1Þegar þeir nálguðust Jerúsalem og komu til Betfage við Olíufjallið, sendi Jesús tvo lærisveina2og sagði við þá: Farið í þorpið hér framundan ykkur, og jafnskjótt munuð þið finna ösnu bundna og fola hjá henni. Leysið þau og færið mér.3Ef einhver hefur orð um, þá svarið: Herrann þarf þeirra við, og mun hann jafnskjótt senda þau.4Þetta varð, svo að rættist það, sem sagt er fyrir munn spámannsins:5Segið dótturinni Síon: Sjá, konungur þinn kemur til þín, hógvær er hann og ríður asna, fola undan áburðargrip.6Lærisveinarnir fóru og gjörðu sem Jesús hafði boðið þeim,7komu með ösnuna og folann og lögðu á þau klæði sín, en hann steig á bak.8Fjöldamargir breiddu klæði sín á veginn, en aðrir hjuggu lim af trjánum og stráðu á veginn.9Og múgur sá, sem á undan fór og eftir fylgdi, hrópaði: Hósanna syni Davíðs! Blessaður sé sá sem kemur, í nafni Drottins! Hósanna í hæstum hæðum!10Þegar hann kom inn í Jerúsalem, varð öll borgin í uppnámi, og menn spurðu: Hver er hann?11Fólkið svaraði: Það er spámaðurinn Jesús frá Nasaret í Galíleu.12Þá gekk Jesús í helgidóminn og rak út alla, sem voru að selja þar og kaupa, hratt um borðum víxlaranna og stólum dúfnasalanna13og mælti við þá: Ritað er: Hús mitt á að vera bænahús, en þér gjörið það að ræningjabæli.14Blindir og haltir komu til hans í helgidóminum, og hann læknaði þá.15Æðstu prestarnir og fræðimennirnir sáu dásemdarverkin, sem hann gjörði, og heyrðu börnin hrópa í helgidóminum: Hósanna syni Davíðs! Þeir urðu gramir við16og sögðu við hann: Heyrir þú, hvað þau segja? Jesús svaraði þeim: Já, hafið þér aldrei lesið þetta: Af barna munni og brjóstmylkinga býrðu þér lof.17Og hann fór frá þeim og úr borginni til Betaníu og hafði þar náttstað.18Árla morguns hélt hann aftur til borgarinnar og kenndi hungurs.19Hann sá fíkjutré eitt við veginn og gekk að því, en fann þar ekkert nema blöðin tóm. Hann segir við það: Aldrei framar vaxi ávöxtur á þér að eilífu. En fíkjutréð visnaði þegar í stað.20Lærisveinarnir sáu þetta, undruðust og sögðu: Hvernig gat fíkjutréð visnað svo fljótt?21Jesús svaraði þeim: Sannlega segi ég yður: Ef þér eigið trú og efist ekki, getið þér ekki aðeins gjört slíkt sem fram kom við fíkjutréð. Þér gætuð enda sagt við fjall þetta: Lyft þér upp, og steyp þér í hafið, og svo mundi fara.22Allt sem þér biðjið í bæn yðar, munuð þér öðlast, ef þér trúið.23Hann gekk í helgidóminn. Þá komu æðstu prestarnir og öldungar lýðsins til hans, þar sem hann var að kenna, og spurðu: Með hvaða valdi gjörir þú þetta? Hver gaf þér þetta vald?24Jesús svaraði þeim: Ég vil og leggja eina spurningu fyrir yður. Ef þér svarið mér, mun ég segja yður, með hvaða valdi ég gjöri þetta.25Hvaðan var skírn Jóhannesar? Frá himni eða frá mönnum? Þeir ráðguðust hver við annan og sögðu: Ef vér svörum: Frá himni, spyr hann: Hví trúðuð þér honum þá ekki?26Ef vér segjum: Frá mönnum, megum vér óttast lýðinn, því að allir telja Jóhannes spámann.27Og þeir svöruðu Jesú: Vér vitum það ekki. Hann sagði við þá: Ég segi yður þá ekki heldur, með hvaða valdi ég gjöri þetta.28Hvað virðist yður? Maður nokkur átti tvo sonu. Hann gekk til hins fyrra og sagði: Sonur minn, far þú og vinn í dag í víngarði mínum.29Hann svaraði: Það vil ég ekki. En eftir á sá hann sig um hönd og fór.30Þá gekk hann til hins síðara og mælti á sömu leið. Hann svaraði: Já, herra, en fór hvergi.31Hvor þeirra tveggja gjörði vilja föðurins? Þeir