1En Móse gætti sauða Jetró tengdaföður síns, prests í Midíanslandi. Og hann hélt fénu vestur yfir eyðimörkina og kom til Guðs fjalls, til Hóreb.2Þá birtist honum engill Drottins í eldsloga, sem lagði út af þyrnirunna nokkrum. Og er hann gætti að, sá hann, að þyrnirunninn stóð í ljósum loga, en brann ekki.3Þá sagði Móse: Ég vil ganga nær og sjá þessa miklu sýn, hvað til þess kemur, að þyrnirunninn brennur ekki.4En er Drottinn sá, að hann vék þangað til að skoða þetta, þá kallaði Guð til hans úr þyrnirunnanum og sagði: Móse, Móse! Hann svaraði: Hér er ég.5Guð sagði: Gakk ekki hingað! Drag skó þína af fótum þér, því að sá staður, er þú stendur á, er heilög jörð.6Því næst mælti hann: Ég er Guð föður þíns, Guð Abrahams, Guð Ísaks og Guð Jakobs. Þá byrgði Móse andlit sitt, því að hann þorði ekki að líta upp á Guð.7„Drottinn sagði: Ég hefi sannlega séð ánauð þjóðar minnar í Egyptalandi og heyrt hversu hún kveinar undan þeim, sem þrælka hana; ég veit, hversu bágt hún á.“8Ég er ofan farinn til að frelsa hana af hendi Egypta og til að leiða hana úr þessu landi og til þess lands, sem er gott og víðlent, til þess lands, sem flýtur í mjólk og hunangi, á stöðvar Kanaaníta, Hetíta, Amoríta, Peresíta, Hevíta og Jebúsíta.9Nú með því að kvein Ísraelsmanna er komið til mín, og ég auk þess hefi séð, hversu harðlega Egyptar þjaka þeim,10þá far þú nú. Ég vil senda þig til Faraós, og þú skalt leiða þjóð mína, Ísraelsmenn, út af Egyptalandi.11En Móse sagði við Guð: Hver er ég, að ég fari til fundar við Faraó og að ég leiði Ísraelsmenn út af Egyptalandi?12Þá sagði hann: Sannlega mun ég vera með þér. Og það skalt þú til marks hafa, að ég hefi sent þig, að þá er þú hefir leitt fólkið út af Egyptalandi, munuð þér þjóna Guði á þessu fjalli.13Móse sagði við Guð: En þegar ég kem til Ísraelsmanna og segi við þá: Guð feðra yðar sendi mig til yðar, og þeir segja við mig: Hvert er nafn hans? hverju skal ég þá svara þeim?14Þá sagði Guð við Móse: Ég er sá, sem ég er. Og hann sagði: Svo skalt þú segja Ísraelsmönnum: Ég er sendi mig til yðar.15Guð sagði enn fremur við Móse: Svo skalt þú segja Ísraelsmönnum: Drottinn, Guð feðra yðar, Guð Abrahams, Guð Ísaks og Guð Jakobs sendi mig til yðar. Þetta er nafn mitt um aldur, og þetta er heiti mitt frá kyni til kyns.16Far nú og safna saman öldungum Ísraels og mæl við þá: Drottinn, Guð feðra yðar birtist mér, Guð Abrahams, Ísaks og Jakobs, og sagði: Ég hefi vitjað yðar og séð, hversu með yður hefir verið farið í Egyptalandi.17Og ég hefi sagt: Ég vil leiða yður úr ánauð Egyptalands inn í land Kanaaníta, Hetíta, Amoríta, Peresíta, Hevíta og Jebúsíta, í það land, sem flýtur í mjólk og hunangi.18Þeir munu skipast við orð þín og skaltu þá ganga með öldungum Ísraels fyrir Egyptalandskonung, og skuluð þér segja við hann: Drottinn, Guð Hebrea, hefir komið til móts við oss. Leyf oss því nú að fara þrjár dagleiðir á eyðimörkina, að vér færum fórnir Drottni, Guði vorum.19Veit ég þó, að Egyptalandskonungur mun eigi leyfa yður burtförina, og jafnvel ekki þótt hart sé á honum tekið.20En ég vil útrétta hönd mína og ljósta Egyptaland með öllum undrum mínum, sem ég mun fremja þar, og þá mun hann láta yður fara.21Og ég skal láta þessa þjóð öðlast hylli Egypta, svo að þá er þér farið, skuluð þér eigi tómhentir burt fara,22heldur skal hver kona biðja grannkonu sína og sambýliskonu um silfurgripi og gullgripi og klæði, og það skuluð þér láta sonu yðar og dætur bera, og þannig skuluð þér ræna Egypta.

3.1 Fjall Guðs 2Mós 4.27; 18.5; 24.13; 1Kon 19.8
3.5 Drag skó þína … Jós 5.15
3.6 Guð Abrahams, Ísaks og Jakobs 2Mós 4.5; 6.3; Mrk 12.26 og hlst. – óttaðist 1Mós 28.17; Dóm 6.22-23; Jes 6.5; Matt 17.6; Mrk 16.5-8; Lúk 5.8-9
3.12 Tákn 1Mós 24.12-14; Dóm 6.17-18,36-40; 1Sam 14.10; 2Kon 19.29; Jóh 2.11 – þjóna Guði Post 7.7
3.13 Guð feðra ykkar 2Mós 6.2-3 – nafn hans Jóh 17.6,26
3.14 Ég er sá, sem ég er Opb 1.4,8 – ég er Jóh 8.24,28,58
3.15 Heiti mitt Hós 12.6; Slm 135.13
3.16 Drottinn fylgist með 2Mós 4.31; 1Mós 21.1; 50.24-25; Slm 65.10; Jer 29.10
3.18 Þrjár dagleiðir 2Mós 5.3; 8.27
3.22 Egyptar rændir 2Mós 11.2-3; 12.35-36; 1Mós 15.14; SSal 10.17-20