1Eftir það gengu þeir Móse og Aron á fund Faraós og sögðu: Svo segir Drottinn, Guð Ísraelsmanna: Gef fólki mínu fararleyfi, að það megi halda mér hátíð í eyðimörkinni.2En Faraó sagði: Hver er Drottinn, að ég skuli hlýða honum til þess að leyfa Ísrael að fara? Ég þekki ekki Drottin, og Ísrael leyfi ég eigi heldur að fara.3Þeir sögðu: Guð Hebrea hefir komið til móts við oss. Leyf oss að fara þriggja daga leið út í eyðimörkina til að færa fórnir Drottni, Guði vorum, að hann láti eigi yfir oss koma drepsótt eða sverð.4En Egyptalandskonungur sagði við þá: Hví viljið þið, Móse og Aron, taka fólkið úr vinnunni? Farið til erfiðis yðar!5Og Faraó sagði: Nú, þegar fólkið er orðið svo margt í landinu, þá viljið þið láta það hætta að erfiða!6Sama dag bauð Faraó verkstjórum þeim, er settir voru yfir fólkið, og tilsjónarmönnum þess og sagði:7Upp frá þessu skuluð þér eigi fá fólkinu hálmstrá til að gjöra tigulsteina við, eins og hingað til. Þeir skulu sjálfir fara og safna sér stráum,8en þó skuluð þér setja þeim fyrir að gjöra jafnmarga tigulsteina og þeir hafa gjört hingað til, og minnkið ekki af við þá, því að þeir eru latir. Þess vegna kalla þeir og segja: Vér viljum fara og færa fórnir Guði vorum.9Það verður að þyngja vinnuna á fólkinu, svo að það hafi nóg að starfa og hlýði ekki á lygifortölur.10Þá gengu verkstjórar fólksins og tilsjónarmenn þess út og mæltu þannig til fólksins: Svo segir Faraó: Ég læt eigi fá yður nein hálmstrá.11Farið sjálfir og fáið yður strá, hvar sem þér finnið, en þó skal alls ekkert minnka vinnu yðar.12Þá fór fólkið víðsvegar um allt Egyptaland að leita sér hálmleggja til að hafa í stað stráa.13En verkstjórarnir ráku eftir þeim og sögðu: Ljúkið dag hvern við yðar ákveðna dagsverk, eins og meðan þér höfðuð stráin.14Og tilsjónarmenn Ísraelsmanna, sem verkstjórar Faraós höfðu sett yfir þá, voru barðir og sagt við þá: Hví hafið þér eigi lokið við yðar ákveðna tigulgerðarverk, hvorki í gær né í dag, eins og áður fyrr?15Tilsjónarmenn Ísraelsmanna gengu þá fyrir Faraó, báru sig upp við hann og sögðu: Hví fer þú svo með þjóna þína?16Þjónum þínum eru engin strá fengin, og þó er sagt við oss: Gjörið tigulsteina. Og sjá, þjónar þínir eru barðir og á þitt fólk sök á þessu.17En hann sagði: Þér eruð latir og nennið engu! Þess vegna segið þér: Látum oss fara og færa Drottni fórnir.18Farið nú og erfiðið! Og engin strá skal fá yður, en þó skuluð þér inna af hendi hina ákveðnu tigulsteina.19Þá sáu tilsjónarmenn Ísraelsmanna í hvert óefni komið var fyrir þeim, þegar sagt var við þá: Þér skuluð engu færri tigulsteina gjöra, hinu ákveðna dagsverki skal aflokið hvern dag!20Þegar þeir komu út frá Faraó, mættu þeir þeim Móse og Aroni, sem stóðu þar og biðu þeirra.21Og þeir sögðu við þá: Drottinn líti á ykkur og dæmi, þar eð þið hafið gjört oss illa þokkaða hjá Faraó og þjónum hans og fengið þeim sverð í hendur til að drepa oss með.22Þá sneri Móse sér aftur til Drottins og sagði: Drottinn, hví gjörir þú svo illa við þetta fólk? Hví hefir þú þá sent mig?23Því síðan ég gekk fyrir Faraó til að tala í þínu nafni, hefir hann misþyrmt þessum lýð, og þú hefir þó alls ekki frelsað lýð þinn.

5.1 Hátíð 2Mós 23.14-17; 1Sam 1.3; Lúk 2.41; Post 2.5
5.3 Þrjár dagleiðir 2Mós 3.18+