1Ljóðaljóðin, eftir Salómon.2Brúðurin Hann kyssi mig kossi munns síns, því að ást þín er betri en vín.3Yndislegur ilmur er af smyrslum þínum, nafn þitt eins og úthellt olía, þess vegna elska meyjarnar þig.4Drag mig á eftir þér! Við skulum flýta okkur! Konungurinn leiði mig í herbergi sín! Fögnum og gleðjumst yfir þér, vegsömum ást þína meir en vín með réttu elska þær þig!5Svört er ég, og þó yndisleg, þér Jerúsalemdætur, sem tjöld Kedars, sem tjalddúkar Salómons.6Takið ekki til þess, að ég er svartleit, því að sólin hefir brennt mig. Synir móður minnar reiddust mér, þeir settu mig til að gæta víngarða míns eigin víngarðs hefi ég eigi gætt.7Seg mér, þú sem sál mín elskar, hvar heldur þú hjörð þinni til haga, hvar bælir þú um hádegið? Því að hví skal ég vera eins og villuráfandi hjá hjörðum félaga þinna?8Brúðguminn Ef þú veist það eigi, þú hin fegursta meðal kvenna, þá far þú og rek för hjarðarinnar og hald kiðum þínum til haga hjá kofum hirðanna.9Við hryssurnar fyrir vagni Faraós líki ég þér, vina mín.10Yndislegar eru kinnar þínar fléttum prýddar, háls þinn undir perluböndum.11Gullfestar viljum vér gjöra þér, settar silfurhnöppum.12Brúðurin Meðan konungurinn hvíldi á legubekk sínum, lagði ilminn af nardussmyrslum mínum.13Unnusti minn er sem myrrubelgur, sem hvílist milli brjósta mér.14Kypur-ber er unnusti minn mér, úr víngörðunum í Engedí.15Brúðguminn Hversu fögur ertu, vina mín, hversu fögur ertu! Augu þín eru dúfuaugu.16Brúðurin Hversu fagur ertu, unnusti minn, já indæll. Já, iðgræn er hvíla okkar.17Bjálkarnir í húsi okkar eru sedrusviðir, þiljur okkar kýprestré.

1.1 Salómon 1Kon 5.12; Ljl 8.11-12; sbr 3.7
1.2 Kyssa Ljl 8.1 – vín (tákn um gleði) Ljl 1.4; 4.10; 5.1; 7.9; 8.2; sbr 2.4; Préd 2.3
1.3 Stúlkurnar Ljl 2.2; 6.8-9; sbr 1Mós 24.43; Jes 7.14; Okv 30.19
1.4 Elskhuganum líkt við konung Ljl 1.12; 7.6; sbr 3.7-11
1.6 Bræður Ljl 8.8 – vínekra (unga stúlkan) Ljl 2.15; 7.13; 8.12; sbr 8.11; Jes 5.1
1.10 Vangar þínir Ljl 5.13 – háls þinn Ljl 4.4; 7.5
1.12 Hægindi (garðurinn) Ljl 4.12,16; 5.1; 6.2 – ilmurinn, fegurð stúlkunnar Ljl 4.6,10,13-14; 5.1,15; 8.2; sbr 4.11 – eða unga mannsins Ljl 1.13,14; 5.13, sbr 3.6
1.13 Elskuhugi minn Ljl 5.8-9
1.14 Engedí 1Sam 24.1-2
1.15 Hve fögur ertu Ljl 4.1,7; 6.4; 7.7 – dúfa Ljl 2.14; 5.12; 6.9