1Sælir eru þeir sem breyta grandvarlega, þeir er fram ganga í lögmáli Drottins.2Sælir eru þeir er halda reglur hans, þeir er leita hans af öllu hjarta3og eigi fremja ranglæti, en ganga á vegum hans.4Þú hefir gefið skipanir þínar, til þess að menn skuli halda þær vandlega.5Ó að breytni mín mætti vera staðföst, svo að ég varðveiti lög þín.6Þá mun ég eigi til skammar verða, er ég gef gaum að öllum boðum þínum.7Ég skal þakka þér af einlægu hjarta, er ég hefi numið þín réttlátu ákvæði.8Ég vil gæta laga þinna, þá munt þú alls ekki yfirgefa mig.9Með hverju getur ungur maður haldið vegi sínum hreinum? Með því að gefa gaum að orði þínu.10Ég leita þín af öllu hjarta, lát mig eigi villast frá boðum þínum.11Ég geymi orð þín í hjarta mínu, til þess að ég skuli eigi syndga gegn þér.12Lofaður sért þú, Drottinn, kenn mér lög þín.13Með vörum mínum tel ég upp öll ákvæði munns þíns.14Yfir vegi vitnisburða þinna gleðst ég eins og yfir alls konar auði.15Fyrirmæli þín vil ég íhuga og skoða vegu þína.16Ég leita unaðar í lögum þínum, gleymi eigi orði þínu.17Veit þjóni þínum að lifa, að ég megi halda orð þín.18Ljúk upp augum mínum, að ég megi skoða dásemdirnar í lögmáli þínu.19Ég er útlendingur á jörðunni, dyl eigi boð þín fyrir mér.20Sál mín er kvalin af þrá eftir ákvæðum þínum alla tíma.21Þú hefir ógnað ofstopamönnunum, bölvaðir eru þeir, sem víkja frá boðum þínum.22Velt þú af mér háðung og skömm, því að ég hefi haldið reglur þínar.23Þótt þjóðhöfðingjar sitji og taki saman ráð sín gegn mér, þá íhugar þjónn þinn lög þín.24Og reglur þínar eru unun mín, boð þín eru ráðgjafar mínir.25Sál mín loðir við duftið, lát mig lífi halda eftir orði þínu.26Ég hefi talið upp málefni mín, og þú bænheyrðir mig, kenn mér lög þín.27Lát mig skilja veg fyrirmæla þinna, að ég megi íhuga dásemdir þínar.28Sál mín tárast af trega, reis mig upp eftir orði þínu.29Lát veg lyginnar vera fjarri mér og veit mér náðarsamlega lögmál þitt.30Ég hefi útvalið veg sannleikans, sett mér ákvæði þín fyrir sjónir.31Ég held fast við reglur þínar, Drottinn, lát mig eigi verða til skammar.32Ég vil skunda veg boða þinna, því að þú hefir gjört mér létt um hjartað.33Kenn mér, Drottinn, veg laga þinna, að ég megi halda þau allt til enda.34Veit mér skyn, að ég megi halda lögmál þitt og varðveita það af öllu hjarta.35Leið mig götu boða þinna, því að af henni hefi ég yndi.36Beyg hjarta mitt að reglum þínum, en eigi að ranglátum ávinningi.37Snú augum mínum frá því að horfa á hégóma, lífga mig á vegum þínum.38Staðfest fyrirheit þitt fyrir þjóni þínum, sem gefið er þeim er þig óttast.39Nem burt háðungina, sem ég er hræddur við, því að ákvæði þín eru góð.40Sjá, ég þrái fyrirmæli þín, lífga mig með réttlæti þínu.41Lát náð þína koma yfir mig, Drottinn, hjálpræði þitt, samkvæmt fyrirheiti þínu,42að ég fái andsvör veitt þeim er smána mig, því að þínu orði treysti ég.43Og tak aldrei sannleikans orð burt úr munni mínum, því að ég bíð dóma þinna.44Ég vil stöðugt varðveita lögmál þitt, um aldur og ævi,45þá mun ég ganga um víðlendi, því að ég leita fyrirmæla þinna,46þá mun ég tala um reglur þínar frammi fyrir konungum, og eigi skammast mín,47og leita unaðar