1Hinir réttlátu líða undir lok, og enginn leggur það á hjarta. Hinum guðhræddu er burt svipt, og enginn veitir því athygli. Hinir réttlátu verða burt numdir frá ógæfunni,2þeir ganga inn til friðar. Þeir, sem ganga beina braut, munu hvíla í legurúmum sínum.3Komið þér hingað, þér seiðkonusynir, þú afsprengi hórkarls og skækju!4Að hverjum skopist þér? Framan í hvern eruð þér að bretta yður og reka út úr yður tunguna? Eruð þér ekki syndarinnar börn og lyginnar afsprengi?5Þér brunnuð af girndarbruna hjá eikitrjánum, undir hverju grænu tré, þér slátruðuð börnum í dölunum, niðri í klettagjánum.6Á sleipum steinum í árfarvegi skriðnar þér fótur. Þú úthelltir drykkjarfórn handa þeim, færðir þeim matfórn. Átti ég að una slíku?7Á háu og gnæfandi fjalli settir þú hvílurúm þitt, þú fórst og upp þangað til þess að færa fórnir.8Á bak við hurð og dyrastafi settir þú minningarmark þitt. Já, fráhverf mér flettir þú ofan af hvílu þinni, steigst upp í hana og rýmkaðir til í henni og gjörðir samning við þá. Þér voru kær hvílubrögð þeirra, þú sást blygðan þeirra.9Þú fórst til konungsins með olíu og hafðir með þér mikil smyrsl, og þú sendir sendiboða þína langar leiðir og steigst niður allt til Heljar.10Þú varðst þreytt af hinu langa ferðalagi þínu, en þó sagðir þú ekki: Ég gefst upp! Þú fannst nýjan lífsþrótt í hendi þinni, fyrir því örmagnaðist þú ekki.11Hvern hræddist og óttaðist þú þá, að þú skyldir bregða svo trúnaði þínum, að þú skyldir ekki muna til mín, ekkert um mig hirða? Er eigi svo: Ég hefi þagað, og það frá eilífð, mig óttaðist þú því ekki?12En ég skal gjöra réttlæti þitt kunnugt, og verkin þín þau munu þér að engu liði verða.13Lát skurðgoðin, sem þú hefir saman safnað, bjarga þér, er þú kallar á hjálp! Vindurinn mun svipta þeim öllum í burt, gusturinn taka þau. En sá, sem leitar hælis hjá mér, mun erfa landið og eignast mitt heilaga fjall.14Sagt mun verða: Leggið braut, leggið braut, greiðið veginn, ryðjið hverjum ásteytingarsteini úr vegi þjóðar minnar!15Já, svo segir hinn hái og háleiti, hann sem ríkir eilíflega og heitir Heilagur: Ég bý á háum og helgum stað, en einnig hjá þeim, sem hafa sundurkraminn og auðmjúkan anda, til þess að lífga anda hinna lítillátu og til þess að lífga hjörtu hinna sundurkrömdu.16Því að ég þreyti ekki deilur eilíflega og reiðist ekki ævinlega, ella mundi andi mannsins vanmegnast fyrir mér og sálirnar, sem ég hefi skapað.17Sökum hinnar syndsamlegu ágirndar hans reiddist ég og laust hann, ég byrgði andlit mitt og var reiður. Þrjóskufullur hélt hann þá leið, er hann lysti.18Ég sá vegu hans og ég vil lækna hann, ég vil leiða hann og veita honum hugsvölun. Öllum þeim, sem hryggir eru hjá honum,19vil ég gefa ávöxt varanna segir Drottinn. Friður, friður fyrir fjarlæga og fyrir nálæga. Ég lækna hann!20En hinir óguðlegu eru sem ólgusjór, því að hann getur ekki verið kyrr og bylgjur hans róta upp aur og leðju.21Hinum óguðlegu, segir Guð minn, er enginn friður búinn.

57.1 Svipt burt Mík 7.2; Slm 12.2
57.3 Hórkarl og skækja Jer 3.9; Esk 16; Hós 2.4; Mal 3.5
57.4 Að hverjum Jes 37.23
57.5 Undir hverju laufguðu tré 5Mós 12.2; Jer 2.20; Jes 6.13; sbr 1.29 – slátrið börnum 3Mós 18.21; 5Mós 12.31; Jer 7.31
57.6 Steinum 2Kon 17.10-11
57.8 Girntist … Esk 16.15
57.9 Melek sbr 3Mós 20.5; 1Kon 11.7; Jer 32.35 – með olíu Mík 6.7
57.10 Þreyttist Jer 2.25
57.11 Þagði Jes 42.14+
57.13 Bjarga þér Dóm 10.14; Jer 2.28 – erfa landið Jes 60.21; Slm 37.9,34; Matt 5.5
57.14 Gera veginn greiðan Jes 40.3 – þjóðar minnar Jes 62.10
57.15 Hinn upphafni Jes 6.1; 52.13 – þjökuðum Jes 53.5,10; 66.2; Slm 34.19 – lítillátu Slm 138.6
57.16 Ekki eilíflega Jer 3.5,12; Slm 103.9 – sem Guð skapaði Jes 42.5
57.17 Reiddist Jes 54.8-9 – sló Jes 60.10 – héldu þann veg Jes 56.11; Jer 3.17; 7.24; sbr 50.6
57.18 Veg Jes 55.8-9 – lækna Jer 3.22; Hós 6.1 – veita huggun Jes 40.1+ – hryggir Jes 60.20; 61.2-3; 66.10
57.19 Fjarri … nærri Jer 25.26; Esk 6.12; 22.5; Ef 2.13,17; sbr Post 2.39
57.21 Guðleysingjar Jes 48.22