1Þann dag var lesið upp úr Mósebók fyrir lýðnum, og fannst þá skrifað í henni, að hvorki Ammóníti né Móabíti mættu nokkru sinni koma í söfnuð Guðs,2vegna þess að þeir komu ekki í móti Ísraelsmönnum með brauð og vatn og keyptu í móti þeim Bíleam til að bölva þeim, en Guð vor sneri bölvaninni í blessan.3Og er þeir heyrðu lögmálið, skildu þeir alla útlendinga úr Ísrael.4Áður en þetta varð, hafði Eljasíb prestur, frændi Tobía, sá er settur var yfir herbergi musteris Guðs vors,5látið útbúa stórt herbergi handa Tobía, en þar höfðu menn áður látið matfórnina, reykelsið og áhöldin og tíund af korni, aldinlegi og olíu, hið fyrirskipaða gjald til levíta, söngvara og hliðvarða, svo og fórnargjafir til prestanna.6Meðan allt þetta gjörðist, var ég ekki í Jerúsalem, því að á þrítugasta og öðru ríkisári Artahsasta konungs í Babýlon fór ég til konungsins. En að nokkrum tíma liðnum beiddist ég orlofs af konungi.7Og er ég kom til Jerúsalem, sá ég hvílíka óhæfu Eljasíb hafði gjört vegna Tobía með því að útbúa handa honum klefa í forgörðum Guðs musteris.8Mér mislíkaði þetta stórum, og kastaði ég öllum húsgögnum Tobía út úr herberginu9og bauð að hreinsa herbergin, bar síðan aftur inn þangað áhöld Guðs musteris, matfórnina og reykelsið.10Ég komst og að því, að greiðslurnar til levítanna höfðu eigi verið inntar af hendi, svo að levítarnir og söngvararnir, er þjónustunni áttu að gegna, voru allir flúnir út á lendur sínar.11Þá taldi ég á yfirmennina og sagði: Hvers vegna er hús Guðs yfirgefið? Og ég stefndi þeim saman og setti þá á sinn stað.12Þá færðu allir Júdamenn tíundina af korni, aldinlegi og olíu í forðabúrin,13og ég skipaði yfir forðabúrin þá Selemja prest og Sadók fræðimann, og Pedaja af levítunum, og þeim til aðstoðar Hanan Sakkúrsson, Mattanjasonar, því að þeir voru taldir áreiðanlegir og það var þeirra skylda að útdeila bræðrum sínum.14Mundu mér þetta, Guð minn, og afmá eigi góðverk mín, þau er ég hefi gjört fyrir hús Guðs míns og þjónustu hans.15Um sömu mundir sá ég í Júda menn vera að troða vínlagarþrær á hvíldardegi og flytja heim kornbundin og aðra vera að klyfja asna víni, vínberjum, fíkjum og alls konar þungavöru og koma með þá á hvíldardegi til Jerúsalem. Og ég áminnti þá, þegar þeir seldu matvæli.16Og Týrusmenn, sem sest höfðu þar að, fluttu þangað fisk og alls konar torgvöru og seldu Júdamönnum það á hvíldardögum í Jerúsalem.17Þá taldi ég á tignarmenn Júda og sagði við þá: Hvílík óhæfa er það, sem þér hafið í frammi, að vanhelga hvíldardaginn!18Hafa eigi feður yðar breytt svo og Guð vor þess vegna látið alla þessa ógæfu yfir oss dynja og yfir þessa borg? En þér aukið enn meir á reiði hans við Ísrael með því að vanhelga hvíldardaginn.19Og þegar myrkt var orðið í borgarhliðum Jerúsalem og hvíldardagur fór í hönd, þá bauð ég að loka skyldi hliðunum, og enn fremur bauð ég að eigi skyldi opna þau aftur fyrr en að hvíldardeginum liðnum. Og ég setti nokkra af sveinum mínum við borgarhliðin, til þess að engin þungavara kæmi inn á hvíldardegi.20Þá náttuðu kaupmenn og þeir, er seldu alls konar torgvöru, fyrir utan Jerúsalem, einu sinni eða tvisvar.21Þá áminnti ég þá og sagði við þá: Hví náttið þér úti fyrir borgarmúrunum? Ef þér gjörið það oftar, legg ég hendur á yður. Upp frá því komu þeir ekki á hvíldardegi.22Þá bauð ég levítunum, að þeir skyldu hreinsa sig og koma síðan og gæta borgarhliðanna, til þess að helga þannig hvíldardaginn. Mundu mér og þetta, Guð minn, og þyrm mér af mikilli miskunn þinni.23Um þær mundir sá ég og Gyðinga, sem gengið höfðu að eiga konur frá Asdód eða ammónítískar eða móabítískar konur.24Og börn þeirra töluðu að hálfu leyti asdódsku eða tungu sinnar þjóðar, en kunnu ekki að tala Júda-tungu.25Og ég taldi á þá og bað þeim bölbæna, já, barði nokkra af þeim og hárreytti þá, og ég særði þá við Guð: Þér skuluð ekki gifta dætur yðar sonum þeirra, né taka nokkra af dætrum þeirra til handa sonum yðar eða sjálfum yður.26Syndgaði ekki Salómon, konungur Ísraels, í þessu? Meðal allra hinna mörgu þjóða var enginn konungur slíkur sem hann, og svo elskaður var hann af Guði, að Guð gjörði hann að konungi yfir öllum Ísrael. En einnig hann teygðu útlendar konur til syndar.27Og eigum vér nú að heyra það um yður, að þér fremjið alla þessa miklu óhæfu, að sýna Guði vorum ótrúmennsku með því að ganga að eiga útlendar konur?28Og einn af sonum Jójada, Eljasíbssonar æðsta prests, var tengdasonur Sanballats Hóroníta. Fyrir því rak ég hann frá mér.29Mundu þeim það, Guð minn, að þeir hafa saurgað prestdóminn og hið heilaga heit prestdómsins og levítanna.30Og þannig hreinsaði ég þá af öllu útlendu, og ég ákvað, hvaða þjónustu prestarnir og levítarnir skyldu inna af hendi, hver í sínu verki,31svo og hvernig greiða skyldi viðinn á tilteknum tímum og frumgróðann. Mundu mér það, Guð minn, til góðs.

13.2 Bíleam 4Mós 22-24
13.10 Greiðslur til Levítanna Neh 12.47; sbr 5Mós 12.19
13.12 Greiða tíund Neh 10.38; Mal 3.10
13.15 Vinna á hvíldardegi Neh 10.31; 3Mós 19.3+ ; Jer 17.21-22
13.23 Útlendar konur Esr 9.2+
13.26 Salómon 1Kon 11 – elskaður af Guði 2Sam 12.24-25
13.28 Eljasíb Esr 10.6+ – Sanballat Neh 2.10+
13.31 Flytja brenni Neh 10.34