1Andi minn er bugaður, dagar mínir þrotnir, gröfin bíður mín.2Vissulega eru þeir enn að gjöra gys að mér! Auga mitt verður að horfa upp á móðganir þeirra!3Set veð, gakk í ábyrgð fyrir mig hjá þér, Guð, hver mun annars taka í hönd mér?4Því að hjörtum þeirra hefir þú varnað vits, fyrir því munt þú ekki láta þá sigri hrósa.5Hver sem með svikum framselur vini sína að herfangi, augu barna hans munu daprast.6Hann hefir gjört mig að orðskviði meðal manna, og ég verð að láta hrækja í andlit mitt.7Fyrir því dapraðist auga mitt af harmi, og limir mínir eru allir orðnir sem skuggi.8Réttvísir menn skelfast yfir því, og hinn saklausi fárast yfir hinum óguðlega.9En hinn réttláti heldur fast við sína leið, og sá sem hefir hreinar hendur, verður enn styrkari.10En komið þér allir hingað aftur, og ég mun ekki finna neinn vitran mann meðal yðar.11Dagar mínir eru liðnir, fyrirætlanir mínar sundurtættar, hin dýrasta eign hjarta míns.12Nóttina gjöra þeir að degi, ljósið á að vera nær mér en myrkrið.13Þegar ég vonast eftir að dánarheimar verði híbýli mitt, bý mér hvílu í myrkrinu,14þegar ég kalla gröfina föður minn, ormana móður mína og systur15hvar er þá von mín, já, von mín hver eygir hana?16Að slagbröndum Heljar stígur hún niður, þá er ég um leið fæ hvíld í moldu.

17.1 Mín bíður gröfin Jes 38.10; Slm 88.4-6
17.3 Handsala Okv 6.1; Sír 29.14-20
17.6 Athlægi Job 12.4+
17.8 Hryllir Jes 52.14-15
17.12 Nótt að degi sbr Job 11.17+
17.15 Von mín Job 13.15+