1Vei hinni þverúðarfullu og saurguðu, hinni ofríkisfullu borg!2Hún hlýðir engri áminningu, hún tekur engri hirtingu, hún treystir ekki Drottni og nálægir sig ekki Guði sínum.3Höfðingjarnir í henni eru sem öskrandi ljón, dómendur hennar sem úlfar að kveldi, þeir leifa engu til morguns.4Spámenn hennar eru léttúðarmenn, svikaseggir. Prestar hennar vanhelga hið heilaga, misbjóða lögmálinu.5En Drottinn er réttlátur í henni, hann gjörir ekkert rangt. Á morgni hverjum leiðir hann réttlæti sitt í ljós, það bregst ekki, en hinn rangláti kann ekki að skammast sín.6Ég hefi afmáð þjóðir, múrtindar þeirra voru brotnir niður. Ég hefi lagt stræti þeirra í eyði, svo að enginn var þar á ferð. Borgir þeirra voru eyddar, urðu mannlausar, svo að þar bjó enginn.7Ég sagði: Óttast þú mig aðeins, tak hirtingu! þá skal bústaður hennar ekki afmáður verða, eftir allt sem ég hefi fyrirskipað gegn henni. En þeir hafa verið því kostgæfari í því að láta allar gjörðir sínar vera illverk.8Bíðið mín þess vegna segir Drottinn, bíðið þess dags, er ég rís upp sem vottur. Því að það er mitt ásett ráð að safna saman þjóðum og stefna saman konungsríkjum til þess að úthella yfir þá heift minni, allri minni brennandi reiði. Því að fyrir eldi vandlætingar minnar skal allt landið verða eytt.9Já, þá mun ég gefa þjóðunum nýjar, hreinar varir, svo að þær ákalli allar nafn Drottins og þjóni honum einhuga.10Handan frá Blálands fljótum munu þeir færa mér sláturfórnir, flytja mér matfórnir.11Á þeim degi þarft þú eigi að skammast þín fyrir öll illverk þín, þau er þú syndgaðir með gegn mér, því að þá mun ég ryðja burt frá þér þeim, er ofkætast drambsamlega í þér, og þú munt ekki framar ofmetnast á mínu heilaga fjalli.12Og ég mun láta í þér eftir verða auðmjúkan og lítilmótlegan lýð, þeir munu leita sér hælis í nafni Drottins.13Leifar Ísraels munu engin rangindi fremja, né heldur tala lygar, og í munni þeirra mun ekki finnast sviksöm tunga. Já, þeir munu vera á beit og leggjast, án þess að nokkur styggi þá.14Fagna þú, dóttirin Síon, lát gleðilátum, þú Ísrael! Ver kát og gleð þig af öllu hjarta, dóttirin Jerúsalem!15Drottinn hefir afmáð refsidóma þína, rýmt burt óvini þínum. Konungur Ísraels, Drottinn, er hjá þér, þú munt eigi framar á neinu illu kenna.16Á þeim degi mun sagt verða við Jerúsalem: Óttast ekki, Síon, lát ekki hugfallast!17Drottinn, Guð þinn, er hjá þér, hetjan er sigur veitir. Hann kætist yfir þér með fögnuði, hann þegir í kærleika sínum, hann fagnar yfir þér með gleðisöng.18Ég saman safna þeim, sem hryggir eru út af hátíðarsamkomunni, frá þér voru þeir, smán hvílir á þeim.19Sjá, á þeim tíma skal ég eiga erindi við þá, er þig þjáðu. Þá skal ég frelsa hið halta og smala saman því tvístraða, og ég skal gjöra þá fræga og nafnkunna á allri jörðunni.20Á þeim tíma skal ég leiða yður heim, og það á þeim tíma, er ég smala yður saman. Því að ég skal gjöra yður nafnkunna og fræga meðal allra þjóða jarðarinnar, þá er ég sný við högum yðar í augsýn yðar, segir Drottinn.

3.1 Gegn Jerúsalem Jer 6.6-10
3.2 Óhlýðnast Jer 5.3; 7.26,28; 22.21
3.3 Illir höfðingjar Jer 6.13-15; Esk 22.25
3.4 Prestar og spámenn Jer 23.11; Esk 22.26
3.5 Drottinn er í borginni Sef 3.17 – blygðast sín ekki Jer 6.15
3.7 Ég vænti Jer 3.19
3.8 Reiði Drottins Sef 1.18
3.9 Hreinar varnir Jes 6.5-7 – ákalla nafn Drottins Jl 3.5; Slm 80.19; sbr 1Mós 12.8; 13.4 o.fl. – nafn Drottins Mal 1.11; Slm 86.9
3.10 Fórnir fjarlægra þjóða Jes 18.7
3.11 Bera kinnroða Jes 54.4 – hið heilaga fjall Slm 3.5+ ; Jes 11.9; 56.7; Esk 20.40
3.12 Skilja eftir Sef 2.7,9; Jes 4.3+ – hógværa Sef 2.3+ – hæli Slm 7.2+
3.13 Ekki sviksöm tunga Opb 14.5 – enginn styggir þá Jer 30.10; Esk 34.28; Mík 4.4
3.14 Hrópaðu af gleði, Síon Jes 12.6; 54.1; Sak 2.14; 9.9
3.15 Ógilt refsidóma Jes 40.2 – konungur Ísraels, Drottinn 1Sam 12.12; Jes 33.22; 41.21+ ; Jer 8.19; Slm 5.3; 149.2
3.16 Óttast ekki … Jes 35.3-4; 41.13-14
3.17 Guð þinn er hjá þér Jes 12.6; sbr Esk 48.35 – Drottinn fagnar Jer 32.41; sbr Jes 62.5
3.19 Drottinn, hirðir Jer 23.3; Esk 34.11 – frelsa, smala saman Esk 34.16; Mík 4.6-7
3.20 Ég safna ykkur saman Jer 32.37 – högum snúið við Hós 6.11+