svara: Sá fyrri. Þá mælti Jesús: Sannlega segi ég yður: Tollheimtumenn og skækjur verða á undan yður inn í Guðs ríki.32Því að Jóhannes kom til yðar og vísaði veg réttlætis, og þér trúðuð honum ekki, en tollheimtumenn og skækjur trúðu honum. Það sáuð þér, en snerust samt ekki síðar og trúðuð honum.33Heyrið aðra dæmisögu: Landeigandi nokkur plantaði víngarð. Hann hlóð garð um hann, gróf fyrir vínþröng og reisti turn, seldi hann síðan vínyrkjum á leigu og fór úr landi.34Þegar ávaxtatíminn nálgaðist, sendi hann þjóna sína til vínyrkjanna að fá ávöxt sinn.35En vínyrkjarnir tóku þjóna hans, börðu einn, drápu annan og grýttu hinn þriðja.36Aftur sendi hann aðra þjóna, fleiri en þá fyrri, og eins fóru þeir með þá.37Síðast sendi hann til þeirra son sinn og sagði: Þeir munu virða son minn.38Þegar vínyrkjarnir sáu soninn, sögðu þeir sín á milli: Þetta er erfinginn. Förum og drepum hann, og náum arfi hans.39Og þeir tóku hann, köstuðu honum út fyrir víngarðinn og drápu hann.40Hvað mun nú eigandi víngarðsins gjöra við vínyrkja þessa, þegar hann kemur?41Þeir svara: Þeim vondu mönnum mun hann vægðarlaust tortíma og selja víngarðinn öðrum vínyrkjum á leigu, sem gjalda honum ávöxtinn á réttum tíma.42Og Jesús segir við þá: Hafið þér aldrei lesið í ritningunum: Sá steinn, sem smiðirnir höfnuðu, er orðinn hyrningarsteinn. Þetta er verk Drottins, og undursamlegt er það í augum vorum.43Þess vegna segi ég yður: Guðs ríki verður frá yður tekið og gefið þeirri þjóð, sem ber ávexti þess.44Sá sem fellur á þennan stein, mun sundur molast, og þann sem hann fellur á, mun hann sundur merja.45Þegar æðstu prestarnir og farísearnir heyrðu dæmisögur hans, skildu þeir, að hann átti við þá.46Þeir vildu taka hann höndum, en óttuðust fólkið, þar eð menn töldu hann vera spámann.

21.1-11 Hlst. Mrk 11.1-11; Lúk 19.28-38; Jóh 12.12-19
21.1 Betfage Mrk 11.1; Lúk 19.29 – Olíufjallið Sak 14.4
21.2 Asna 1Mós 49.11; Dóm 5.10
21.5 Sak 9.9; sbr Jes 62.11
21.8 Breiddu klæði á veginn 2Kon 9.13
21.9 Hósanna Matt 21.15; sbr Slm 118.25; 2Sam 14.4 – blessaður sé sá … Slm 118.26; Matt 23.39; Lúk 13.35 – sá sem kemur Matt 3.11+
21.10 Í uppnámi Matt 2.3
21.11 Fólkið Matt 9.33; 12.23 – einn af spámönnunum Matt 16.14+ – spámaðurinn 5Mós 18.15; Matt 13.57; 17.5 og hlst.; Jóh 1.21; 6.14; 7.40; Post 3.22-23
21.12-17 Hlst Mrk 11.15-19; Lúk 19.45-48; Jóh 2.13-22
21.13 Sbr Jes 56.7; Jer 7.11
21.14 Blindir og haltir Matt 11.5; sbr 3Mós 21.18; 2Sam 5.8
21.16 Sbr Slm 8.3; 1Kor 15.27; Ef 1.22; Fil 3.21; 1Pét 3.22; Heb 2.6-8
21.17 Betanía Matt 26.6 og hlst.; Mrk 11.1,11-12; Lúk 19.29; 24.50; Jóh 11.1,18; 12.1
21.18-22 Hlst. Mrk 11.12-14,20-24
21.19 Fíkjutré Matt 24.32; Lúk 13.6
21.21 Trú, sem flytur fjöll Matt 17.20+
21.22 Bænheyrsla Matt 7.7-11; 18.19; Jóh 14.13-14
21.23-27 Hlst. Mrk 11.27-33; Lúk 20.1-8
21.26 Óttast fólkið Matt 14.5; 21.46 – Jóhannes talinn spámaður Matt 14.5+
21.28 Tveir synir Lúk 15.11 – í víngarði Matt 20.1,4
21.31 Vilji föðurins Matt 6.10+ – tollheimtumenn Matt 5.46+
21.33-46 Hlst. Mrk 12.1-12; Lúk 20.9-19
21.33 Sbr Jes 5.2
21.34 Ávextir Matt 3.8+
21.35 Sendimönnum misþyrmt Matt 22.6; 23.37
21.39 Út fyrir víngarðinn 3Mós 24.14-16; Post 7.58; sbr Jóh 19.17; Heb 13.12
21.41 Aðrir vínyrkjar Matt 21.43
21.42 Sbr Slm 118.22-23; sbr Post 4.11; 1Pét 2.7
21.44 Þessi steinn Dan 2.34-35,44-45
21.46 Óttuðust fólkið Matt 14.5; 21.26 – Jesús talinn spámaður Matt 16.14+