1Hver sem trúir, að Jesús sé Kristur, er af Guði fæddur, og hver sem elskar föðurinn elskar einnig barn hans.2Að vér elskum Guðs börn þekkjum vér af því, að vér elskum Guð og breytum eftir boðorðum hans.3Því að í þessu birtist elskan til Guðs, að vér höldum hans boðorð. Og boðorð hans eru ekki þung,4því að allt, sem af Guði er fætt, sigrar heiminn, og trú vor, hún er sigurinn, hún hefur sigrað heiminn.5Hver er sá, sem sigrar heiminn, nema sá sem trúir, að Jesús sé sonur Guðs?6Hann er sá sem kom með vatni og blóði, Jesús Kristur. Ekki með vatninu einungis, heldur með vatninu og með blóðinu. Og andinn er sá sem vitnar, því að andinn er sannleikurinn.7Því að þrír eru þeir sem vitna í himninum: Faðirinn, orðið og heilagur andi, og þessir þrír eru eitt. Og þeir eru þrír sem vitna á jörðunni:8Andinn og vatnið og blóðið, og þeim þremur ber saman.9Vér tökum manna vitnisburð gildan, en vitnisburður Guðs er meiri. Þetta er vitnisburður Guðs, hann hefur vitnað um son sinn.10Sá sem trúir á Guðs son hefur vitnisburðinn í sjálfum sér. Sá sem ekki trúir Guði hefur gjört hann að lygara, af því að hann hefur ekki trúað á þann vitnisburð, sem Guð hefur vitnað um son sinn.11Og þetta er vitnisburðurinn, að Guð hefur gefið oss eilíft líf og þetta líf er í syni hans.12Sá sem hefur soninn á lífið, sá sem ekki hefur Guðs son á ekki lífið.13Þetta hef ég skrifað yður, sem trúið á nafn Guðs sonar, til þess að þér vitið, að þér hafið eilíft líf.14Og þetta er sú djörfung, sem vér höfum til hans: Ef vér biðjum um eitthvað eftir hans vilja, þá heyrir hann oss.15Og ef vér vitum, að hann heyrir oss, um hvað sem vér biðjum, þá vitum vér, að oss eru veittar þær bænir, sem vér höfum beðið hann um.16Ef einhver sér bróður sinn drýgja synd, sem er ekki til dauða, þá skal hann biðja, og Guð mun gefa honum líf, þeim sem ekki syndgar til dauða. Til er synd til dauða. Fyrir henni segi ég ekki að hann skuli biðja.17Allt ranglæti er synd, en til er synd, sem ekki er til dauða.18Vér vitum, að hver sem af Guði er fæddur syndgar ekki, sá sem af Guði er fæddur varðveitir hann og hinn vondi snertir hann ekki.19Vér vitum, að vér tilheyrum Guði og allur heimurinn er á valdi hins vonda.20Vér vitum, að Guðs sonur er kominn og hefur gefið oss skilning, til þess að vér þekkjum sannan Guð. Vér erum í hinum sanna Guði fyrir samfélag vort við son hans Jesú Krist. Hann er hinn sanni Guð og eilífa lífið.21Börnin mín, gætið yðar fyrir skurðgoðunum.

5.1 Barn Guðs 1Pét 1.22-23; 1Jóh 2.29+
5.2 Elska Guðs börn 1Jóh 3.23+
5.3 Elska Guð og halda boðorð hans Jóh 14.15,23,24; 15.10; 2Jóh 6 – ekki þung 5Mós 30.11; Matt 11.29-30
5.4 Sigra 1Jóh 4.4+
5.5 Trúa og sigra 1Kor 15.57; Ef 6.16
5.6 Vatn og blóð Jóh 19.34 – andinn vitnar Jóh 15.26 – andinn er sannleikurinn Jóh 14.17; 15.26; 16.13
5.7 Þrír vitna 4Mós 35.30; 5Mós 19.15
5.9 Vitnisburður Guðs Jóh 3.33; 5.32,34,36-37; 8.18; Róm 8.16; Gal 4.6
5.10 Trúa á Guð Jóh 5.24 – trúa ekki vitnisburði Guðs Jóh 5.37,40
5.11 Eilíft líf Jóh 17.3; 1Jóh 5.20
5.12 Sonurinn og lífið Jóh 3.36
5.13 Til þess að þið vitið Jóh 20.31
5.14 Þá heyrir hann okkur 1Jóh 3.22+
5.16 Synd, sem ekki leiðir til dauða 5Mós 22.26 – synd sem leiðir til dauða 4Mós 15.30; 18.22; Matt 12.31-32 og hlst.; Heb 6.4-6; 10.26-27; 2Pét 2.20-21
5.18 Syndga ekki 1Jóh 3.9 – varðveitt frá hinum vonda Jóh 17.15; Júd 1 – snertir þau ekki Róm 6.7
5.19 Erum Guðs eign Jóh 8.47 – á valdi hins vonda Kól 1.13
5.20 Skilningur Jer 31.33; Esk 11.19; 36.26; Ef 1.17-18; Kól 1.10; 1Jóh 2.3 – hinn sanni Opb 3.7 – hann er Guð Jóh 20.28; Róm 9.5 – eilíft líf Jóh 11.25; 17.3
5.21 Gætið ykkar 2Pét 3.17 – falsguð Esk 11.21; 36.25; 1Kor 10.14