í boðum þínum, þeim er ég elska,48og rétta út hendurnar eftir boðum þínum, þeim er ég elska, og íhuga lög þín.49Minnst þú þess orðs við þjón þinn, sem þú lést mig vona á.50Þetta er huggun mín í eymd minni, að orð þitt lætur mig lífi halda.51Ofstopamenn spotta mig ákaflega, en ég vík eigi frá lögmáli þínu.52Ég minnist dóma þinna frá öndverðu, Drottinn, og læt huggast.53Heiftarreiði við óguðlega hrífur mig, við þá er yfirgefa lögmál þitt.54Lög þín eru efni ljóða minna á þessum stað, þar sem ég er gestur.55Um nætur minnist ég nafns þíns, Drottinn, og geymi laga þinna.56Þetta er orðin hlutdeild mín, að halda fyrirmæli þín.57Drottinn er hlutskipti mitt, ég hefi ákveðið að varðveita orð þín.58Ég hefi leitað hylli þinnar af öllu hjarta, ver mér náðugur samkvæmt fyrirheiti þínu.59Ég hefi athugað vegu mína og snúið fótum mínum að reglum þínum.60Ég hefi flýtt mér og eigi tafið að varðveita boð þín.61Snörur óguðlegra lykja um mig, en lögmáli þínu hefi ég eigi gleymt.62Um miðnætti rís ég upp til þess að þakka þér þín réttlátu ákvæði.63Ég er félagi allra þeirra er óttast þig og varðveita fyrirmæli þín.64Jörðin er full af miskunn þinni, Drottinn, kenn mér lög þín.65Þú hefir gjört vel til þjóns þíns eftir orði þínu, Drottinn.66Kenn mér góð hyggindi og þekkingu, því að ég trúi á boð þín.67Áður en ég var beygður, villtist ég, en nú varðveiti ég orð þitt.68Þú ert góður og gjörir vel, kenn mér lög þín.69Ofstopamenn spinna upp lygar gegn mér, en ég held fyrirmæli þín af öllu hjarta.70Hjarta þeirra er tilfinningarlaust sem mör væri, en ég leita unaðar í lögmáli þínu.71Það varð mér til góðs, að ég var beygður, til þess að ég mætti læra lög þín.72Lögmálið af munni þínum er mér mætara en þúsundir af gulli og silfri.73Hendur þínar hafa gjört mig og skapað, veit mér skyn, að ég megi læra boð þín.74Þeir er óttast þig sjá mig og gleðjast, því að ég vona á orð þitt.75Ég veit, Drottinn, að dómar þínir eru réttlátir og að þú hefir lægt mig í trúfesti þinni.76Lát miskunn þína verða mér til huggunar, eins og þú hefir heitið þjóni þínum.77Lát miskunn þína koma yfir mig, að ég megi lifa, því að lögmál þitt er unun mín.78Lát ofstopamennina verða til skammar, af því að þeir kúga mig með rangsleitni, en ég íhuga fyrirmæli þín.79Til mín snúi sér þeir er óttast þig og þeir er þekkja reglur þínar.80Hjarta mitt sé grandvart í lögum þínum, svo að ég verði eigi til skammar.81Sál mín tærist af þrá eftir hjálpræði þínu, ég bíð eftir orði þínu.82Augu mín tærast af þrá eftir fyrirheiti þínu: Hvenær munt þú hugga mig?83Því að ég er orðinn eins og belgur í reykhúsi, en lögum þínum hefi ég eigi gleymt.84Hversu margir eru dagar þjóns þíns? Hvenær munt þú heyja dóm á ofsækjendum mínum?85Ofstopamenn hafa grafið mér grafir, menn, er eigi hlýða lögmáli þínu.86Öll boð þín eru trúfesti. Menn ofsækja mig með lygum, veit þú mér lið.87Nærri lá, að þeir gjörðu út af við mig á jörðunni, og þó hafði ég eigi yfirgefið fyrirmæli þín.88Lát mig lífi halda sakir miskunnar þinnar, að ég megi varðveita reglurnar af munni þínum.89Orð þitt, Drottinn, varir að eilífu, það stendur stöðugt á himnum.90Frá kyni til kyns varir trúfesti þín, þú