1Dauðar flugur valda ódaun með því að hleypa ólgu í olíu smyrslarans. Ofurlítill aulaskapur er þyngri á metunum heldur en viska, heldur en sómi.2Hjarta viturs manns stefnir á heillabraut, en hjarta heimskingjans leiðir hann í ógæfu.3Og þegar aulinn er kominn út á veginn, brestur og á vitið, og hann segir við hvern mann, að hann sé auli.4Ef reiði drottnarans rís í gegn þér, þá yfirgef ekki stöðu þína, því að stilling afstýrir stórum glappaskotum.5Til er böl, sem ég hefi séð undir sólinni, nokkurs konar yfirsjón af hálfu valdhafans:6Heimskan er sett í háu stöðurnar, en göfugmennin sitja í niðurlægingu.7Ég sá þræla ríðandi hestum og höfðingja fótgangandi eins og þræla.8Sá sem grefur gröf, getur fallið í hana, og þann sem rífur niður vegg, getur höggormur bitið.9Sá sem sprengir steina, getur meitt sig á þeim, sá sem klýfur við, getur með því stofnað sér í hættu.10Ef öxin er orðin sljó og eggin er ekki brýnd, þá verður maðurinn að neyta því meiri orku. Það er ávinningur að undirbúa sérhvað með hagsýni.11Ef höggormurinn bítur, af því að særingar hafa verið vanræktar, þá kemur særingamaðurinn að engu liði.12Orð af munni viturs manns eru yndisleg, en varir heimskingjans vinna honum tjón.13Fyrstu orðin fram úr honum eru heimska, og endir ræðu hans er ill flónska.14Heimskinginn talar mörg orð. Og þó veit maðurinn ekki, hvað verða muni. Og hvað verða muni eftir hans dag hver segir honum það?15Amstur heimskingjans þreytir hann, hann ratar ekki veginn inn í borgina.16Vei þér, land, sem hefir dreng að konungi og höfðingjar þínir setjast að áti að morgni dags!17Sælt ert þú, land, sem hefir eðalborinn mann að konungi og höfðingjar þínir eta á réttum tíma, sér til styrkingar, en ekki til þess að verða drukknir.18Fyrir leti síga bjálkarnir niður, og vegna iðjulausra handa lekur húsið.19Til gleðskapar búa menn máltíðir, og vín gjörir lífið skemmtilegt og peningarnir veita allt.20Formæl ekki konunginum, jafnvel ekki í huga þínum, og formæl ekki ríkum manni í svefnherbergjum þínum, því að fuglar loftsins kynnu að bera burt hljóðið og hinir vængjuðu að hafa orðin eftir.

10.6-7 Þjóðfélagsskipan raskast Okv 19.10; 30.22; sbr 1Sam 2.7-8
10.8 Falla í eigin gröf sbr Slm 7.16+
10.13-14 Orð heimskingjans sbr Jes 32.6; Slm 14.1
10.16-17 Dreng að konungi Jes 3.4-12 – höfðingjar setjast að veislu sbr Okv 31.4; 20.1+
10.19 Vín gleður Slm 104.15+