1Á þeirri stundu komu lærisveinarnir til Jesú og spurðu: Hver er mestur í himnaríki?2Hann kallaði til sín lítið barn, setti það meðal þeirra3og sagði: Sannlega segi ég yður: Nema þér snúið við og verðið eins og börn, komist þér aldrei í himnaríki.4Hver sem auðmýkir sjálfan sig eins og barn þetta, sá er mestur í himnaríki.5Hver sem tekur við einu slíku barni í mínu nafni, tekur við mér.6En hverjum þeim, sem tælir til falls einn af þessum smælingjum, sem á mig trúa, væri betra að vera sökkt í sjávardjúp með mylnustein hengdan um háls.7Vei heiminum vegna ginninga hans. Hjá ginningum verður eigi komist, en vei þeim manni, sem veldur.8Ef hönd þín eða fótur tælir þig til falls, þá sníð hann af og kasta frá þér. Betra er þér handarvana eða höltum inn að ganga til lífsins en hafa báðar hendur og báða fætur og verða kastað í hinn eilífa eld.9Og ef auga þitt tælir þig til falls, þá ríf það úr og kasta frá þér. Betra er þér eineygðum inn að ganga til lífsins en hafa bæði augu og verða kastað í eldsvítið.10Varist að forsmá nokkurn þessara smælingja. Ég segi yður, að englar þeirra á himnum sjá jafnan auglit míns himneska föður.11Því að Mannssonurinn er kominn að frelsa hið týnda.12Hvað virðist yður? Ef einhver á hundrað sauði og einn þeirra villist frá, skilur hann ekki þá níutíu og níu eftir í fjallinu og fer að leita þess, sem villtur er?13Og auðnist honum að finna hann, þá segi ég yður með sanni, að hann fagnar meir yfir honum en þeim níutíu og níu, sem villtust ekki frá.14Þannig er það eigi vilji yðar himneska föður, að nokkur þessara smælingja glatist.15Ef bróðir þinn syndgar gegn þér , skaltu fara og tala um fyrir honum, og sé það ykkar einna í milli. Láti hann sér segjast, hefur þú unnið bróður þinn.16En láti hann sér ekki segjast, skaltu taka með þér einn eða tvo, að hvert orð sé staðfest með framburði tveggja eða þriggja vitna.17Ef hann skeytir þeim ekki, þá seg það söfnuðinum, og skeyti hann ekki söfnuðinum heldur, þá sé hann þér sem heiðingi eða tollheimtumaður.18Sannlega segi ég yður: Hvað sem þér bindið á jörðu, mun bundið á himni, og hvað sem þér leysið á jörðu, mun leyst á himni.19Enn segi ég yður: Hverja þá bæn, sem tveir yðar verða einhuga um á jörðu, mun faðir minn á himnum veita þeim.20Því að hvar sem tveir eða þrír eru saman komnir í mínu nafni, þar er ég mitt á meðal þeirra.21Þá gekk Pétur til hans og spurði: Herra, hve oft á ég að fyrirgefa bróður mínum, ef hann misgjörir við mig? Svo sem sjö sinnum?22Jesús svaraði: Ekki segi ég þér sjö sinnum heldur sjötíu sinnum sjö.23Því að líkt er um himnaríki og konung, sem vildi láta þjóna sína gjöra skil.24Hann hóf reikningsskilin, og var færður til hans maður, er skuldaði tíu þúsund talentur.25Sá gat ekkert borgað, og bauð konungur þá, að hann skyldi seldur ásamt konu og börnum og öllu, sem hann átti, til lúkningar skuldinni.26Þá féll þjónninn til fóta honum og sagði: Haf biðlund við mig, og ég mun borga þér allt.27Og herra þjónsins kenndi í brjósti um hann, lét hann lausan og gaf honum upp skuldina.28Þegar þjónn þessi kom út, hitti hann einn samþjón sinn, sem skuldaði honum hundrað denara. Hann greip hann, tók fyrir kverkar honum og sagði: Borga það, sem þú skuldar!29Samþjónn hans féll þá til fóta honum og bað hann: Haf biðlund við mig, og ég mun borga þér.30En hann vildi ekki, heldur fór og lét varpa honum í fangelsi, uns hann hefði borgað skuldina.31Þegar samþjónar hans sáu, hvað orðið var, urðu þeir mjög hryggir og sögðu herra sínum allt, sem gjörst hafði.32Konungurinn kallar þá þjóninn fyrir sig og segir við hann: Illi þjónn, alla þessa skuld gaf ég þér upp, af því að þú baðst mig.33Bar þér þá ekki einnig að miskunna samþjóni þínum, eins og ég miskunnaði þér?34Og konungur varð reiður og afhenti hann böðlunum, uns hann hefði goldið allt, sem hann skuldaði honum.35Þannig mun og faðir minn himneskur gjöra við yður, nema hver og einn yðar fyrirgefi af hjarta bróður sínum.

18.1-5 Hlst. Mrk 9.33-37; Lúk 9.46-48
18.1 Hver er mestur? Lúk 22.24; sbr Matt 20.26
18.2 Barn Matt 2.8-11; 11.16; 19.13-14 og hlst.; sbr Matt 11.25
18.3 Komast í himnaríki Matt 5.20+
18.5 Taka við Matt 10.40; Jóh 13.20
18.6-9 Hlst. Mrk 9.42-48; Lúk 17.12
18.6 Tæla Matt 5.29+
18.7 Heimurinn (mennirnir) Matt 4.8; 5.14; 26.13
18.8-9 Hönd, auga Matt 5.29,30 – eilíft líf Matt 7.14; 19.16,29; 25.46
18.10-14 Hlst. Lúk 15.3-7
18.10 Englar þeirra Post 12.15; Heb 1.14
18.12 Villast Matt 24.4,11,24; 2Tím 3.13; 1Jóh 1.8; 2.26; 3.7; Opb 12.9; 19.20
18.15-20 Hlst. Lúk 17.3
18.15 Bróðir Lúk 17.13 – tala um fyrir 3Mós 19.17 – endurheimta Matt 16.26; 25.16; 1Kor 9.19-22
18.16 Sbr 5Mós 19.15; Jóh 8.17; 2Kor 13.1; 1Tím 5.19
18.17 Tollheimtumenn Matt 5.46+
18.18 Binda – leysa Matt 16.19+
18.19 Biðja Matt 7.7; 21.22; Mrk 11.24; Jóh 15.7; 16.23; Jak 1.5; 1Jóh 3.22; 5.14,15
18.20 Nálægð Jesú Matt 28.20; Jóh 14.23
18.21 Pétur Matt 4.18+
18.27 Gefa upp skuld Lúk 7.42; sbr Matt 6.12
18.34 Afhenda hann böðlinum Matt 5.25-26; Lúk 12.58-59
18.35 Fyrirgefa hvert öðru Matt 6.14-15; Mrk 11.25; Ef 4.32; Kól 3.13