hefir grundvallað jörðina, og hún stendur.91Eftir ákvæðum þínum stendur hún enn í dag, því að allt lýtur þér.92Ef lögmál þitt hefði eigi verið unun mín, þá hefði ég farist í eymd minni.93Ég skal eigi gleyma fyrirmælum þínum að eilífu, því að með þeim hefir þú látið mig lífi halda.94Þinn er ég, hjálpa þú mér, því að ég leita fyrirmæla þinna.95Óguðlegir bíða mín til þess að tortíma mér, en ég gef gætur að reglum þínum.96Á allri fullkomnun hefi ég séð endi, en þín boð eiga sér engin takmörk.97Hve mjög elska ég lögmál þitt, allan liðlangan daginn íhuga ég það.98Boð þín hafa gjört mig vitrari en óvinir mínir eru, því að þau heyra mér til um eilífð.99Ég er hyggnari en allir kennarar mínir, því að ég íhuga reglur þínar.100Ég er skynsamari en öldungar, því að ég held fyrirmæli þín.101Ég held fæti mínum frá hverjum vondum vegi til þess að gæta orðs þíns.102Frá ákvæðum þínum hefi ég eigi vikið, því að þú hefir frætt mig.103Hversu sæt eru fyrirheit þín gómi mínum, hunangi betri munni mínum.104Af fyrirmælum þínum er ég skynsamur orðinn, fyrir því hata ég sérhvern lygaveg.105Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegum mínum.106Ég hefi svarið og haldið það að varðveita þín réttlátu ákvæði.107Ég er mjög beygður, Drottinn, lát mig lífi halda eftir orði þínu.108Haf þóknun á sjálfviljafórnum munns míns, Drottinn, og kenn mér ákvæði þín.109Líf mitt er ætíð í hættu, en þínu lögmáli hefi ég eigi gleymt.110Óguðlegir hafa lagt snöru fyrir mig, en ég hefi eigi villst frá fyrirmælum þínum.111Reglur þínar eru eign mín um aldur, því að þær eru yndi hjarta míns.112Ég hneigi hjarta mitt að því að breyta eftir lögum þínum, um aldur og allt til enda.113Ég hata þá, er haltra til beggja hliða, en lögmál þitt elska ég.114Þú ert skjól mitt og skjöldur, ég vona á orð þitt.115Burt frá mér, þér illgjörðamenn, að ég megi halda boð Guðs míns.116Leyð mig samkvæmt fyrirheiti þínu, að ég megi lifa, og lát mig eigi til skammar verða í von minni.117Leyð þú mig, að ég megi frelsast og ætíð líta til laga þinna.118Þú hafnar öllum þeim, er villast frá lögum þínum, því að svik þeirra eru til einskis.119Sem sora metur þú alla óguðlega á jörðu, þess vegna elska ég reglur þínar.120Hold mitt nötrar af hræðslu fyrir þér, og dóma þína óttast ég.121Ég hefi iðkað rétt og réttlæti, sel mig eigi í hendur kúgurum mínum.122Gakk í ábyrgð fyrir þjón þinn, honum til heilla, lát eigi ofstopamennina kúga mig.123Augu mín tærast af þrá eftir hjálpræði þínu og eftir þínu réttláta fyrirheiti.124Ver með þjón þinn eftir miskunn þinni og kenn mér lög þín.125Ég er þjónn þinn, veit mér skyn, að ég megi þekkja reglur þínar.126Tími er kominn fyrir Drottin að taka í taumana, þeir hafa rofið lögmál þitt.127Þess vegna elska ég boð þín framar en gull og skíragull.128Þess vegna held ég beina leið eftir öllum fyrirmælum þínum, ég hata sérhvern lygaveg.129Reglur þínar eru dásamlegar, þess vegna heldur sál mín þær.130Útskýring orðs þíns upplýsir, gjörir fávísa vitra.131Ég opna munninn af ílöngun, því ég þrái boð þín.132Snú þér til mín og ver mér náðugur, eins og ákveðið er þeim er elska nafn þitt.133Gjör skref mín örugg með fyrirheiti þínu