1Þessi eru orð bréfsins, sem Jeremía spámaður sendi frá Jerúsalem til öldunga hinna herleiddu og til prestanna og til spámannanna og til alls lýðsins, sem Nebúkadnesar hafði herleitt frá Jerúsalem til Babýlon2eftir að Jekonja konungur og konungsmóðir og hirðmennirnir, höfðingjar Júda og Jerúsalem, og trésmiðirnir og járnsmiðirnir voru farnir burt úr Jerúsalem ,3með Elasa Safanssyni og Gemaría Hilkíasyni, sem Sedekía Júdakonungur sendi til Nebúkadnesars Babelkonungs til Babýlon:4Svo segir Drottinn allsherjar, Ísraels Guð, öllum hinum herleiddu, þeim er ég herleiddi frá Jerúsalem til Babýlon:5Reisið hús og búið í þeim, plantið garða og etið ávöxtu þeirra.6Takið yður konur og getið sonu og dætur, og takið sonum yðar konur og giftið dætur yðar, til þess að þær megi fæða sonu og dætur og yður fjölgi þar, en fækki ekki.7Látið yður umhugað um heill borgarinnar, sem ég herleiddi yður til, og biðjið til Drottins fyrir henni, því að heill hennar er heill sjálfra yðar.8Því að svo segir Drottinn allsherjar, Ísraels Guð: Látið eigi spámenn yðar, sem meðal yðar eru, né spásagnamenn yðar tæla yður, og trúið ekki á drauma yðar, sem yður dreymir.9Því að þeir spá yður ranglega í mínu nafni, ég hefi ekki sent þá! segir Drottinn.10Svo segir Drottinn: Þegar sjötíu ár eru umliðin fyrir Babýlon, mun ég vitja yðar og efna við yður fyrirheit mitt að flytja yður aftur á þennan stað.11Því að ég þekki þær fyrirætlanir, sem ég hefi í hyggju með yður segir Drottinn fyrirætlanir til heilla, en ekki til óhamingju, að veita yður vonarríka framtíð.12Þá munuð þér ákalla mig og fara og biðja til mín, og ég mun bænheyra yður.13Og þér munuð leita mín og finna mig. Þegar þér leitið mín af öllu hjarta,14vil ég láta yður finna mig segir Drottinn og snúa við högum yðar og safna yður saman frá öllum þjóðum og úr öllum þeim stöðum, þangað sem ég hefi rekið yður segir Drottinn og flytja yður aftur á þann stað, þaðan sem ég herleiddi yður.15Þér segið: Drottinn hefir vakið oss upp spámenn í Babýlon.16Svo segir Drottinn um konunginn, sem situr í hásæti Davíðs, og um allan lýðinn, sem býr í þessari borg, bræður yðar, sem ekki voru herleiddir með yður17svo segir Drottinn allsherjar: Sjá, ég sendi yfir þá sverð, hungur og drepsótt og gjöri þá eins og viðbjóðslegar fíkjur, sem eru svo vondar, að þær eru ekki ætar,18og ég elti þá með sverði, hungri og drepsótt og gjöri þá að grýlu öllum konungsríkjum jarðar, að formæling, að skelfing, að spotti og háðung meðal allra þjóða, þangað sem ég rek þá,19fyrir það að þeir hlýddu ekki orðum mínum segir Drottinn er ég hefi óaflátanlega sent þjóna mína, spámennina, með til þeirra, en þér heyrðuð ekki segir Drottinn.20En heyrið þér orð Drottins, allir þér hinir herleiddu, er ég hefi sent frá Jerúsalem til Babýlon.21Svo segir Drottinn allsherjar, Ísraels Guð, um Ahab Kólajason og um Sedekía Maasejason, sem boða yður lygar í mínu nafni: Sjá, ég gef þá Nebúkadresar Babelkonungi á vald, og hann mun láta drepa þá fyrir