1Maðurinn, af konu fæddur, lifir stutta stund og mettast órósemi.2Hann rennur upp og fölnar eins og blóm, flýr burt eins og skuggi og hefir ekkert viðnám.3Og yfir slíkum heldur þú opnum augum þínum og dregur mig fyrir dóm hjá þér!4Hvernig ætti hreinn að koma af óhreinum? Ekki einn!5Ef dagar hans eru ákvarðaðir, tala mánaða hans tiltekin hjá þér, hafir þú ákveðið takmark hans, er hann fær eigi yfir komist,6þá lít þú af honum, til þess að hann fái hvíld, svo að hann megi fagna yfir degi sínum eins og daglaunamaður.7Því að tréð hefir von, sé það höggvið, þá skýtur það nýjum frjóöngum, og teinungurinn kemur áreiðanlega upp.8Jafnvel þótt rót þess eldist í jörðinni, og stofn þess deyi í moldinni,9þá brumar það við ilminn af vatninu, og á það koma greinar eins og unga hríslu.10En deyi maðurinn, þá liggur hann flatur, og gefi manneskjan upp andann hvar er hún þá?11Eins og vatnið hverfur úr stöðuvatninu og fljótið grynnist og þornar upp,12þannig leggst maðurinn til hvíldar og rís eigi aftur á fætur. Hann rumskar ekki, meðan himnarnir standa og vaknar ekki af svefninum.13Ó að þú vildir geyma mig í dánarheimum, fela mig, uns reiði þinni linnir, setja mér tímatakmark og síðan minnast mín!14Þegar maðurinn deyr, lifnar hann þá aftur? þá skyldi ég þreyja alla daga herþjónustu minnar, þar til er lausnartíð mín kæmi.15Þú mundir kalla, og ég ég mundi svara þér, þú mundir þrá verk handa þinna.16Því að þá mundir þú telja spor mín, eigi vaka yfir synd minni.17Afbrot mín lægju innsigluð í böggli, og á misgjörð mína drægir þú hvítan lit.18En eins og fjallið molnar sundur, er það hrynur, og kletturinn færist úr stað sínum,19eins og vatnið holar steinana og vatnsflóðin skola burt jarðarleirnum, svo hefir þú gjört von mannsins að engu.20Þú ber hann ofurliði að eilífu, og hann fer burt, þú afmyndar ásjónu hans og rekur hann á brott.21Komist börn hans til virðingar, þá veit hann það ekki, séu þau lítilsvirt, verður hann þess ekki var.22Aðeins kennir líkami hans eigin sársauka, og sál hans hryggist yfir sjálfum honum.

14.1 Lifir stutt Job 7.7+ ; Sír 40.1
14.2 Visnar eins og blóm Job 8.12+ – eins og skuggi Job 8.9; Slm 144.4; 1Kro 29.15
14.6 Fái hvíld Job 7.19+
14.7 Tréð á sér framtíð Job 19.10; Jes 6.13
14.11 Vatn hverfur Jes 19.5
14.12 Rís ekki aftur Job 7.9+
14.13 Uns reiði þinni slotar Job 2.10; Jes 26.20
14.16 Guð gætir Job 7.19+