpa yfir marga menn.29Og hver skilur útbreiðslu skýjanna og dunurnar í tjaldi hans?30Sjá, hann breiðir ljós sitt út kringum sig og hylur djúp hafsins.31Því að með því dæmir hann þjóðirnar, með því veitir hann fæðu í ríkum mæli.32Hendur sínar hylur hann ljósi og býður því út gegn fjandmanni sínum.33Þruma hans boðar komu hans, hans sem lætur reiði sína geisa gegn ranglætinu.

36.5 Fyrirlítur, hafnar ekki Job 34.33
36.6 Guð veitir rétt Job 34.12+
36.7-11 Steypir af stóli Job 34.24+ ; Dan 4.26-34; 2Kro 33.9-13
36.12 Fara yfir Job 27.22+
36.15 Opnar eyra Job 5.18+
36.16 Út á víðlendi 1Mós 26.22; Slm 18.20
36.22-23 Hver ráðleggur Guði? Job 38.3; 40.7; Jes 40.13-14
36.26 Guð er meiri … Slm 145.3 – óteljandi Dan 7.9
36.27-37.24 Um veðrið Job 38.22-38; Slm 147.16-18; Sír 43.13-22
36.29 Rek skýjanna Slm 18.10-15
36.30 Hylur rætur hafsins sbr Slm 18.16
36.31 Gefur mat Slm 104.13-15