og lát ekkert ranglæti drottna yfir mér.134Leys mig undan kúgun manna, að ég megi varðveita fyrirmæli þín.135Lát ásjónu þína lýsa yfir þjón þinn og kenn mér lög þín.136Augu mín fljóta í tárum, af því að menn varðveita eigi lögmál þitt.137Réttlátur ert þú, Drottinn, og réttvísir dómar þínir.138Þú hefir skipað fyrir reglur þínar með réttlæti og mikilli trúfesti.139Ákefð mín eyðir mér, því að fjendur mínir hafa gleymt orðum þínum.140Orð þitt er mjög hreint, og þjónn þinn elskar það.141Ég er lítilmótlegur og fyrirlitinn, en fyrirmælum þínum hefi ég eigi gleymt.142Réttlæti þitt er eilíft réttlæti og lögmál þitt trúfesti.143Neyð og hörmung hafa mér að höndum borið, en boð þín eru unun mín.144Reglur þínar eru réttlæti um eilífð, veit mér skyn, að ég megi lifa.145Ég kalla af öllu hjarta, bænheyr mig, Drottinn, ég vil halda lög þín.146Ég ákalla þig, hjálpa þú mér, að ég megi varðveita reglur þínar.147Ég er á ferli fyrir dögun og hrópa og bíð orða þinna.148Fyrr en vakan hefst eru augu mín vökul til þess að íhuga orð þitt.149Hlýð á raust mína eftir miskunn þinni, lát mig lífi halda, Drottinn, eftir ákvæðum þínum.150Þeir eru nærri, er ofsækja mig af fláræði, þeir eru langt burtu frá lögmáli þínu.151Þú ert nálægur, Drottinn, og öll boð þín eru trúfesti.152Fyrir löngu hefi ég vitað um reglur þínar, að þú hefir grundvallað þær um eilífð.153Sjá þú eymd mína og frelsa mig, því að ég hefi eigi gleymt lögmáli þínu.154Flyt þú mál mitt og leys mig, lát mig lífi halda samkvæmt fyrirheiti þínu.155Hjálpræðið er fjarri óguðlegum, því að þeir leita eigi fyrirmæla þinna.156Mikil er miskunn þín, Drottinn, lát mig lífi halda eftir ákvæðum þínum.157Margir eru ofsækjendur mínir og fjendur, en frá reglum þínum hefi ég eigi vikið.158Ég sé trúrofana og kenni viðbjóðs, þeir varðveita eigi orð þitt.159Sjá, hversu ég elska fyrirmæli þín, lát mig lífi halda, Drottinn, eftir miskunn þinni.160Allt orð þitt samanlagt er trúfesti, og hvert réttlætisákvæði þitt varir að eilífu.161Höfðingjar ofsækja mig að ástæðulausu, en hjarta mitt óttast orð þín.162Ég gleðst yfir fyrirheiti þínu eins og sá er fær mikið herfang.163Ég hata lygi og hefi andstyggð á henni, en þitt lögmál elska ég.164Sjö sinnum á dag lofa ég þig sakir þinna réttlátu ákvæða.165Gnótt friðar hafa þeir er elska lögmál þitt, og þeim er við engri hrösun hætt.166Ég vænti hjálpræðis þíns, Drottinn, og framkvæmi boð þín.167Sál mín varðveitir reglur þínar, og þær elska ég mjög.168Ég varðveiti fyrirmæli þín og reglur, allir mínir vegir eru þér augljósir.169Ó að hróp mitt mætti nálgast auglit þitt, Drottinn, veit mér að skynja í samræmi við orð þitt.170Ó að grátbeiðni mín mætti koma fyrir auglit þitt, frelsa mig samkvæmt fyrirheiti þínu.171Lof um þig skal streyma mér af vörum, því að þú kennir mér lög þín.172Tunga mín skal mæra orð þitt, því að öll boðorð þín eru réttlæti.173Hönd þín veiti mér lið, því að þín fyrirmæli hefi ég útvalið.174Ég þrái hjálpræði þitt, Drottinn, og lögmál þitt er unun mín.175Lát sál mína lifa, að hún megi lofa þig og dómar þínir veiti mér lið.176Ég villist sem týndur sauður, leita þú þjóns þíns, því að þínum boðum hefi ég eigi gleymt.

