1Spádómur um Níníve. Bókin um vitrun Nahúms Elkósíta.2Drottinn er vandlætissamur Guð og hefnari. Drottinn er hefnari og fullur gremi. Drottinn hefnir sín á mótstöðumönnum sínum og er langrækinn við óvini sína.3Drottinn er seinn til reiði og mikill að krafti, en óhegnt lætur hann ekki. Drottinn brunar áfram í fellibyljum og stormviðri, og skýin eru rykið undir fótum hans.4Hann hastar á sjóinn og þurrkar hann upp, og hann lætur öll fljót þorna. Þá fölnar Basan og Karmel, þá fölnar jurtagróðurinn á Líbanon.5Fjöllin skjálfa fyrir honum, og hálsarnir renna sundur. Jörðin gengur skykkjum fyrir honum, heimskringlan og allir sem á henni búa.6Hver fær staðist gremi hans og hver fær afborið hans brennandi reiði? Heift hans úthellist eins og eldur og björgin bresta sundur fyrir honum.7Drottinn er góður, athvarf á degi neyðarinnar, og hann þekkir þá sem treysta honum.8En með yfirgeisandi vatnsflóði mun hann gjörsamlega afmá Níníve, og myrkur mun ofsækja óvini hans.9Hvað bruggið þér gegn Drottni? Hann eyðir svo, að af tekur þrengingin mun ekki koma tvisvar.10Þótt þeir væru samflæktir sem þyrnar og votir sem vín þeirra, þá munu þeir upp brenndir verða sem skraufþurrir hálmleggir.11Frá þér, Níníve, út gekk sá, er hafði illt í huga gegn Drottni, sá er hafði skaðsemdar áform með höndum.12Svo segir Drottinn: Þótt þeir komi allir með tölu og afar fjölmennir, þá skulu þeir allt að einu afmáðir verða og farast. Hafi ég auðmýkt þig, Júda, þá mun ég ekki auðmýkja þig framar.13Og nú vil ég brjóta ok hans af þér og slíta bönd þín.14En um þig, Níníve, mun Drottinn skipa svo fyrir: Ekkert afkvæmi skal framar koma út af nafni þínu. Ég vil eyða skurðmyndunum og steyptu líkneskjunum úr hofi guðs þíns, ég vil búa þér gröf, því að þú ert léttvæg fundin.15Sjá á fjöllunum fætur fagnaðarboðans, þess er friðinn kunngjörir. Hald hátíðir þínar, Júda, gjald heit þín, því að eyðandinn skal ekki framar um hjá þér fara hann er með öllu afmáður.

1.1 Spádómur Jes 13.1+ Níníve 1Mós 10.11; 2Kon 19.36; Jón 1.2; Sef 2.13 – vitrun Esk 7.26; Ób 1+
1.2 Ákaflyndur Guð 2Mós 20.5+ – heiftrækinn 5Mós 7.10; Jes 59.17; Jer 5.9; Sír 12.6; Opb19.2; sbr 2Mós 34.7
1.3 Seinn til reiði 2Mós 34.6-7; 4Mós 14.18; Neh 9.17; Jl 2.13; Slm 103.8; 145.8 – í stormviðri Jer 23.19; Esk 13.13; Slm 50.3; Job 38.1 – ský 2Mós 13.21-22; 19.9; 33.9-10; 1Kon 8.10-11; Slm 99.7; sbr Jl 2.2; Sef 1.15; Slm 18.10; 97.2
1.4 Hafið þurrkað upp 2Mós 14.21; Jes 50.2; 51.10; Slm 106.9; einnig 1Mós 1.9; Slm 18.16 – Basan Am 4.1+ ; Karmel Jes 33.9; 35.2 – Líbanon Jes 2.13
1.5 Fjöllin skjálfa Jer 4.24; Slm 18.8+
1.6 Hver fær staðist? Jl 2.11; Mal 3.2; Slm 76.8; 130.3; 143.2; Opb 6.17
1.7 Drottinn er góður Jer 33.11; Róm 11.22; sbr Sír 5.6 – athvarf Jes 4.6; 25.4, Slm 46.2; 77.3+; 119.114; sbr 18.3; 61.5 – leita hælis hjá Guði Slm 7.2+
1.8 Æðir fram Slm 124.4-5+
1.9 Hyggist gegn Drottni Jes 29.15; 30.1-2; Hós 7.15 – Drottinn eyðir Jer 30.11; 1Kor 1.19
1.11 Illviljaði 2Kon 19.4,16; Jes 37.23-24
1.13 Brjóta ok 3Mós 26.13; Jes 14.25; Jer 30.8; Esk 34.27; sbr Slm 107.14
1.14 Fyrirlitleg Dan 5.27