1Betri er fátækur maður, sem framgengur í ráðvendni sinni, heldur en lævís lygari og heimskur að auki.2Kapp er best með forsjá, og sá sem hraðar sér, misstígur sig.3Flónska mannsins steypir fyrirtækjum hans, en hjarta hans illskast við Drottin.4Auður fjölgar vinum, en fátækur maður verður vinum horfinn.5Falsvottur sleppur ekki óhegndur, og sá sem fer með lygar, kemst ekki undan.6Margir reyna að koma sér í mjúkinn hjá tignarmanninum, og allir eru vinir þess, sem gjafir gefur.7Allir bræður hins snauða hata hann, hversu miklu fremur firrast þá vinir hans hann.8Sá sem aflar sér hygginda, elskar líf sitt, sá sem varðveitir skynsemi, mun gæfu hljóta.9Falsvottur sleppur ekki óhegndur, og sá sem fer með lygar, tortímist.10Sællífi hæfir eigi heimskum manni, hvað þá þræli að drottna yfir höfðingjum.11Hyggni mannsins gjörir hann seinan til reiði, og það er honum til frægðar að ganga fram hjá mótgjörðum.12Konungsreiði er eins og ljónsöskur, en hylli hans sem dögg á grasi.13Heimskur sonur er föður sínum sönn óhamingja, og konuþras er sífelldur þakleki.14Hús og auður er arfur frá feðrunum, en skynsöm kona er gjöf frá Drottni.15Letin svæfir þungum svefni, og iðjulaus maður mun hungur þola.16Sá sem varðveitir boðorðið, varðveitir líf sitt, en sá deyr, sem ekki hefir gát á vegum sínum.17Sá lánar Drottni, er líknar fátækum, og hann mun launa honum góðverk hans.18Aga þú son þinn, því að enn er von, en farðu eigi svo langt, að þú deyðir hann.19Sá sem illa reiðist, verður að greiða sekt, því að ætlir þú að bjarga, gjörir þú illt verra.20Hlýð þú ráðum og tak umvöndun, til þess að þú verðir vitur eftirleiðis.21Mörg eru áformin í mannshjartanu, en ráðsályktun Drottins stendur.22Unun mannsins er kærleiksverk hans, og betri er fátækur maður en lygari.23Ótti Drottins leiðir til lífs, þá hvílist maðurinn mettur, verður ekki fyrir neinni ógæfu.24Latur maður dýfir hendinni ofan í skálina, en ekki nennir hann að bera hana aftur upp að munninum.25Sláir þú spottarann, verður hinn einfaldi hygginn, og sé vandað um við skynsaman mann, lærir hann hyggindi.26Sá sem misþyrmir föður sínum og rekur burt móður sína, slíkur sonur fremur smán og svívirðing.27Hættu, son minn, að hlýða á umvöndun, ef það er til þess eins, að þú brjótir á móti skynsamlegum orðum.28Samviskulaus vottur gjörir gys að réttinum, og munnur óguðlegra gleypir rangindi.29Refsidómar eru búnir spotturunum og högg baki heimskingjanna.

19.4 Vinátta Okv 14.20+
19.5 Falsvotti refsað Okv 6.19+
19.6 Gefa gjafir Okv 17.8+
19.9 sbr Okv 19.5
19.13 Konuþras Okv 21.9,19; Sír 25.13-26; sbr Okv 18.22+
19.14 Hyggin kona Okv 18.22+
19.15 Hlutskipti letingjans Okv 6.11+
19.21 Áform Drottins Okv 16.1,9
19.23 Ótti Drottins Okv 10.27+
19.25 Spottari Okv 1.22+
19.26 Illur sonur Okv 20.20+
19.29 Vandarhögg Okv 13.24+