119.1 Sælir Slm 1.1+ – Breyta grandvarlega Slm 84.12-13; Okv 11.20; 13.6; Lúk 11.28
119.2 Leita Drottins Slm 9.11+ – af öllu hjarta Slm 119.10,145; 5Mós 4.29; 2Kro 30.19; 31.21
119.4 Halda skipanir Guðs 5Mós 6.2; sbr Matt 5.19
119.5 Staðföst breytni Slm 119.133
119.6 Eigi til skammar Slm 119.31; 31.2+ ; 1Jóh 2.8 – gefa gaum að boðum Guðs Slm 119.15; Jak 1.23-25
119.8 Yfirgef mig aldrei Slm 38.22+ ; Jóh 8.29
119.9 Ungur maður Okv 1.4
119.10 Eigi villast Slm 139.24
119.12 Lofaður sért þú 1Kro 29.10,18; sbr Slm 28.6+
119.13 Hugleiða Slm 1.2
119.14 Gleði Slm 119.111,162
119.19 Aðkomumaður á jörðinni Slm 119.54; 39.13; Heb 11.13; 1Pét 1.1; 2.11
119.25 Loðir við duftið Slm 44.26 – halda lífi Slm 119.50,88,93,149,156,159; 85.7; Hós 6.2
119.26 Þú svaraðir mér Slm 118.21
119.27 Íhuga dásemdir Guðs Slm 105.2
119.28 Græt Slm 116.8
119.31 Halda fast við 5Mós 11.22; sbr Jer 13.11
119.32 Skunda Heb 12.1 – veg boða þinna sbr Jer 31.33
119.34 Skilning Jer 9.23
119.35 Leið mig Slm 5.9+
119.36 Illa fengin gróði sbr Jes 33.15; Jer 22.17; Heb 13.5
119.37 Frá hégóma, skurðgoðum Jer 18.15; 1Jóh 5.21
119.38 Við þjón þinn Lúk 11.28
119.41 Náð þín Slm 89.2
119.43 Vænti Slm 119.49,74; 33.18+ ; 147.11
119.45 Um víðlendi sbr Jóh 8.31-32 – leita fyrirmæla þinna Slm 112.1
119.46 Tala óttalaust Post 18.26; 19.8; Ef 6.20; Fil 1.13-14
119.47 Ég leita unaðar Slm 119.70,143; Jóh 4.34
119.48 Rétta út hendurnar Slm 28.2+
119.49 Minnstu Jer 15.15 – heits þíns Slm 105.42
119.50 Huggun mín 1Makk 12.9; Róm 15.4
119.51 Spotta mig Slm 123.3
119.54 Ljóð Slm 101.1; 137.4 – sem ég gisti Slm 119.19+
119.55 Um nætur … Slm 63.7; 134.1 – nafns þíns Slm 20.8; 124.8+
119.57 Hlutskipti mitt Slm 16.5
119.58 Ákalla Drottin 2Mós 32.11; Mal 1.9
119.59 Hugað að vegum mínum Lúk 15.17
119.62 Um miðnætti Slm 42.9; Post 16.25
119.63 Óttast þig Slm 15.4+
119.64 Jörðin … Slm 65.10
119.65 Hefur gert vel Slm 86.17
119.66 Dómgreind og þekking Hós 4.1+ ; Fil 1.9; Jak 1.5
119.67 Ég var beygður Okv 15.33
119.68 Þú ert góður Slm 25.8; 73.1; 100.5
119.70 Sljótt hjarta Jes 6.10 – feitt Slm 17.10+
119.72 Gull og silfur Slm 19.11
119.73 Hendur þínar Jes 64.7; Job 10.8; SSal 7.1, sbr Slm 139.15
119.74 Óttast þig Slm 15.4+ – gleðjast Slm 107.42