augum yðar.22Og þeir munu verða bölbænar-formáli fyrir alla hina herleiddu úr Júda, sem eru í Babýlon, svo að menn kveði svo að orði: Drottinn fari með þig eins og Sedekía og Ahab, sem Babelkonungur steikti á eldi.23Sök þeirra er, að þeir frömdu óhæfuverk í Ísrael og drýgðu hór með konum vina sinna og töluðu orð í mínu nafni, er ég hafði þeim eigi um boðið, já ég þekki það sjálfur og er vottur að því! segir Drottinn.24En við Semaja frá Nehalam skalt þú segja á þessa leið:25Svo segir Drottinn allsherjar, Ísraels Guð: Þú hefir sent bréf í þínu eigin nafni til alls lýðsins, sem er í Jerúsalem, og til Sefanía Maasejasonar prests og til allra prestanna, þess efnis:26Drottinn hefir sett þig prest í stað Jójada prests, til þess að þú hafir nákvæmar gætur í musteri Drottins á öllum óðum mönnum og þeim, er spámannsæði er á, og setjir þá í stokk og hálsjárn!27Hví hefir þú þá ekki ávítað Jeremía frá Anatót, sem hér iðkar spádóma?28Þannig hefir hann gjört oss svolátandi orðsending til Babýlon: Það verður langvinnt! Reisið hús og búið í þeim og plantið garða og etið ávöxtu þeirra.29En Sefanía prestur las þetta bréf upphátt fyrir Jeremía spámanni.30Þá kom orð Drottins til Jeremía, svo hljóðandi:31Gjör öllum hinum herleiddu svo hljóðandi orðsending: Svo segir Drottinn um Semaja frá Nehalam: Sökum þess að Semaja hefir spáð yður án þess að ég hafi sent hann og ginnt yður til þess að reiða yður á lygar,32fyrir því segir Drottinn svo: Sjá, ég mun hefna þess á Semaja frá Nehalam og niðjum hans. Hann skal ekki eiga neinn niðja, sem búi meðal þessarar þjóðar, og hann skal ekki fá litið þau gæði, sem ég bý þjóð minni segir Drottinn því að hann hefir prédikað fráhvarf frá Drottni.

29.1 Bréf sbr BJer – fyrsta herleiðingin Jer 28.4; 52.28; 2Kon 24.15 – Nebúkadnesar Jer 21.2+
29.2 Jekonja og móðir hans Jer 22.24-27; sbr 13.18
29.3 Sonur Safans Jer 26.24 – Hilkía 2Kon 22.4-20
29.6 Frjósemi Jer 30.19; 1Mós 1.28; 9.1-7
29.7 Hagsæld borgarinnar Esr 6.10; Bar 1.11; 1Tím2.1-2
29.8 Látið ekki blekkjast Matt 7.15
29.9 Boða lygi, ekki sendir Jer 14.14+
29.10 Sjötíu ár Jer 25.11+ – ég vitja Jer 27.22+ ; sbr 23.2 – standa við heit mitt Jer 33.14
29.11 Fyrirætlanir Jer 24.5 – framtíð Jer 31.17
29.12 Ákallið mig Jer 33.3
29.13 Leita og finna 5Mós 4.29; Jes 55.6; 2Kro 15.4; SSal 6.13
29.14 Endurreisn Jer 30.3,18; 31.23; 32.44; 33.7,11,26; Jl 4.1; Hlj 2.14; sbr Hós 6.11+ ; Jer 12.15+ – safna saman Jer 23.3+
29.16 Útlagarnir og þau sem eftir urðu Jer 24.3-10
29.17 Sverð … Jer 14.12+ – óætar Jer 24.2
29.18 Valda skelfingu Jer 34.17 – formæling Jer 24.9+ ; 26.6; 42.18 – skelfing og spott Jer 18.16+
29.19 Þjónar mínir Jer 7.25+
29.22 Nöfn þeirra notuð til bölbæna Jes 65.15
29.23 Lygisspámenn Jer 23.9-40 – óhæfuverk í Ísrael 1Mós 34.7; 5Mós 22.21; Jós 7.15; Dóm 20.6; 2Sam 13.12 – hórkarlar Jer 9.1+ – Drottinn veit Jer 15.15
29.25 Sefanía Jer 21.1+
29.26 Í stokk Jer 20.2
29.31 Ekki sendur Jer 29.9; 14.14+ – lygar Jer 13.25+
29.32 Frahvarf Jer 28.16