1En Drottinn sagði við Móse: Þú skalt nú sjá, hvað ég vil gjöra Faraó, því að fyrir voldugri hendi skal hann þá lausa láta, fyrir voldugri hendi skal hann reka þá burt úr landi sínu.2Guð talaði við Móse og sagði við hann: Ég er Drottinn!3Ég birtist Abraham, Ísak og Jakob sem Almáttugur Guð, en undir nafninu Drottinn hefi ég eigi opinberast þeim.4Ég gjörði og við þá sáttmála, að gefa þeim Kanaanland, dvalarland þeirra, er þeir dvöldust í sem útlendingar.5Ég hefi og heyrt kveinstafi Ísraelsmanna, sem Egyptar hafa að þrælum gjört, og ég hefi minnst sáttmála míns.6Seg því Ísraelsmönnum: Ég er Drottinn. Ég vil leysa yður undan ánauð Egypta og hrífa yður úr þrældómi þeirra og frelsa yður með útréttum armlegg og miklum refsidómum.7Ég vil útvelja yður til að vera mitt fólk, og ég vil vera yðar Guð, og þér skuluð reyna, að ég er Drottinn, Guð yðar, sem leysi yður undan ánauð Egypta.8Og ég vil leiða yður inn í það land, sem ég sór að gefa Abraham, Ísak og Jakob, og ég vil gefa yður það til eignar. Ég er Drottinn.9Móse sagði Ísraelsmönnum þetta, en þeir sinntu honum ekki sökum hugleysis og vegna hins stranga þrældóms.10Þá talaði Drottinn við Móse og sagði:11Gakk á tal við Faraó, Egyptalandskonung, og bið hann leyfa Ísraelsmönnum burt úr landi sínu.12Og Móse talaði frammi fyrir augliti Drottins og mælti: Sjá, Ísraelsmenn vilja eigi gefa gaum að orðum mínum. Hversu mun þá Faraó skipast við þau, þar sem ég er maður málstirður?13Þá talaði Drottinn við Móse og Aron og fékk þeim það erindi til Ísraelsmanna og Faraós, Egyptalandskonungs, að þeir skyldu út leiða Ísraelsmenn af Egyptalandi.14Þessir eru ætthöfðingjar meðal forfeðra þeirra: Synir Rúbens, frumgetins sonar Ísraels: Hanok, Pallú, Hesron og Karmí. Þetta eru kynþættir Rúbens.15Synir Símeons: Jemúel, Jamín, Óhad, Jakín, Sóhar og Sál, sonur konunnar kanversku. Þetta eru kynþættir Símeons.16Þessi eru nöfn Leví sona eftir ættbálkum þeirra: Gerson, Kahat og Merarí. En Leví varð hundrað þrjátíu og sjö ára gamall.17Synir Gersons: Líbní og Símeí eftir kynþáttum þeirra.18Synir Kahats: Amram, Jísehar, Hebron og Ússíel. En Kahat varð hundrað þrjátíu og þriggja ára gamall.19Synir Merarí: Mahelí og Músí. Þetta eru kynþættir levítanna eftir ættbálkum þeirra.20Amram fékk Jókebedar, föðursystur sinnar, og átti hún við honum þá Aron og Móse. En Amram varð hundrað þrjátíu og sjö ára gamall.21Synir Jísehars: Kóra, Nefeg og Síkrí.22Synir Ússíels: Mísael, Elsafan og Sítrí.23Aron fékk Elísebu, dóttur Ammínadabs, systur Nahsons, og átti hún við honum þá Nadab, Abíhú, Eleasar og Ítamar.24Synir Kóra: Assír, Elkana og Abíasaf. Þetta eru kynþættir Kóraíta.25Og Eleasar, sonur Arons, gekk að eiga eina af dætrum Pútíels, og hún ól honum Pínehas. Þetta eru ætthöfðingjar levítanna eftir kynþáttum þeirra.26Það var þessi Aron og Móse, sem Drottinn bauð: Leiðið Ísraelsmenn út af Egyptalandi eftir hersveitum þeirra.27Það voru þeir, sem boðuðu Faraó, Egyptalandskonungi, að þeir mundu leiða Ísraelsmenn út úr Egyptalandi, þessi Móse og Aron.28Er Drottinn talaði við Móse í Egyptalandi,29mælti hann til hans þessum orðum: Ég er Drottinn! Seg Faraó, Egyptalandskonungi, allt sem ég segi þér.30Og Móse sagði frammi fyrir augliti Drottins: Sjá, ég er maður málstirður, hversu má Faraó þá skipast við orð mín?

6.1 Reka burt 2Mós 11.1
6.4 Sáttmáli við ættfeðurna 3Mós 26.42+
6.5 Kvein 2Mós 2.24-25
6.7 Ég vil vera ykkar Guð 3Mós 11.45+
6.8 Landið gefið ættfeðrunum 1Mós 15.18-21; 24.7; 26.3; 28.13 – sem ég sór 4Mós 14.30; 5Mós 32.40; Esk 20.5,42; Neh 9.15
6.12 Málstirður 2Mós 4.10+
6.14 Synir Rúbens 4Mós 26.5-9; 1Kro 5.1-10
6.15 Synir Símeons 4Mós 26.12-14; 1Kro 4.24-43
6.16 Synir Leví 1Mós 46.11; 4Mós 3.17-20; 26.57-61; 1Kro 6.1-15
6.20 Amram og Jókebed 2Mós 2.1-2
6.21 Kóra 4Mós 16
6.23 Nadab og Abíhú 3Mós 10.1-5 – Eleasar 4Mós 17.2; 20.25-28
6.25 Pínehas 4Mós 25.7-13
6.30 Málstirður 2Mós 4.10+