119.82 Hvenær Slm 101.2
119.84 Dæma ofsækjendur Slm 7.2
119.85 Grafir Slm 57.7
119.86 Boð, áreiðanleg Slm 33.4; 111.7-8
119.89 Orð þitt Jes 40.8; SSal 18.15; Jóh 1.1
119.90 Frá kyni til kyns Slm 103.17+ – jörðin stendur Slm 104.5
119.91 Eftir ákvæðum þínum Slm 105.7; Jer 33.25
119.93 Halda lífi Slm 119.25+
119.94 Þinn er ég Slm 100.3; 1Kor 3.23
119.97 Elska lögmál þitt Slm 40.9
119.98 Vitrari 5Mós 4.6
119.99 Hyggnari en kennararnir Matt 11.25
119.103 Sætari en hunang Slm 19.11; Sír 23.27; 24.20
119.105 Þitt orð er lampi Okv 6.23; sbr SSal 18.4; Jóh 8.12+
119.107 Mjög beygður Slm 70.6; 116.10
119.108 Tak með velþóknun Slm 51.21; 1Sam 26.19; Jes 56.7; sbr Mík 6.7; Mal 1.13
119.110 Snara Jer 9.7; sbr Slm 9.16+
119.111 Gleðja Slm 119.14; Jer 15.16
119.112 Allt til enda Slm 119.33
119.113 Tvílráða Sír 2.12; Matt 6.24; Jak 1.8
119.114 Skjöldur Slm 3.4+
119.115 Víkið frá mér Slm 6.9+
119.117 Styð mig Slm 18.36; 63.9
119.125 Þjónn þinn Slm 116.16; 143.12
19.126 Tími er kominn Slm 69.14; 102.14
119.130 Upplýsir Slm 119.105+ ; 19.9 – gjörir fávísa vitra Okv 1.4; sbr Matt 11.25
119.132 Snú þér 4Mós 6.26; 2Kon 13.23 – ver mér náðugur Jes 30.18-19; Okv 3.34 – elska nafn þitt Slm 69.37; Jes 56.6; sbr Slm 97.10; 145.20
119.133 Skref mín Slm 37.23; 40.3; 5Mós 7.9; Dóm 5.31 – ekkert ranglæti Róm 6.120
119.134 Leys mig Jes 54.14; Lúk 1.74
119.135 Lát ásjónu Slm 31.17+
119.137 Réttlátur 5Mós 32.4; Opb 1.7; 19.2
119.139 Vandlæting mín Slm 69.10
119.143 Neyð og hörmung Jóh 12.27
119.145 Hrópa til Guðs Slm 3.5+ – af öllu hjarta Slm 119.2+ ; SSal 8.21
119.147 Fyrir dögun Slm 57.9
119.151 Drottin er nálægur Slm 34.19; 5Mós 4.7; Jer 1.8
119.152 Um eilífð Matt 5.18; 1Pét 1.25
119.156 Miskunn Slm 69.17; 145.9
119.157 Margir ofsækjendur Slm 3.2; 69.5
119.158 Kenni viðbjóðs Slm 95.10
119.160 Orð þitt er satt Jóh 17.17
119.161 Að tilefnislausu 1Sam 26.18
119.162 Mikið herfang Jes 9.3; Matt 13.44
119.166 Ég vænti Slm 33.18+
119.168 Mínir vegir Slm 39.2; 139.3
119.169 Hróp mitt … Slm 18.7; 102.2; sbr Slm 88.3
119.170 Grátbeiðni mín … Slm 140.7; 143.1
119.172 Boð, réttlæti Róm 7.12
119.173 Hönd þín sbr Slm 63.9
119.176 Eins og týndur sauður Jes 53.6; Esk 34.6; 1Pét 2.25 – leita þú Lúk 15